Frjáls verslun - 01.04.1998, Síða 6
RITSTJORNARGREIN
KÓNGAR TÓKUST Á
Kóngar tókust á um formennsku í Vinnuveitendasambandi
Islands, VSI, á aðalfundi þess í síðustu viku. Þetta voru þeir
Ólafur B. Ólafsson, formaður sambandsins, og Víglundur Þor-
steinsson, forstjóri BM-Vallá og fyrrum varaformaður VSI.
Ólafur hafði betur. En naumt var það; hann var
endurkjörinn til formennsku með eins naum-
um meirihluta og hugsast getur - eða með
50,1% atkvæða. I kosningabaráttunni endur-
speglaðist ekld aðeins það smákóngaveldi sem
rikir hjá samtökum fyrirtækja, en sama kónga-
veldið er einnig hjá launþegasamtökum, held-
ur drógust greidd félagsgjöld til VSI inn í um-
ræðuna. Samtök iðnaðarins eru óhress með að
formaðurinn sé ekki úr þeirra röðum vegna
þess að þau greiða mest allra félaga til VSI -
eða um 40% af félagsgjöldunum - og halda þvi
sambandinu uppi sem því nemur. Samtök iðn-
aðarins skiptast svo aftur upp í ótal fylkingar smákónga; þ.e.
forsvarsmanna einstakra iðngreina. Þannig er þessu eins hátt-
að hjá öðrum samtökum fyrirtækja. Allar liggja þessar kónga-
leiðir þó til einnar áttar; til fyrirtækjanna, þeirra sem halda öll-
um þessum samtökum uppi. En þar fer fram hið raunverulega
brauðstrit sem ræður kjörum fólks.
Fyrirtækin í landinu, sem sjálfviljug eru í hinum ýmsu sam-
tökum atvinnulifsins - og dæla í þau fé - hljóta auðvitað að
spyrja sig annað veifið hvaða gagn sé að öllu þessu félaga-
vafstri. ÖIl halda félögin úti dýrum skrifstofúm og ráða til sín
framkvæmdastjóra, hagfræðinga, lögfiræðinga, sérfræðinga og
skrifstofúfólk. Þetta eru mikil batterí. Sama gegnir um þann
aragrúa samtaka launþega. Þar hefur hver smákóngurinn mik-
ið umleikis. Haldið er úti skrifstofú, ráðinn er framkvæmda-
stjóri, hagfræðingur, lögfræðingur og svo framvegis. Vissulega
er þetta atvinnuskapandi kerfi hjá fyrirtækjum og launþegum.
En hverju skilar það hinu almenna fyrirtæki, og hinum al-
menna Iaunþega, í bættum kjörum? Borgar sig að dæla fé í öll
þessi samtök? Geta ekki fyrirtæki og starfsmenn samið sín á
milli um kaup og kjör - og náð jafn góðum árangri, ef ekki
betri? Örugglega. Hvernig gagnast það fyrirtæki, sem greiðir
starfsmönnum sínum hærri laun en ASI-VSI samningar kveða
á um, að vera í VSI? Geta fyrirtæki ekld einmitt
forðast verkföll best með því að semja beint við
sína starfsmenn í stað þess að gangast undir og
greiða miðstýrð laun? Hvernig gagnast það til
dæmis stórfyrirtækjum að vera í VSI ef þau
þurfa að koma málum í gegn hjá alþingismönn-
um og ráðherrum; stunda svonefndan „lobby-
isma”? Eflaust hefur VSI þar ágæt sambönd en
hitt er líldegra að forstjórar stórfyrirtælqa vaði
beint í þingmenn og útskýri sín mál; berjist
sjálfir fyrir hagsmunum sinna fyrirtækja með
kjafti og klóm - í stað þess að láta aðra um það.
Hver er sjálfúm sér næstur þegar á reynir!!
Fyrir utan hinn mikla kostnað við að halda úti hinum
mörgu samtökum launþega og fyrirtækja - en öll eru þau meira
og minna að gera sömu hlutina - hefúr sú mikla miðstýring
sem felst í þessum samtökum verið gagniýnd á undanförnum
árum. Því er forvitnilegt að rýna í ávarp Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra sem hann flutti á títtnefúdum aðalfúndi VSI.
Hann vék þar að miðstýringu hjá Evrópusambandinu - en önn-
ur sambönd komu óhjákvæmilega upp í hugann Iíka. Davíð
sagði: „Engir hagsmunir Islands kalla á aðild að Evrópusam-
bandinu. Um þessar mundir virðist því miður allt stefúa þar í
aukin völd miðstýrðrar Evrópu, minni áhrif einstakra ríkja á
eigin mál og sífellt smásmugulegri reglusetningar.” Svo mörg
voru þau orð.
Þegar allt kemur til alls ættu stjórnendur fyrirtækja og al-
mennir Iaunþegar að íhuga vel hvaða gagn sé að hinum mörgu
samtökum á vinnumarkaði. I hverra þágu er öll þessi miðstýr-
ing?
Jón G. Hauksson
ISSN 1017-3544
Stofhuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efiiahags- og atvinnumál - 59. árgangur
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson - AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttír -
BLAÐAMAÐUR: Páll Ásgeir Ásgeirsson - UÓSMYNDARAR: Geir Ólafsson og Kristín Bogadóttír -
UMBROT: Ágústa Ragnarsdóttír. - ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf. - RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA:
Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 561-7575, fax: 561-8646 -ÁSKRIFTARVERÐ: 2.895 kr. fyrir 1.5. tbl. - 10% lægra áskrif-
tarverð ef greitt er með kreditkorti. - LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. nema bókin 100 stærstu sem er á 1.995,- -
DREIFING: Talnakönnun, hf„ sími 561 7575 - FILMIJVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf. -
LJTGREININGAR: Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi eftri og myndir.
6