Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 85

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 85
LANDSBÓKASAFNIÐ 1988 85 flutningur heilu bókaflokkanna í geymslur utan þeirra valda og ómældum erfiðleikum. Komið var á fastari skipan heimlána erlendra rita. Nýkomnar erlendar bækur voru hafðar til sýnis í aðallestrarsal, ef verða mætti til að auka heimlán þeirra. STARFSLIÐ ívar Brynjólfsson ljósmyndari var sett- ur forstöðumaður myndastofu Lands- bókasafns frá 1. janúar. Hann hafði þá nýlega lokið prófi (Bachelor of Fine Arts) frá San Francisco Art Institute, ljósmynda- deild stofnunarinnar. Erfitt reyndist að manna Á stöðu aðstoðarmanns á myndastofu. Björn Stefánsson gegndi starfinu frá 1. janúar til 11. apríl, Jóhann Þór Guðmundsson júnímánuð og loks Ragnar Agústsson frá 12. september til áramóta. Ragnar gegndi og 14 starfi í þjóðdeild safnsins frá 1. október. Hallfríður Baldursdóttir bókasafnsfræðingur var ráðin bóka- vörður frá 1. apríl að telja. 'Á stöðu Laufeyjar Þorbjörnsdóttur var frá 1. júní breytt sam- kvæmt ósk hennar í 'A stöðu. 'Á stöðu Regínu Eiríksdóttur var frá sama tíma breytt í 54 stöðu. Hildur G. Eyþórsdóttir fékk þriggja mánaða rannsóknarleyfi, 15. september - 15. desember, til framhaldsnáms í bókasafnsfræð- um við McGill-háskólann í Montreal. Hún var frá störfum megin- hluta sumarsins vegna veikinda. Bergljótu Garðarsdóttur var í fjarveru Hildar G. Eyþórsdóttur falin aðalumsjón með gerð íslenzkrar þjóðbókaskrár. Rannveig Gísladóttir bókasafnsfræðingur var ráðin bókavörður frá 15. september í fjarveru Hildar G. Eyþórsdóttur. Hún var í 80% starfi til 15. desember, en úr því í fullu starfi. Sveinn Kristinsson, er settur var bókavörður til eins árs frá 20. ágúst 1987, var ekki endurráðinn eftir árið. Eiríkur Þormóðsson cand. mag. var settur bókavörður í Lands- bókasafni til eins árs frá 12. september að telja. Einar G. Pétursson var samkvæmt eigin ósk leystur 1. október frá starfi sínu sem deildarstjóri þjóðdeildar. Nanna Bjarnadóttir deildarbókavörður var sett deildarstjóri í þjóðdeild safnsins frá 1. október. Ólafur F. Hjartar deildarstjóri í deild erlendra rita lét af því

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.