Frjáls verslun - 01.05.1995, Side 62
ERLEND VEITINGAHUS
Stokkhólmur:
K.B. ER FEYKIVINSÆLT
Matseöillinn er afsprengi uppreisnar sænskra matreiðslumanna
á miðjum níunda áratugnum. Einn „uppreisnarmannanna“ var
Örjan Klein eigandi K.B.
rekstri í Stokkhólmi. í borginni eru
mörg stórfyrirtæki með aðalstöðvar
sínar og tugþúsundir erlendra ferða-
manna heimsækja Stokkhólm árlega,
enda borgin einstaklega fögur og oft
kölluð Feneyjar norðursins. Upp úr
1960 kom fjöldi erlendra verkamanna
og síðar flóttamanna til Svíþjóðar og
settist þar að. Margir þessara
„nýbúa“ stofnuðu síðar veitingahús
eða hófu störf í greininni. Þessir „nýju
Örjan Klein matreiðslumeistari þykir snillingur á sínu sviði. Hann á og
rekur veitingahúsið K.B. sem nýtur mikillar hylli í viðskiptaheiminum í
Stokkhólmi.
Sigmar B.
Hauksson skrifar
reglulega um
þekkta erlenda
bisnessveitinga-
staði í Frjálsa
verslun.
Á undanförnum árum hefur orðið
mikil þróun í öllum veitingahúsa-
Svíar“ settu svo sannarlega mark sitt
á matreiðslu og matarhefðir veitinga-
húsa Stokkhólmsborgar. Um tíma má
segja að erlendar matreiðsluhefðir
hafi verið ráðandi á flestöllum veit-
ingahúsunum. Þá spruttu upp erlend
veitingahús eins og gorkúlur. Á þess-
um tíma þótti „sænska eldhúsið“ ekki
sérlega spennandi og gerðu ýmsir
mikið grín að eldamennsku sænskra.
Upp úr 1985 gerðu nokkrir sænskir
matreiðslumenn uppreisn, ef svo má
að orði komast. Meðal þessara mat-
reiðslumanna var Örjan Klein. Þessir
matreiðslumenn sögðu að í Svíþjóð
væri gott úrval af ýmiskonar hráefni
t.d. skelfiski, landbúnaðarvörum og
villibráð. Þá væru til merkilegar og
ríkar matreiðsluhefðir í Svíþjóð,
upprunnar í bændasamfélaginu eða
við hirð konungs. Það sem gera þyrfti
væri að aðlaga hinar gömlu mat-
reiðsluaðferðir nær nútímanum.
Þessi „uppreisrí' sænsku matreiðslu-
mannanna tókst með ágætum, en
þessa þjóðlegu rétti kalla Svíar
„Husmanskost". Árið 1990 fóru æ
fleiri veitingahús að bjóða sænskan
mat eða Husmanskost. Sænskir
neytendur og raunar einnig erlendir
ferðamenn kunna mjög vel að meta
nýja sænska eldhúsið. Eins og áður
sagði var einn af upphafsmönnum
þess Örjan Klein matreiðslumeistari.
Hann á og rekur veitingahúsið K.B. í
Stokkhólmi. Þetta hlýlega og fallega
veitingahús, sem var opnað 1931 og
nefndist þá Konstnarsbaren, var eins
og nafnið bendir til helsta aðsetur
listamanna og bohema Stokkhólms-
borgar. Segja má að æ síðan hafi þetta
veitingahús verið ákaflega vinsælt á
meðal listamanna og listunnenda,
62