Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 47
ánægðir en þetta voru um sextíu manns
alls.“
Olafur segir þátttöku í ferðinni hafa ver-
ið góða en þó hafi ekki allir haft tök á að
fara með. „Það, sem að mínu mati, gefur
því aukið gildi að fara í árshátíðarferðir út
fyrir bæinn eða lengra, er að þá gefst
starfsmönnum betra tækifæri til að kynn-
ast betur innbyrðis auk þess sem makarn-
ir eru með í för. Á árshátiðum hér á höfuð-
borgarsvæðinu mætir fólk bara, skemmtir
sér og fer heim. Það eru ekki mjög mörg
tækifæri sem gefast til að hrista hópinn
saman líkt og gerist í svona ferðum. Þótt
samheldnin hafi verið mikil fyrir, þá held
ég að hún verði enn meiri eftir að hafa
flakkað svona saman í nokkra sólarhringa
til útlanda."
EKKIALLIR í SÖMU VÉL
Ólafur segist hafa heyrt af fjölmörgum
fyrirtækjum, sem kosið hafi að halda árs-
hátíð ytra, upp á síðkastið. Ekki sé þó laust
við að menn hafi áhyggjur af því jiegar
flestir ef ekki allir starfsmenn fyrirtækja
séu komnir í sömu flugvélina. „Eg veit ekki
hvað tryggingafélög þar sem menn eru
með atvinnurekstrartryggingar segja um
slíkt. Ég tel þó æskilegt að skipta hópnum
svo að allir fljúgi ekki með sömu vél.“
WASHINGTON OG SKÓLABRÚ
Starfsmenn Prentsmiðjunnar Grafík
fóru einnig lengra en venjulega á árshátíð
að þessu sinni. Fyrir þremur árum var
ákveðið að halda árshátíð erlendis. Ferð-
inni var reyndar frestað tvisvar, meðal ann-
ars vegna þess að starfsmenn vildu safna
meiru og ekki voru allir sammála um
hvert skyldi halda. Nú varð hins vegar úr
að hópur slarfsmanna ásamt mökum fór til
Washington. Örn Geirsson, formaður
starfsmannafélags fyrirtækisins, segir fyr-
irtækið styrkja starfsmenn með sérstök-
um árshátíðarsjóði og hafi upphæðinni ver-
ið varið í árshátiðarkvöldið og ferðir til og
frá ílugvelli. Þeir, sem ekki fóru utan, nýttu
sinn skerf af sjóðnum í árshátíðarkvöld á
Skólabrú. Örn segir vel hafa tekist til með
STARFSMANNAMÁL
GRÁTT SVÆÐISKATTSINS
Gera má ráb fyrir aö í meöalstóru fyrir-
tæki gæti 5 þúsund króna framlag
fyrirtækis fyrir hvern starfsmann þótt
eölilegt en 20 þúsund krónur þættu
líkast til meira en skattayfirvöld gætu
samþykkt athugasemdalaust.
Nokkrir starfsmamanna Vöku-Helgafells, ásamt mökum, fyrir utan Holiday Inn
hótelið í Washington. Fró vinstri: Jón Jóhannesson, Ulfar Þórðarson, Hanna Dóra
Hjartardóttir, Þór Hreiðarsson, Dagný Diðriksdóttir, Alma Isleifsdóttir, Pétur Már
Olafsson og Ragnheiður Þorsteinsdóttir. FV-myndir: Geir Ólafsson.
árshátíðina vestra og sumir hafi lengt dvöl-
ina um nokkra daga en flestir verið þrjár
nætur í Washington. ,Árshátíðin tókst vel
og það var mjög gaman þótt ferðalagið
væri svolítið langt fyrir ekki lengri dvöl.“
Örn segir ferðir sem þessa auka sam-
heldni og stemningu meðal starfsmanna
en skemmtilegra hefði verið ef fleiri hefðu
séð sér fært að fara rneð. Hann vonast til
að árshátíðarferðin til Washington verði
upphaf að nýrri hefð í þeim efnum.
SKATTURINN OG SKEMMTANIR
Samkvæmt reglugerð um frádrátt frá
tekjum af atvinnurekstri, telst kostnaður
við árshátíð, jólagleði eða sambærilegar
samkomur starfsmanna frádráttarbær frá
skatti enda sé kostnaður hæfilegur miðað
við einstök tilefni og heilstætt á árinu.
Hjónin Elín Bergs og Ólafur Ragnars-
son, bókaútgefendur og eigendur
Vöku-Helgafells. „Starfs-
mannafélag Vöku-Helga-
fells átti frumkvæðið að
þessari ferð.
Fram til þessa
hafði fyrirtækið
haldið árshátíðir
sinar á höfuð-
borgarsvæðinu -
en að þessu
sinni vildu starf-
smenn „fara
eitthvað” og það
varð heldur
betur úr.”
Starfsmannaferðir eru því að einhverju
leyti frádráttarbærar frá skatti.
Endurskoðandi sem vel þekkir til, segir þó
af og frá að ílug og hótel geti verið innifal-
ið í frádráttarbærum kostnaði. Ekki sé
hægt að segja annað en að um grátt svæði
sé að ræða. Leiðbeiningar skorti um
viðmiðunarmörk. Þegar upplýsinga var
leitað hjá skattayfirvöldum voru svörin þau
að unnt væri að draga skemmtanir frá
skatti að vissu marki. Hversu há upphæðin
má vera, ræðst af stærð fyrirtækis og fjöl-
da starfsmanna. Ef um umtalsverðar upp-
hæðir er að ræða, kann svo að fara að
skatturinn líti á slíkt sem laun til starfs-
manna og þar með skattskyldar tekjur.
Gera má ráð fyrir að í meðalstóru fyrirtæki
gæti 5.000 króna framlag fyrirtækis fyrir
hvern starfsmann þótt eðlilegt en 20.000
króna framlag þætti lík-
ast til meira en skatta-
yfirvöld gætu sam-
þykkt athugasemda-
laust. S9
47