Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 25
Hjónin, Ingvar Helgason og Sigriður Guðmundsdóttir, reka
ásamt sonum sínum Guðmundi, Helga og Júlíusi Vífli, bíla-
umboðin Ingvar Helgason og Bílheima. Ingvar Helgason hf.
hafði þá sérstöðu á erfiðleikaárunum í bilgreininni að hagn-
ast að einhverju ráði á meðan afkoma flestra annarra um-
boða var í járnum eða sýndi talsvert tap. Fjölskyldan flytur
inn um 25% allra fólksbila til landsins.
Volkswagen og Land Rover helstu bílamerki þess. A síðasta ári
seldi Hekla Hitaveitu Reykjavíkur dýran rafbúnað frá Mitsubishi í
orkuverið að Nesjavöllum. Velta Heklu kemur því að nokkrum
hluta frá öðrum vörum en bílum og er nauðsynlegt að hafa það í
huga við samanburð á veltu bílaumboðanna.
Hek,“'
ferðabíla - en SVR er meðal annars með Scania strætisvagna í
notkun; auk vagna frá Völvo og Renault
Þótt Heklumenn hafi ærna ástæðu til að fagna góðu gengi hafa
ekki alltaf verið jólin hjá fyrirtækinu. Það lentí, eins og flest bíla-
umboðanna, í nokkru niðurstreymi á árunum ‘92 til ‘94. En spyrnt
var við fótum og fyrirtækið var endurskipulagt. Það var tálgað nið-
ur og erfiðar ákvarðanir teknar; gripið var meðal annars tíl upp-
UM17 MILUARÐA
sagna starfsfólks. Aðgerðirnar báru árangur.
Þegar á árinu 1995 skilaði Hekla um 65 milljóna
hagnaði fyrir skatta; hagnaðarlínan hefur síðan
lyft sér til efri hæða.
I endurskipulagningunni, snemma árs ‘94,
seldi Ingimundur Sigfússon, stjórnarformaður
fyrirtækisins, systkinum sínum þremur, Sigfúsi,
Sverri og Margrétí, sinn hlut í fyrirtækinu. Ingi-
mundur er núna sendiherra íslendinga í Bonn.
Sala Ingimundar kom mjög á óvart í viðskiptalíf-
inu. Rúmu ári síðar, vorið 1995, seldi Margrét
sinn þriðjungs hlut tíl Tryggingamiðstöðvarinn-
ar og við sætí hennar í stjórn tók Gunnar Felix-
son, forstjóri þess fyrirtækis. Bræðurnir Sigfús
og Sverrir eru því aðaleigendur fyrirtækisins -
ásamt Tryggingamiðstöðinni. Þess má geta að
faðir þeirra systkina, Sigfús Bjarnason, stofii-
aði Heklu. Fyrirtækið hefur í áratugi verið mjög
þekkt í viðskiptalífinu. Lengi vel voru
FRÉTTASKÝRING; Jón G. Hauksson.
Flest bílaumboðanna skiluðu hagnaði fyrir skatta árið 1996. Ætla má að á
síðasta ári hafi hagnaðurinn aukist nokkuð þar sem sala nýrra fólksbíla jókst
þá um 26%. Takið eftir að sex staerstu bílaumboðin eru með um 83%
markaðarins.
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
25