Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1998, Side 81

Frjáls verslun - 01.01.1998, Side 81
FOLK Uelta fyrirtækisins er nú um 1.200 milljónir og hefur aukist úr 600 milljónum árið 1995 svo við megum vel við una. Þetta eru tímar umbrota og breytinga í lytjaverslun og erfitt að spá fyrir um framtíðina," segir Stefán Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Thorarensen - Lyf. Thorarensen-Lyf er ungt fyrirtæki, verður tveggja ára í vor. Það stendur þó á mun eldri merg því það varð til við samruna fyrirtækjanna Stefán Thorarensen hf. og Lyf hf. Þau fyrirtæki áttu sér hvort um sig langa og merka sögu. Lyf hf. var stofhað 1971 en Stefán Thorarensen fékk leyf- isbréf frá Kristjáni konungi X til þess að rekja lyíjaverslun í Reykjavík í mars 1919. „AÖdragandi þessarar sam- einingar var þegar þessi tvö fyrirtæki, ásamt fleirum, stofn- uðu fyrirtækið Lyijadrcifingu fyrir nokkrum árum. Lyfja- dreifing starfar enn í Síðumúla og við erum aðilar að þvi fyrir- tæki sem dreifir lyljum fyrir nokkur fleiri fyrirtæki, ásamt öðrum vörum. Þetta samstarf varð undanfari sameiningar fyrirtækjanna. Hvatinn að því voru þær breytingar sem þá áttu sér stað á þessum mark- aði.“ Nú starfa 38 manns hjá Thorarensen-Lyf í stóru og markaðnum að mjög strangar reglur eru um innflutning, sölu og dreifingu. Stefán lýsir því svo að þótt fyrirtækið flytji inn lyf frá nokkrum framleið- endum sé markaðsstarfi fyrir hvern framleiðanda fyrir sig haldið aðskildu og því má segja að fyrirtækið skiptist í nokkrar smærri einingar sem hver um sig sinnir einum framleiðanda. Auk þess er sér- stök neysluvörudeild og sér- stök hjúkrunarvörudeild hjá fyrirtækinu.13 lyfjafræðingar vinna hjá fyrirtækinu auk hjúkrunarfræðinga, meina- tækna og fleiri sérhæfðra starfskrafta. Samruni stórra framleiðenda erlendis undan- farin ár hefur orðið til þess að auka umsvif og veltu fyrirtæk- isins Thorarensen-Lyf því það hefur orðið til þess að fjölga tegundum og auka magn þeg- ar viðskipti, sem áður til- heyrðu öðrum umboðsaðil- um, hafa færst þangað. Stefán telur að markaðshlutdeild fyr- irtækisins sé nú í kringum 25% af innfluttum lyfjum og hafi aukist nokkuð. Stefán varð stúdent frá MR árið 1977 og lærði síðan við- skiptafræði við Háskóla Is- lands og fór þaðan í nám í rekstrarhagfræði við North- Eastern Universify í Boston. Þegar hann kom heim frá námi árið 1984 hóf hann störf Stefán Bjarnason, framkvœmdastjóri fyrirtœkisins Thorarensen-Lyf, er mikill áhugamaður um laxveiði og veiddi 20 punda lax í Haf- jjarðará sl. sumar. FV mynd: Kristín Bogadóttir. STEFAN BJARNASON, THORARENSEN-LYF rúmgóðu húsnæði í Vatna- görðum sem teygir sig yfir hluta tveggja húsnúmera, 16 og 18. Fyrirtækið er umboðs- aðili nokkurra stórra lyfja- framleiðenda auk fyrirtækja á sviði hjúkrunarvara og neyslu- vara svo markaðsstarf er stærstur hluti þess sem fram fer innan veggja fyrirtækisins. Lyf hafa þá sérstöðu á hjá Stefáni Thorarensen hf., nánar tiltekið hjá dótturfyrir- tækinu Tóró h.f., sem fram- leiddi lyf. Hann hefúr starfað innan fyrirtækisins síðan og tók við starfi framkvæmda- stjóra fyrir rúmu ári. Stefán Thorarensen, stofnandi og frumkvöðull, var afi hans. Stefán er kvæntur Sigrúnu Þórarinsdóttur og eiga þau þijár dætur, 16, 8 og 5 ára gamlar. Stefán segist hafa mik- inn áhuga á bílum, fjallgöng- um og laxveiði. Hann hefur farið til laxveiða í Haffjaröará á hveiju sumri síðan hann var 12 ára gamall. Hann var reynd- ar um hríð leiðsögumaður við ána á sumrin svo hann þekkir hverja flúð og hvern hyl í þess- ari gjöfulu á. Þaðan kom hann með 20 punda lax síðasta sumar sem bíður í frystinum eftir að komast í uppstoppun. „Mér finnst mjög áríðandi að stunda hreyfingu og fer þrisvar í viku í Aerobic Sport í líkamsrækt og kem þaðan endurnærður á sál og líkama. Það er mjög brýnt, að mínu mati, fyrir alla að halda sér í þjálfun. 33 TEXTI: PÁLL ASGEIR ÁSGEIRSS0N 81

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.