Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 94
Hér sést hvernig gúmmíhringurinn er steyptur innan i
múfíúna á rörinu.
Milliveggir steyptir hjá Loftorku.
Rörin steypt
Borgarnesi.
í rörsteypu U)ftorku í
Fjölþætt framleiösla
Nýjung í röraframleið
já Loftorku í Borgarnesi er hafin framleiðsla á nýrri gerð röra með inn-
steyptum gúmmíhringjum, svokölluðum IG-Glipp hringjum en þeir eru það
nýjasta sem býðst á þessu sviði á markaðnum í dag. Nýlokið er uppsetn-
ingu véla hjá Loftorku, sem notaðar eru við framleiðsluna og þegar er farið að fram-
leiða rörin á lager. Með tilkomu þessara nýju véla verður auk þess hægt að bjóða
brunna sem eru með forsteyptum botni og innsteyptum gúmmíhringjum í úrtökum.
Loftorka í Borgarnesi hefur allt frá árinu
1981 framleitt forsteypta byggingarhluta
og eru samlokueiningar til húsageröar sú (
framleiösla fyrirtækisins sem vegur (
þyngst. Allt frá árinu 1969 hefur Loftorka
framleitt rör, en auk þess má nefna aö ?
fyrirtækiö framleiðir óeinangraða útveggi,
inniveggi, sökkla, stoðveggi, loftaplötur, <
stiga, svalir, bita og súlur. Miklð er fram-
leitt af undirstöðum undir möstur og
skilti. Ennfremur eru framleiddar staghell-
ur, ræsisendar, tankar, undirgöng,
Ijósastaurar, sorpgeymslur, skorsteinar,
spennistöðvar, flórbitar, hellur og hleðslu-
steinar. Hjá Loftorku hafa að undanförnu
verið steyptir og veggir í kringum kerskál-
ann í álverinu á Grundartanga sem og súl-
ur sem bera uppi þakið og hlaupakettina.
Hjá Loftorku starfa milli 50 og 60 manns.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Konráð
Andrésson.
Framleiðslulína nýju vélanna hjá
Loftorku er mjög sveigjanleg og er nú hægt
aö framleiða rör frá 100 mm upp í 2500 mm
í þvermál og allt að 2500 mm að lengd.
Smærri rör, sem voru áður einn metri, lengj-
ast nú í 1500 mm en stærri rörin verða 2000
mm að lengd.
INNSTEYPTIR GÚMMÍHRINGIR
IG-Glipp gúmmíhringirnir og þéttingar-
aðferðin þeim samfara koma frá Norður-Evr-
ópu þar sem mikil umræða er um mengun og
tjónið sem fylgir því að spilliefni síist út í
jarðveginn úr óþéttum lögnum. Evrópskir
verkfræðingar fundu upp IG-Glipp gúmmí-
hringina sem svar við þessum vanda svo
þétta mætti sem mest allar jarðvegslagnir.
Talið er að hér sé um eina mestu framþróun
að ræða á þessu sviði frá upphafi.
IG-Glipp gúmmíhringurinn er innsteyptur í
múffu rörsins. Innan í gúmmíhringnum er sér-
stakur plasthringur sem varnar því að óhrein-
indi komist að gúmmihringnum á meðan verið
er að leggja rörin. Plasthringurinn er fjarlæð-
ur í þann mund sem næsta röri er stungið í
múffuna. Gúmmíhringurinn varnar því að rörin
nái að snertast séu þrýstingur eða sveigja
mikil og eiga rörin að þola allt að 9°sveigju á
samsetningunni án þess að þau fari að leka.
RÚNNAÐIR ENDAR
Önnur nýjung í röraframleiöslunni er sú
að múffulausu endar röranna eru nú rúnnað-
ir en ekki með hvassar brúnir eins og áóur
94