Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 26

Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 26
INGVAR HELGASON í SÉRFLOKKIÁ KREPPUÁRUNUM Þegar horft er yfir sviðið hjá bílaumboðun- um síðustu tiu árin hagnaðist aðeins eitt fyrir- taeki eitthvað að ráði á erfiðleikaárunum 1990 til 1995, Ingvar Helgason hf., á meðan flest önnur lentu í andstreymi. Þó skal bent á að bílaumboð, eins og Suzuki bílar hf. og Brim- borg, voru líka réttum megin við strikið á þessum erfiðu árum þótt hagnaður þeirra væri ekki í líkingu við hagnað Ingvars Helga- sonar hf. Aðaleigendur Ingvars Helgasonar og Bílheima eru hjónin Ingvar Helgason og Sig- ríður Guðmundsdóttír. Synir þeirra, Júlíus Vifill, Helgi og Guðmundur, eru fram- kvæmdastjórar fyrirtækjanna. Þetta er því samhent fjölskyldufyrirtæki. Þau hjón stofn- uðu fyrirtækið árið 1956. í upphafi hét það raunar Bjarkey og flutti inn leikföng og gjafa- vörur. Bílainnflutningurinn hófst árið 1963 þegar Ingvar hóf að flytja inn austur-þýsku bíl- ana Trabant Arið 1971 hófst svo innflutning- ur á Datsun sem heitir núna Nissan. Ingvar Helgason hf. stofhaði um mitt ár ‘93 dótturfyrirtækið Bilheima. Það fyrirtæki er meðal annars með umboð fyrir General Motors (GM), en Jötunn, sem var bílafyrir- tæki Sambandsins, var áður með það umboð. Helstu bíltegundir Bílheima eru Opel, Saab, GM og Isuzu. Helstu bílar Ingvars Helgason- ar hf. eru Nissan og Subaru. Ingvar Helga- son og Bílheimar eru rekin sem tvö sjálfstæð fyrirtæki innan sömu samsteypunnar. Saman- lögð velta þeirra nam á árinu 1996 rúmum 5,2 milljörðum og hagnaður fyrir skatta var um 187 milljónir. Það var um eitt hundrað milljóna króna minni velta en hjá Heklu þetta ár. I árlegri bók Fijálsrar verslunar yfir stærstu fyrirtæki landsins, 100 stærstu, voru Bílheimar inni í ársreikningum Ingvars Helga- sonar hf. á árunum '93, ’94 og ‘95 - en undir sérheiti árið 1996. Árs- reikningar fyrir Ingvar Helgason og Bílheima vegna ársins 1997 liggja ekki fyrir þegar þetta er skrifað, en áætlanir gera ráð fyrir góðri afkomu - að venju. Við vinnslu listans yfir stærstu fyr- irtæki landsins er Ingvar Helgason hf. eina bílaumboðið sem hefur jafnan skilað fullum og ítarlegum upplýsing- um um rekstur, efnahag, greidd laun og fjölda starfsmanna. Hekla skilaði einnig inn fyllstu upplýsingum við gerð listans - en hætti því á erfiðleika- árunum ‘92 til ‘94. Síðan hefúr Hekla skilað inn öllum upplýsingum við vinnslu listans. Önnur bílaumboð hafa ekki skilað inn nema hluta upp- lýsinganna í gegnum tíðina - og fæst þeirra greint frá afkomu. I þessari grein eru tölur um afkomu þeirra á árinu 1996 fengnar hjá Rikisskatt- stjóra á grunni tveggja ára gamalla laga um upplýsingaskyldu hlutafélaga á reikningum sínum. P. SAMÚELSSON - T0Y0TA ER MEST SELDA TEGUNDIN Þótt Hekla og Ingvar Helgason-Bílheima samsteypan hafi mesta veltu bilumboðanna er það svo að af einstaka tegundum er mest selt af Toyota - og hefur hún talsverða yfir- burði í sölu. Toyota hefur raunar verið mest seldi bíllinn hérlendis frá árinu 1988. Það táknar að af bílum í umferð eru flestir Toyota. Hlutdeild Toyota af innfluttum fólksbílum á síðasta ári var um 17,5% og hefur heldur far- ið lækkandi frá árinu 1992.1 mesta kreppuári íslensks bílainnflutnings, 1994, þegar aðeins tæplega 5.400 bílar voru fluttir inn til lands- ins, nam hlutdeild Toyota tæpum 26% af markaðnum. Yfirleitt hafa Toyota bílar þó verið í kringum 19% tíl 22% af seldum bílum á undanförnum árum. Það er P. Samúelsson hf. sem hefur um- boð fyrir Toyota en fyrirtækið var stofnað á þjóðhátíðardaginn, 17. júní árið 1970 af Páli Samúelssyni, föður Boga sem nú er for- stjóri. Velta P. Samúelssonar var um 4,5 millj- arðar á árinu 1996 og það ár skilaði fyrirtæk- ið um 75 milljóna hagnaði fyrir skatta. Toyota selur meðal annars jeppann Land Cruiser en í skoðanakönnun Fijálsrar verslunar á ár- inu 1966 var hann oftast nefndur sem draumabíll Islendinga. í könnuninni var spurt: Hvernig bíl myndir þú kaupa þér ef peningar væru ekkert vandamál? Mercedes Benz kom á eftir Land Cruiser og síðan Toyota - þar sem engin tegund af henni var nefnd sérstaklega. BRIMB0RG GENGIÐ VEL FRÁ UPPHAFI Eitt þeirra bílaumboða, sem getur státað af að hafa verið rekið með hagnaði i gegnum tíðina, er Brimborg. Verkstæði fyrirtækis- ins heitir Ventíll - og er gert upp sem sérfyrirtæki en önnur bíla- umboð, sem reka sérstakt verk- stæði, eru með rekstur verkstæð- anna inni í sinni veltu. Sameiginleg velta Brimborgar-Ventils sam- steypunnar var um 2,6 milljarðar á árinu 1996 og sameiginlegur hagn- aður nam um 12 milljónum fyrir skatta. Sá hagnaður stafaði fyrst og fremst af hagnaði verkstæðisins. Fyrirtækið hefur staðið í miklum byggingarframkvæmdum undanfar- in ár. Brimborg er með umboð fyrir flórar bílategundir; Daihatsu, Volvo, Ford og Citroen. Þess má geta að Volvo er sterkur á markaði vöru- og hópferðabíla hérlendis, meðal ann- ars eru margir strætisvagnar hjá SVR af þeirri gerð. Seldir jeppar á árinu 1997. Tegund Fjöldi % Toyota Land Cruiser 354 20,6 Mitsubishi Pajero 325 19,9 Suzuki Vitara 188 11,0 Ssangyoung Musso 178 10,3 Honda CRV 146 8,4 Nissan Terrano 141 8,1 Land Rouer 116 6,7 Cherokee 54 3,1 Suzuki Sidekick 49 2,7 Nissan Patrol 36 2,1 Opel Frontera 30 1,7 Ford Explorer 28 1,6 Ssangyoung Korando 25 1,5 Range Rover 19 1,1 Kia 12 0,6 Aðrir 12 0,6 Samtals: 1.713 100,0 íslendingar eru jeppavæn þjóð. Ætla má að Islendingar hafi eytt um 5 milljörðumn ó síðasta óri til kaupa á yfir 1.700 jeppum sem þá voru seldir. Rikissjóður fékk drjúgan skerf af þeirri upphæð. Innfluttir fólksbílar ‘Áætlun Frjálsrar verslunar út frá sölu fyrstu mánuðina. Árin ‘93 og ‘94 voru þau lélegustu í bílainnflutn- ingi í áraraðir. Þess má geta að gengi krónunnar var fellt undir lok ársins ‘92 og um mitt árið ‘93. Það hafði áhrif. 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.