Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 87

Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 87
 \kín við tólu Tónleikar Skagfirsku söngsveitarinnar í Langholtskirkju 26. apríl. Atthagakórinn, Skagfirska söngsveitin, skiþar sér í sveit meðal bestu kóra hérlendis. að ríkti sérstakur andi hér í denn í Skagó eða Skagfirsku söngsveitinni. Hann var kerskinn og ærslafullur en einnig notalegur, óþvingaður og hlýr. Þannig var andinn íyrir tutt- ugu og fimm árum þegar ég söng í tenórnum og Snæbjörg Snæbjarnardóttir kórstjórnandi lagði grunninn að tápmiklu kór- starfi. Þannig virðist andinn vera enn í dag. Það kemur e.t.v. ekki á óvart því þegar betur er að gáð sést að kórfélagarnir eru að tals- verðu leyti þeir sömu og stóðu við hlið mér fyrir aldarfiórðungi. Þetta er ótrúleg seigla. Þegar ég söng með kórnum voru það söngkapparnir Hjálm- týr Hjálmtýsson og Friðbjörn G. Jónsson sem kyijuðu ítölsk og íslensk lög af hjartans list með kórnum. Ég minnist þess að einu sinni þegar Hjálmtýr var í banastuði í ítalska laginu Funiculi Fun- icula hallaði Friðbjörn sér að honum brosandi og sagði: „Nú hef- urðu verið að borða spaghetti." Maður fylgdist álengdar með og dáðist að „gömlu körlunum”. En það eru efalítið ekki margir kórar sem geta státað af slíkri tryggð kórfélaga við kórinn sinn. Þetta hlýtur að verulegu leytí að vera kórstjórnendum að þakka, að halda uppi spennu og aga — en þó ekki um of. Á hinn veginn hefur það sýnt sig að það get- ur orðið dragbítur á gæðum kórsöngs þegar meðalaldur kórfé- laga er farinn að færast mikið upp á við. Söngævin er stutt. Það er þó ekki annað að heyra en að þessu sé öfugt farið með Skagfirsku söngsveitina. Einhverjir myndu vilja benda á sterka sönghefð og sönggleði Skagfirðinga. Úr Skagafirði komu t.d. tenórarnir Stef- án íslandi og Sigurður Skagfield og þar er meira sungið en ann- ars staðar á byggðu bóli. Sönghefðin er þarna en það þarf meira til að ná árangri. r Utflutningsgrein sem gerir ekki arðsemiskröfur Skagfirska söngsveitin er nú á leið í söngferðalag til stórborga meginlandsins og því spennandi að heyra hvað kórfélagar ætla að bera á borð fyrir þá vandlátu tónleikagesti. Langholtskirkjan var full á tónleikum Skagfirsku söngsveitarinnar sem haldnir voru 26. apríl. Söngskiáin var metnaðarfull og ber þess merki að söngsveitin er á leið til útlanda og er ekki „bara” átthagakór. Strax í fyrsta lagi tónleikana, Senn kemur vor eftir Dimitri Kabalewski, heyrði maður raddhljóminn sem maður þekkir vel frá fyrri tíð. Þessi hljómur ber svolítinn keim af þeim anda sem ríkir í kórnum og kemur ekki á óvart. En næsta lag færði manni heim sanninn um það að margt hefur breyst. Lag Þorvaldar Blön- dal, Nú sefur jörðin sumargræn, var agað og frábærlega sungið. Hrein perla í fullkomnum samhljómi. Ég ætla ekki að fara yfir hvert lag tónleikanna en get ekki lát- ið hjá líða að minnast á lagið Vorsól eftir stjórnandann Björgvin Þór Valdimarsson. Þessi skemmtilegi smellur var sunginn af Kristínu Ragnhildi Sigurðardóttur sópran. Þetta er með erfiðari íslenskum sönglögum sem ég hef sungið. Legan er mjög há og fyrir Kristínu er hún of há að sinni. Þarna er engu að síður ung- ur söngvari á þroskabraut sem vonandi á eftir að halda áfram. Hún á eftir að finna leiðina að þvi að fá líkamann til þess að vinna með raddmyndun en ekki á móti. Þetta tekur tíma að þjálfa og verður ekki lýst með nokkrum setningum. Annar einsöngvari með kórnum var Guðmundur Sigurðsson sem er reyndur maður með góða rödd og hjómaði vel með kórn- um. Undirleik annaðist Sigurður Marteinsson og gerði það af ná- kvæmni og því betur sem meira á reyndi. Þessi fræga höföatala Kórar eru uppeldisstöðvar og kórar eru hvergi fleiri en á Islandi miðað við höfðatölu. Það er efalítið ein helsta ástæða þess að smáþjóð á svo marga óperusöngvara. Á þeim tíma sem ég söng í Skagó var Kristinn Sigmunds- son að þenja raddböndin í Hamrahlíðakórnum, Kristján Jóhannsson farinn að syngja fyrstu sólóin með Karlakórnum Geysi og Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir, sópran í Langholtskirkjukórnum, farin að horfa til listabrautarinnar. Svona byrjar þetta oft og gerjunin er í fullum gangi. Tónlist: Júlíus Vííill In?var»on. Virtuoso í essinu sínu Það, sem upp úr stendur, er síðasta verkið sem kórinn söng á tónleikunum, Hallelúja-kórinn eftir Handel. Þetta var stímpill- inn ef ske kynni að einhveijir væru í vafa um að Skagfirska söngsveitin er fágætt hljóðfæri. Átthagakórinn, Skagfirska söngsveitin, skipar sér í sveit meðal bestu kóra hérlendis. A Björgvin Þór Valdimarsson leikur á það hljóðfæri sem hann ■ hefur mótað síðastliðin 15 ár eins og sannur virtuoso. Hann hefur tæknina fullkomlega á valdi sínu og næma listræna til- finningu til þess að skynja og kalla fram endalaust lit- róf tónlistarinnar. S9 Skagfirska söngsveitin í Ijingholtskirkju 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.