Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1998, Side 79

Frjáls verslun - 01.01.1998, Side 79
intýrí. Þar fara átta leik- endur með öll hlutverk- in og bregða sér auk þess stundum í gervi sögumanna. Þetta er einstaklega falleg sýn- ing á ytra borði; ljós, búningar og skemmti- leg gervi gleðja augað allt til enda, og ekki er að sökum að spyrja um tónlist og söngtexta, þegar þeir leggja saman Jóhann G. Jóhanns- son og Þórarinn Eld- járn. Samferðarfólki leikdómara af yngri kyn- slóð þótti ófreskjan fremur brosleg en ógn- vekjandi, langur ormur sem orkar ósköp eitt- hvað ámátlegur, þar sem hann sveiflast uppi undir sviðsloftinu. Hins vegar var ágætlega til fundið að láta Örn Arnason leika prinsinn í stað þess að elta uppi einhverjar Hollywood-klisj- ur af slíkum ævintýrapersónum. Frammistaða leikenda var svo jöfn og örugg, að ekki er ástæða til að nefna einn öðrum frem- ur, það væri þá helst Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, sem fataðist hvergi í hlutverki Yndisfríðar. Hermóður og Háðvör er á jafn góðu róli og fyrr og sýnir þjóðararfinum verðuga rækt með Síðasta bænum í dalnum. Sýningin er í líkum anda og fyrri sýningar hópsins, lífleg, sjón- ræn og full af leikrænu hugmyndaflugi, sem nýtur sín prýðilega í vel heppnaðri leikmynd Finns Arnar Arnar- sonar. Leikurinn ein- kennist fremur af ljöri og krafli en fágun eða blæbrigðum, og andinn sums staðar meir í anda nútímans en fortíðarinn- ar. Hilmar Jónsson hefur með starfi sínu í Hafnarfjarðarleikhúsinu sýnt, að hann er einn af dugmestu leikstjórum okkar af yngri kynslóð, en óneitanlega væri gaman að sjá hann næst spreyta sig á verki, sem reyndi á hann sem per- sónuleikstjóra og gerði meiri kröfur um leik- ræna dýpt en þeir leikir sem Hermóður og Háð- vör hefur hingað til ein- beittsérað. Hættanáþví að lifa á fyrri velgengni og festast í sama fari er sjaldan langt undan í leik- listinni, þó að því farí víðs fjarri, að þessi leikhópur hafi enn lent í því. Aðeins þarf að kvarta undan einu: leikskráin var fremur fátækleg og þar saknaði ég greinar- gerðar um tilurð verks- ins. Aðeins er tekið fram, að Hilmar Jónsson og Gunnar Helgason hafi samið leikgerðina, en nafn Lofits Guðmunds- sonar, höfúndar sögunn- ar um síðasta bæinn í dalnum, er hins vegar hvergi nefht, sem er vita- skuld ótækt. Við endum þessa hraðferð í Loffkastalanum, þar sem Baltasar Kormákur lét sig ekki muna um að hrista fram úr erminni söngleik með börnum og unglingum aðeins mánuði eftir að hann afgreiddi Hamlet. Eins og vera ber er Bugsy Malone mikið „show", sem lifir frem- ur á fjörmiklum tilþrifum á sviðinu, dansi og söngvum, en áhugaverðri sögu. Ungir áhorfendur fylgdust þó greinilega með raunum Chicago-bófanna og fylgifiska þeirra af áhuga og settu ekki fyrir sig löng rómantísk atriði milli aðalhetjunnar og elskunnar hans. Leik- gleðin gat heldur naum- ast verið meiri, en texta- meðferð var því miður alltof viða afleit og bætti ekki úr skák, þegar há- vær tónlistarflutningur yfirgnæfði raddir leik- enda, eins og gerðist hvað eftir annað í söngat- riðunum. Það er auðvitað ekki ásfæða til að leggja mat á frammistöðu leik- enda; þó get ég ekki stillt mig um að segja, að Þor- valdur Davíð Kristjáns- son iðaði af lífi í hlutverki Bugsys, en Kristín Ósk Hjartardóttir var auð- sæilega valin í hlutverki Blousey Brown fremur vegna hæfileika á sviði söngs en leiks. B3 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ. Úr leikritinu Yndisfríð og ófreskjan sem er sþennuævin- týri eftir Laurence Boswell. Frá vinstri Örn Árnason, Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir, sem leikur Yndisfríði, og Halldóra Björnsdóttir. Mynd: Grímur Bjarnason Hafnarjjarðarleikhúsið HERMÓÐUR OG HÁÐVÖR. Úr leikritinu Síðasti bœr- inn í dalnum. Frá vinstri: Halldór Gylfason, Björk Jakobsdóttir, Gunnar Helga- son og Hildigunnur Þráinsdóttir í hlutverkum sínum. Leikhúsannáll í ársbyrjun

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.