Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 50
Það er í mörg horn að líta hjá nýráðnum fjármálaráðherra og eins gott að vera
með GSM.
Það verður að teljast nokkuð
óvenjulegt að aðstoðarmaður skyldi
vera sá sami með tveimur ráðherrum
því mun algengara er að hver ráð-
herra ráði sér sinn eigin aðstoðar-
mann. Þetta skýrist auðvitað af þvi
annars vegar að Geir hafði faglega
þekkingu og var á hraðri leið upp met-
orðastigann innan flokksins en hins
vegar af því að hann og Þorsteinn
þekktust eftir samstarf á Morgunblað-
inu þar sem báðir
voru blaðamenn
og svo auðvitað út
af flokksstarfinu.
Geir mun vera
eini aðstoðarmað-
ur ráðherra sem
hefur snúið aftur
seinna sem ráð-
herra í sama ráðu-
neyti.
Geir varð vara-
þingmaður flokksins eftir kosningar
1983 en var kjörinn á þing sem full-
gildur þingmaður árið 1987 og var
kjörinn formaður þingflokksins 1991.
Auk þess hafa Geir verið falin ýmis
embætti innan þings og utan. Má
nefna að hann var yfirskoðunarmaður
ríkisreikninga, formaður íslandsdeild-
ar Alþjóðaþingmannasambandsins og
formaður þingmannahóps vestrænna
ríkja innan þess sambands auk þess
að sitja þar í framkvæmdastjórn í Jjög-
ur ár og vera varaforseti sambandsins
1995-'97. Hann hefur og látið til sín
taka innan Norðurlandaráðs og var
forseti ráðsins 1995. Geir var og for-
maður framkvæmdanefndar HM í
handbolta á Islandi 1995.
FORiNGINN GEIR
Þegar litið er á ferilinn í heild sýnist
nokkuð augljóst að Geir hefur ungur
stefnt til metorða í stjórnmálum.
Þannig eru bæði formennska í SUS,
blaðamennska á Mbl. og ijölmörg
önnur trúnaðar-
störf meðal þess
sem telst hefð-
bundinn undirbún-
ingur fyrir stjórn-
málaþátttöku. Geir
hefur hinsvegar
ekki skotist upp á
stjörnuhimin
stjórnmálanna eins
og flugeldur heldur
hefur stjarna hans
risið jafnt og þétt.
Það er almennt álit manna að Geir
stefni til æðstu metorða í flokknum og
er oft nefndur, ásamt Birni Bjarna-
syni, sem flokksforingi í framtíðinni.
Hann er í talsverðum metum hjá
forystu flokksins, góður vinur Davíðs
og Kjartans og fleiri lykilmanna.
EIGINMAÐURINN GEIR
Geir er tvíkvæntur. Fyrri konu
sinni kvæntist hann í Frakklandi 1975
en hún heitir Patricia Angelina
Mistretta og er af frönsku bergi brot-
NÆRMYND
in. Þau áttu saman tvær dætur. Ilia
Anna er fædd 1977 og Sylvia 1981 en
þau hjón skildu 1982. Patricia og
seinni maður hennar, Eggert Guð-
mundsson byggingafræðingur búa í
Reykjavík og er góður vinskapur milli
íjölskyldnanna.
Seinni kona Geirs er Inga Jóna
Þórðardóttir sem er líka fædd 1951.
Þau eiga saman tvær dætur: Helgu
Láru, f. 1984 og Hildi Maríu, f. 1989.
Auk þess á Inga Jóna soninn Borgar
Þór, f. 1975.
Það má segja að samband þeirra
hafi sprottið af rómantík í ríkisstjórn
því Inga Jóna var aðstoðarmaður ráð-
herra á sama tíma og Geir, fyrst í
menntamálaráðuneyti og síðan í heil-
brigðisráðuneyti.
Þau hjón eru um margt lík, bæði
hvað varðar menntun og áhugamál.
Inga Jóna er viðskiptafræðingur sem
hefur unnið ötullega að frama sínum í
stjórnmálum og veríð valin til marg-
víslegra starfa fýrir Sjálfstæðisflokk-
inn. Hún hefur síðastliðið kjörtímabil
verið borgarfulltrúi flokksins í Reykja-
vík, var formaður útvarpsráðs í 6 ár,
verið formaður framkvæmdastjórnar
flokksins og setið í mýmörgum nefnd-
um og ráðum. Skemmst er að minnast
þess er hún bauð sig fram í efsta sæti
D-listans í Reykjavík gegn Arna Sig-
fússyni en hafði ekki erindi sem erfiði.
Inga Jóna er mjög metnaðargjörn og
ákveðin og hefur oft verið í kastljósi
íjölmiðla. Hún er dóttir Þórðar Guð-
jónssonar, skipstjóra og útgerðar-
manns á Akranesi, og konu hans,
Marselíu Guðjónsdóttur. Bróður Ingu
Jónu þekkja allir íslendingar en hann
er Guðjón Þórðarson knattspyrnu-
þjálfari.
Þau hjónin Geir og Inga Jóna búa
við Granaskjól og hafa búið sér og
sinni stóru fjölskyldu notalegt heimili.
Geir er áhugamaður um íþróttir og
er stuðningsmaður KR og hefur verið
frá unga aldri. Hann tók sjálfur þátt í
starfi félagsins og æfði knattspyrnu
með KR sem patti en segist aldrei hafa
komist ofar en í C-lið. Hann æfði
einnig körfubolta með KR í nokkur ár
en í seinni tíð fer færri sögum af virkri
íþróttaþátttöku hans.
PERSÓNAN GEIR
Þegar vinir og samstarfsmenn
Geirs eru spurðir um eiginleika eða
ALLTAF í BOLTANUM?
Hann tók sjálfur þátt í starfi félags-
ins og æföi knattspyrnu meö KR
sem patti en segist aldrei hafa kom-
ist ofar en í C-lið. Hann æföi einnig
körfubolta meö KR í nokkur ár en í
seinni tíö fer færri sögum af virkri
íþróttaþátttöku hans.
50