Frjáls verslun - 01.10.1996, Side 38
MARKAÐSMAL
■ V' "1 óðir spennir belti á
I i'J I bamsitt. Bóndigáir til
veðurs og lokar hlöðu-
dyrum. Hópur manna ýtir bát
út í strauminn og eru allir í flot-
vestum og með hjálma. Sig-
maður svífur niður þrítugan
hamarinn til bjargar sauðkind
sem er í nauðum stödd.
Þessi myndskeið em tengd
saman með orðum eins og ást,
fyrirhyggja og umhyggja og það
er ungur drengur sem gengur
gegnum þau öll. Hann fer að
lokum heim og hefur engar
áhyggjur. Hann veit að allt er
tryggt. Hjá Sjóvá-Almennum.
Hér er lýst nýrri auglýsingu
frá Sjóvá-Almeimum. Hún hef-
ur vakið athygli fyrir glæsilegar
tökur, sérstaka áferð og
kannski ekki síst fyrir þá sök að
þótt verið sé að auglýsa trygg-
ingafélag er hvergi minnst á
tryggingar eða iðgjöld. Þetta
em svokölluð ímyndarauglýs-
ing því þeim er ekki ætlað að
koma á framfæri vörum eða
sérstökum tilboðum heldur
fyrst og fremst að koma á fram-
færi ímynd vöm eða fyrirtækis.
„Það má segja að gmnn-
hugsunin sé að treysta ímynd
Sjóvá-Almennra í hugum þeirra
sem þegar hafa viðskipti við fé-
lagið og ekki síður í hugum
þeirra sem ekki hafa viðskipti
þar,“ sagði Leópold Sveinsson
hjá AUK í samtali við Frjálsa
verslun en AUK sá um gerð
auglýsingarinnar fyrir Sjóvá-
Hópur ýtir bát út í straumharða á og allir eru í
flotvestum og með hjálma.
VELLIÐAN
VAKIN
UPP!
Tökur og áferö nýju auglýsingarinnar
frá Sjóvá-Almennum vekja athygli.
Enfleira kemur til. Hvergi er minnst
á tryggingar eöa iögjöld.
Auglýsingunni er ætlaö aö skaþa
vellíöan og segja: Njótiö lífsins - en
sýniö fyrirhyggju. Foröast er aö beita
hræösluáróöri sem veldur oft
vanlíöan.
Almennar. „Njóttu lífsins en
sýndu fyrirhyggju. Það em
skilaboðin."
Gríðarleg vinna liggur að
baki auglýsingarinnar því að
sögn Leópolds hófst vinnan við
hana formlega í apríl á þessu ári
og leiddi Elísabet Cochran hjá
AUK það starf. Snemma sum-
ars kom Ágúst Baldursson leik-
stjóri til liðs við verkið. Ágúst
þykir einn snjallasti auglýsinga-
leikstjóri sem fslendingar eiga
en hann starfar nær eingöngu
erlendis. Hann lagði margt í
púkkið og á miðju sumri var
handrit tilbúið en Saga film sá
um framleiðslu á myndinni.
Tökum var lokið tveimur mán-
uðum eftir að leikstjórinn
mætti til starfa og þá tók eftir-
vinnsla við. Allt var tekið á
filmu til þess að ná hámarks
myndgæðum og síðan var allt
myndefrii skannað inn í tölvu og
unnið stafrænt eftir það. Þetta
skilar sér, að sögn Leópolds, í
gæðum sem em sambærileg
við það besta sem gerist í þess-
ari atvinnugrein í heiminum í
dag. Vilhjálmur Guðjónsson
samdi tónlist við myndina en
Rut Reginalds sér um söng eða
söngl. Mikil vinna var lögð í að
finna rétta fólkið til að leika í
myndinni en emn þekktur leik-
ari er í auglýsingunni, Rúrik
Haraldsson, aðrir em lítt
þekktir.
íslensk fyrirtæki hafa ekki
gert sérstaklega mikið af því að
Lífsins notið í sundlaug. Björgunarbelti í ná-
lægð.
Sigmaður spennir öryggisbelti áður en hann
svífur niður þrítugan hamarinn til bjargar
sauðkind.
38