Frjáls verslun - 01.05.1995, Blaðsíða 28
MARKAÐSMAL
orðinn einn stærsti viðskiptavinur-
inn.
ADIDAS
Fyrirtækið Sportmenn h.f. eru
með Adidas-umboðið, og samkvæmt
heimildum þeirra fékk Björgvin
Schram umboð fyrir merkið á sjötta
áratugnum. Asmundur Vilhelmsson
hjá umboðinu segir helstu íþróttavör-
ur fyrirtækisins vera Adidas skó og
-galla fyrir alla aldurshópa, en áhersla
sé lögð á knattspymu-, handbolta- og
hlaupaskó, auk þess að einnig sé núna
lögð áhersla á körfuboltann. Mark-
aðssetning hefur verið fólgin í að vera
með sterk lið á samningi og íþrótta-
menn í fremstu röð, en þeim er ekki
borgað fyrir að vera í vörunum.
Framleiðandinn styður umboðið að
litlu leyti, og þá aðallega í gegnum
markaðssetningu og kynningu í gegn-
um landslið, en ekki íslensk félagslið.
Markaðssetningin og auglýsingar eru
m.a. famar að felast í að nota afreks-
fólk fyrri tíma, eins og tugþrautar-
kappann Daley Thompson, sprett-
hlauparann Jessie Owens og boxar-
ann Mouhammed Ali.
Sala Adidasvaranna hér á landi hef-
ur verið mjög góð að sögn Ásmundar,
■■■■■■■■■■■■
Ásmundur Vilhelmsson hjá
Sportmönnum hf. Fyrirtækið er
með Adidas-umboðið. Eftir svo-
litla lægð er Adidas-merkið í
mikilli sókn um allan heim, sér-
staklega í Bandaríkjunum.
og eru áherslurnar á vörur með mikil
gæði; hafa búninga þægilega og vera
með fjölbreytta línu þar sem mikið er
um að velja. Ásmundur benti einnig á
að Adidas væri í tísku meðal unglinga,
t.d. skótegundir eins og Adidas
Gazella og Adidas Superstar. „Fyrir
hið stóra fyrirtæki Adidas er ísland
lítill markaður og því erfitt fyrir ísland
að fá vörur í litlu magni á réttum tíma.
Við erum háðir öðrum Norðurlöndum
hvað þau taka inn og skiptir Noregur
þar mestu í því sambandi," sagði Ás-
mundur. Samkvæmt upplýsingum
umboðsins hefur sala Adidas íheimin-
um aukist um 22% og á bandaríska
markaðnum um 62% og að þeirra
mati er þetta talið mest að þakka „or-
iginal“-vörunum frá fyrri tíma og
„street-ball“-keppnunum, en Adidas
er einmitt komið í NBA-körfubolta-
deildina bandarísku.
DUNLOP, NIKE
Austurbakki h.f. er umboðsaðili
Nike-merkisins í íþróttavörum á ís-
landi og er einnig með umboð fyrir
Dunlop-vörur í golfi, tennis, borð-
tennis og veggjatennis. Auk þessa er
fyrirtækið með umboð fyrir fleiri
merki eins og ABM-íþróttafatnað,
Champion-íþróttafatnað úr bómull,
Danskin-ballett- og leikfimifatnað,
Spalding-golf og körfubolta og Wil-
son-tennis-, golf- og körfubolta.
Markaðssetning Nike var erfið í byrj-
un, en með því að opna litla íþrótta-
vöruverslun í húsi umboðsins og opna
verslunina Frísport við Laugaveg,
sem hefur verið flaggskip Nike á ís-
landi, hafa hjólin farið að snúast og í
dag er Nike stærsta íþróttavöru-
merkið með markaðshlutdeild upp á
sennilega um 35 til 38%, samkvæmt
könnun. í markaðssetningu var byrj-
að í frjálsum íþróttum og körfubolta,
þar sem Nike er mjög sterkt, og svo
var ráðist á hverja íþróttagreinina á
fætur annarri. „Fyrirtækið hefur
verið brautryðjandi varðandi golf-
íþróttina," segir Ámi og byijaði á að
selja stakar kylfur og vann fyrirtækið
töluvert brautryðjandastarf í borð-
tennis, m.a. með uppsetningu borða í
Laugardalshöll, og telur Ámi að
fyrsta mótið hafi verið haldið að til-
stuðlan fyrirtækisins.
Hvað tennis varðar, þá hélt fyrir-
tækið einnig fyrsta tennismótið sem
haldið var eftir 20 ára hlé. Með FH-
ingum studdi fyrirtækið einnig fyrsta
maraþonið ’82, sem haldið var í Hafn-
arfirði. „Við höfum komið víða við,“
Árni Ámason, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Austurbakka hf.
Fyrirtækið er með umboð fyrir
ýmis þekkt merki. Þeirra þekkt-
ast er Nike en það er með mestu
markaðshlutdeild allra íþrótta-
merkja á íslandi.
■
Halldór Jensson hjá Ágústi Ár-
mann hf. Fyrirtækið er með
Puma-umboðið. Merkið er þekkt
innan knattspyrnunnar en nú er
aðalsalan í hlaupaskóm.
28