Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1998, Page 80

Frjáls verslun - 01.01.1998, Page 80
Órnólfur Órnól/sson rekur heildverslunina j4s en er lœrður bakari og fyrrverandi kauþfélagsstjóri. FV mynd: Kristín Bogadóttir. Sambandinu sem forstöðu- maður kexverksmiðjunnar Holtakex um árabil. „Þessir sænsku framleið- endur framleiða tæki sem henta mjög vel fyrir þær fjöl- breyttu kröfur sem bakarar þurfa að svara í dag.“ Örnólfur hefur einnig selt fasteignir og fengist við að reka húsgagnaverslun en það var Heimilið á Sogavegi sem margir muna eflaust eftir. Síð- ustu 10 árin áður en hann tók við heildversluninni As var Örnólfur kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Kjalarnesþings í Mosfellsbæ og rak verslun þess við Vesturlandsveg. „Mér finnst afskaplega skemmtilegt að vera kominn í eigin atvinnurekstur á ný. Þó að ég hafi áralanga reynslu af innflutningi af ýmsu tagi þá hafa breytingar verið svo örar að margt hef ég þurft að læra alveg upp á nýtt.“ Meðeigandi Örnólfs er Guðlaug Konráðsdóttir sam- býliskona hans, sem starfar hjá Fróða hf. Þau búa í Mos- fellsbæ og eiga þrjú uppkomin börn. Örnólfur segist vera mikill félagsmálamaður og eyða talsverðum hluta frítíma síns í það. Hann hefur t.d. starfað mikið með Rotary- hreyfingunni og var um hríð formaður Rotaryklúbbsins í Mosfellsbæ. Þegar þvi sleppir vill hann helst vinna í garðin- um auk þess sem hann og Guðlaug hafa stundað sam- kvæmisdansa. Eitt af áhugamálum Örn- ólfs er að hann safnar upp- stoppuðum fuglum og hefur gegnum árin eignast mikið safn af þeim. Áliugi hans vaknaði þegar hann var ungur drengur í sveit i Mývatnssveit. Örnólfur á ættir að rekja til Vestfjarða en fyrstu sjö árin bjó hann, ásamt foreldrum sínum og systkinum, á Húsa- vík. W ÖRNÓLFUR ÖRNÓLFSSON, ÁS EHF. 0g hef rekið þetta fyrir- tæki ásamt sambýlis- konu minni, frá 1. mars 1996 en heildverslunin Ás var upphaflega stofnuð 1984. Við höfúm gert ýmsar breytingar á vöruframboði en mesta breytingin er sú að nú erum við umboðsmenn fyrir Revent bakarofna og Glimek brauðgerðarvélar og ýmis tæki fyrir bakarí,“ segir Örn- ólfur Örnólfsson, heildsali í heildversluninni Ás í Kópa- vogi. Gjafavörur, silkiblóm, kerti og ýmsar vörur fyrir blóma- búðir hafa verið á boðstólum í heildversluninni Ás en vax- andi áhersla er í dag lögð á baðvörur frá þýska fyrirtæk- TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ASGEIRSSON inu Nature Shop. Þetta eru sápur, sjampó, krem, baðolíur og margt fleira sem lýtur að persónulegu hreinlæti. Allar vörur undir þessu merki henta ekki síst fyrir viðkvæma húð enda sérstaklega ofhæm- isprófaðar, án tilrauna á dýr- um. Allar umbúðir eru endur- vinnanlegar því umhverfis- væn stefiia er sett á oddinn. Auk þessa selur Ás baðbursta, sápuskálar, náttúrusvampa og ótal fleiri vörur sem eiga það sameiginlegt að gera notand- anum kleift að dekra við sig i baðinu. „Það er vaxandi áhugi og meðvitund meðal viðskipta- vina á öllu sem telst náttúru- vænt og hreint og þessar vör- ur hafa svarað þeim kröfum mjög vel.“ Helstu viðskiptavinir heild- verslunarinnar Ás hafa til þessa verið blómabúðir og ap- ótek en sífellt fleiri apótek selja bað- og hreinlætisvör- urnar frá Nature Shop. Með því að Ás verður nú umboðs- aðili fyrir Revent og Glimek frá Svíþjóð bætast bakarar í hóp viðskiptavinanna. „Eg hef alltaf haft áhuga á þessari grein, enda er ég lærð- ur bakari og starfaði við það samtals í 12 ár,“ segir Örnólf- ur. Hann rak meðal annars bakarí á Egilsstöðum um ára- bil. Síðar fór hann í framhalds- nám í kexbakstri og það leiddi til þess að hann starfaði hjá aaa—aga

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.