Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 82
ARKITEKTUR
Hópferðamiðstöðin: í húsinu er límtré frá Limtré hf., utanhússklæðning er frá
Alucubond og Borgarnesstáli, gluggar og hurðir frá Gluggar og garðhús.
FV-myndir: Geir Ólafsson.
ÍMYNDIN BIRTIST
í HÖNNUNINNI
Þab fylgja pví margs konarpœgindi og hagræding
ab láta sérhanna húsnædi fyrir starfsemina fremur
en aö kaupa gamalt húsnæöi og breyta pví
Ömiss konar þægindi og hagræð-
ing fylgja því þegar fýrirtæki
ákveður að láta sérhanna húsnæði
fyrir starfsemi sína fremur en að kaupa
gamalt húsnæði og láta breyta því. Fyrir-
tækið fær húsnæði sem hentar starfsem-
inni, ímynd fyrirtækisins kemur fram í
hönnun og umhverfi hússins og oft á tíð-
um getur þelta fyrirkomulag orðið til að
draga úr kostnaði því hægt er að setja sér
kostnaðarramma í upphafi og hanna hús-
næðið inn í þann ramma.
Egill Már Guðmundsson arkitekt fylgd-
ist með byggingu húsnæðis tveggja fyrir-
tækja, Ingvars Helgasonar og Bílheima
annars vegar og Hópferðamiðstöðvarinnar
hins vegar. Hann segir
okkur frá kostum sérhönn-
unarinnar. Bæði fyrirtækin
voru hönnuð hjá Arkitekt-
um TT3, fyrirtæki Egils og
Þórarins Þórarinssonar. Nú
hefur fyrirtækinu verið
breytt og í staðinn teknar til
starfa tvær arkitektastofur,
ARKIS, alhliða arkitektaþjón-
usta og ráðgjöf, sem Egill rek-
ur í samvinnu við arkitektana
Aðalstein Snorrason og Gísla Gíslason, og
teiknistofa sem Þórarinn rekur.
AÐ AÐLAGA GAMALT HÚSNÆÐI STARF-
SEMINNI
„Hægt er að kaupa gamalt húsnæði eða
húsnæði í byggingu og aðlaga það starf-
semi fyrirtækisins eftir bestu getu en
menn hafa þá ekki þau áhrif á skipulag
húsnæðisins sem þeir ef til vill vildu helst.
Hjá fyrirtækjum er meira og meira farið að
hugsa um ímyndina út á við og aðkomuna
að fyrirtækinu, endurmeta starfsemina og
velta fyrir sér hvað menn vilja leggja
áherslu á í þessu sambandi. Þetta má gera
í tengslum við hönnun húsnæðisins, láta
umgjörðina henta rekstri, fyrirkomulagi
og innra skipulagi og sjá til þess að hönn-
unin gefi til kynna hvað fyrirtækið er að
fást við,” segir Egill.
Hann segir einnig að sé farið út í að sér-
hanna húsnæði sé mjög gott að hönnuðir
komi strax að verkinu eins og var í tilfelli
Ingvars Helgasonar hf. „Við vorum svo
heppnir að ekki var einu sinni búið að finna
lóðina og tókum við þátt í því. Lóðin er á
góðum stað og hentar fyrirtækinu mjög
vel. Mikil umferð er í nágrenninu og þús-
undir bíla aka fram hjá daglega. Húsið
verður áberandi og staðurinn er því eins
konar auglýsing fyrir fyrirtækið. Staðarval
skiptir miklu máli en fer að sjálfsögðu eftir
eðli fyrirtækisins hverju sinni.”
HÚSNÆÐISNIÐIÐ AÐ ÞÖRFUNUM
Þessu næst verður að ákveða hvaða
starfsemi eigi að vera í húsinu og sníða það
utan um hana. Akveða verður stærð þess
en komið getur í ljós að húsið þurfi ekki að
vera eins stórt og álitið var í upphafi. Það
getur þó verið kostur að eiga möguleika á
að stækka húsnæðið eins og gert var hjá
Ingvari Helgasyni þegar byggt var yfir
dótturfyrirtækið Bílheima. Egill bendir
okkur á að hjá Hópferðamiðstöðinni sé
gert ráð fyrir möguleikum á viðbyggingu
gerist þess þörf í framtíðinni.
Með sérhönnun húss gefst
eigendum og stjórnendum
meira tækifæri en ella til að taka
þátt í hönnunarvinnunni og
skipulagningu. Arkitektar
reyna að sjálfsögðu að túlka
þarfirnar. Segist Egill telja að
þessi samvinna gefi góða raun
og sé bæði kostnaðarlega og
byggingarlega hagkvæm.
„Ef við lítum á óskir Hóp-
ferðamiðstöðvarinnar, þá
ABK
TEKTUR
82