Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 89

Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 89
M\& mennin? Þjóðleikhús Gamansami harmleikurinn * 1/2 Það eru engar ýkj- ur, að Örn Árnason fer á kostum í þessari sýningu. Verkið sjálft er hins vegar ekki nógu bitastætt, og sýningin verður fremur langdregin. (Sjá leikdóm bls. 92). Óskastjarnan * * 1/2 Það hefði sannarlega verið gaman að sjá Birgi Sigurðsson snúa aftur til leikhússins eftir tíu ára hlé með sterkara verki en þessu. Þó að leikritið sé skrifað af kunn- áttu, er persónusköpun of klisjukennd og grunn til að vekja verulegan áhuga. Sviðsetning er snyrtileg, en leikmynd stíllega á skjön við verkið. (Sjá Frjáls verslun, 3. tbl. 1998). Meiri gauragangur * * Það er gömul reynsla, að önnur út- gáfa vinsælla leikverka og bíómynda stendur sjaldan þeirri fyrstu jafnfætis. Gauragangur II er engin undantekning frá þeirri reglu, en Ólafur Haukur þekkir leiðina að hjörtum áhorf- enda sinna og ratar hana sjálfsagt engu síður nú en löngum áður. (Sjá Frjáls verslun, 2. tbl. 1998). Poppkorn ** Það er nokkur hætta á, að viðkvæmum mögum verði bumbult af því sem fram fer í leikriti Ben Eltons um siðferðislega ábyrgð kvikmyndaiðnaðarins. Sjálfur verður Elton naumast sýknaður af þeirri skinhelgi að gera sér mat úr því, sem hann þykist vera að prédika gegn. Sýningin er litrík og lífleg og dregur síst úr óbragðinu sem verkið skilur eftir. (Sjá Frjáls verslun, 2. tbl. 1998). Borgarleikhúsið Sumarið '37 * * * 1/2 Það er leitt að þurfa að skýra frá því, að L.R. hefur sökum slælegrar aðsóknar að þessari gagn- merku sýningu ákveðið að fresta henni til haustsins. Hvort áhorfendur verða þá komnir til sjálfra sín, verður reynslan að leiða í ljós, en oftast hefur þó raunin orðið sú, að sýningar sem ná sér ekki á strik að vori, gera það ekki heldur að hausti. Það er ekki til vitnis um háan leiklistarkúltúr íslenskra áhorfenda að slík sýning skuli falla á meðan verk eins og „Trainspotting" gengur fyrir fullu húsi í Loftkastalanum. (Sjá Frjáls verslun, 3. tbl. 1998). Sex í sveit * * * Enn ein hlátramaskínan er komin af stað í Borgarleikhúsinu og hefur ekki brugðist. Þó að Gísli Rúnar of- leiki í aðalhlutverkinu, leikarar séu ekki allir jafn pottþéttir og staðfærsla Ieiksins óþörf, nær sýningin þeirri sveiflu sem dugir til að trekkja áhorfendur í leikhúsið. (Sjá Fijáls verslun, 3. tbl. 1998). Loftkastalinn „Trainspottinfy* * Þetta er sýning sem rétt er að vara fólk við. Ekki vegna viðbjóðsins, sem allt veður þarna í, heldur vegna leikritsins sjálfs sem er innihaldsrýrt, óskemmtilegt og illa skrif- að. Ingvar E. og Þröstur Leó skipta einni stjörnu á milli sín. (Sjá Fijáls verslun, 3. tbl. 1998). Fjögur hjörtu * * Sálfræðin ristir ekki djúpt í frumraun Ólafs Jóhanns Ólafssonar fyrir leiksvið og stílblanda verksins á raunsæi og fantasíu nær ekki að verða trúverðug. En textinn er lipurlega saminn og leikararnir fjórir skila sínu nokkurn veginn eins vel og frekast er kostur. Dágóð kvöldskemmtun. (Sjá Fijáls verslun, 1. tbl. 1998). Bugsy Malone. Við sleppum stjörnugjöf fyrir sýningu sem er borin uppi af börnum og unglingum, en fagmannlega unnin að öðru leyti en því, að margir leikenda hefðu þurft að fá tilsögn í framsögn og textameðferð. (Sjá Frjáls verslun, 1. tbl. 1998). Nótt og dagur (við Loftkastalann) Nóttín skömmu fyrir skógana * * Ólafur Darri Ólafsson, sem er einn af útskriftarnemendum Leiklistarskóla Islands að þessu sinni, býður áhorfendum í strætóbunu með sér um fáfarn- ar slóðir úti á Granda. Textinn er hvorki aðgengilegur né aðlað- andi og meðferð Ólafs Darra á honum gæti verið betri. Hann á þó skilið lof fyrir þrek sitt og úthald í þessari óvenjulegu bílferð, að ekki sé minnst á það afrek að læra þennan textagraut utanbók- ar ofan á alla aðra vinnu í Nemendaleikhúsinu. (Sjá leikdóm bls. 91). Hermóður og Háðvör Síðastí bærinn í dalnum *** Hinn kröftugi hafnfirski leikhópur rær á þjóðleg mið í fyrstu barnasýningu sinni með ágætum árangri. Frá því er víst gengið, að hann fær haldið starfi sínu áfram enn um sinn. (Sjá Frjáls verslun, 1. tbl. 1998). Kaffileikhúsið Svikamylla * * 1/2 Úrvalstryllir, sem enginn spennufíkill má missa af. Arnari hefur farið mikið fram frá frumsýningunni og sýnir nú ágæt tilþrif. En mótleikarinn hefur því miður staðið í stað, svo að leikurinn verður harla ójafn. (Sjá Frjáls verslun, 2. tbl. 1998). Leikfélag Akureyrar Markúsarguðspjallið * * Aðalsteinn Bergdal stendur sig ótrúlega vel í þeirri eldraun sem þessi sýning er honum augljós- lega. En aðferð leikstjórans að verkinu er röng: Aðalsteinn er í raun og veru aðeins að flytja texta guðspjallsins og það ætti að vera hreinasti óþarfi að dulbúa þann textaflutning sem hefð- bundna leiksýningu. (Sjá leikdóm bls. 90). Söngvaseiður * * 1/2 LA ræður ekki yfir þeim kröftum sem þarf til að skila fullkomlega fagmannlegri sýningu á verki sem þessu og leikstjórn gæti verið betri. En tónlistin stendur alltaf fyrir sínu og Þóra Einarsdóttir á skilið hvert orð af því lofi sem á hana hefur verið borið fyrir meðferð hennar á Maríu. (Sjá Fijáls verslun, 3. tbl. 1998). Stjörnugjöf Jóns Viðars 89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.