Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 65

Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 65
STJÓRNUN Varðandi nýjungar í rekstri segir Ingi Már að stöðugt sé verið að skoða vaxtarfæri, annars vegar í verslun og hins vegar í afurða- stöðvum. Staða kaupfélagsins í verslun á svæðinu er sterk og í framtíðinni er hugsanlegt að setja upp verslanir á fleiri stöðum. Síðustu ár hefur verið aukning í sauðljárslátrun hjá kaupfélaginu. „Við horfum líka til þess að auka við mjólkurframleiðsluna og bæta við okkur í ostagerðinni,“ segir Ingi Már. Eins og mörg önnur kaupfélög er Kaupfélag Héraðsbúa aðili að Búr ehf. Það er innkaupafyrirtæki sem kaupir af birgjum og þjónustar verslanir kaupfélaganna, Olíufélagið hf., Nóatúnsbúð- irnar og einstaka kaupmenn. „Viðskipti eru öll í gegnum tölvur og pappírslaus. Þetta hefúr sparað heilmikla vinnu hjá verslunarstjórum og auk þess náum við lægra innkaupsverði en ef við stæðum einir og sér,“ segir Ingi Már. Ingi Már er kvæntur Kristrúnu Kjartansdóttur, ljósmóður og hjúkrunarfræðingi frá Siglufirði. Hún starfar sem hjúkrunarfræð- ingur á Heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum. Saman eiga þau tvo syni, 7 og 9 ára, og auk þess á Ingi Már son á sextánda aldursári.S!] PÁLMIHJÁ KASK Fyrir sex árum var fiskvinnslan aðskilin frá KASK. Síðan hefur Pálmi úrelt mjólkursamlagið og lagt áherslu á rekstur verslana og sláturhúss. □ álmi Guðmundsson hefur verið kaupfélags- stjóri Kaupfélags Austur-Skaftfellinga á Höfn frá árinu 1992. Hann er 39 ára gamall, fæddur og uppalinn í Borgarnesi. Pálmi er alinn upp við hlið kaupfélagsins þar sem faðir hans var starfsmaður Kaupfélags Borgfirðinga í ein 56 ár. En hann nýtur þess líka að hafa starfað töluvert innan einkageirans. Eftír nám í Samvinnuskólanum í Bifröst árið 1980, þá 21 árs, réð hans sig til Bolungarvíkur þar sem versl- unarveldi Einars Guðfinnssonar stóð með blóma. „Ég lærði mikið á þessum þremur árum í Bolung- arvík. Ég fékk mörg tækifæri og ábyrgð sem versl- unarstjóri. Fyrirtæki Einars var stórmyndarlegt einkafyrirtæki. Ég kynntist honum og hans fjöl- skyldu nokkuð vel sem voru einkar ánægjuleg kynni. Fjölbreytnin í versluninni var mikil og þjón- ustustíg mjög hátt. Fjölskyldan var umsvifamikil í sjávarútvegi og hafði mikinn metnað fyrir sitt fyrir- tæki og bæjarfélag. Ég tel að það sé margt Iikt með kaupfélagsrekstri og rekstri fyrirtækis eins og Einars Guðíinnssonar að því leytí tíl að það axlaði mikla ábyrgð í bæjarfélaginu sem stærsti atvinnu- rekandinn á staðnum," segir Pálmi. Að þremur árum liðnum lá leið Pálma suður til Selfoss til Vöruhúss KÁ sem þá var nýtekið tíl starfa. Hann varð vöruhússtjóri, þá 24 ára gamall. „Ég hafði mjög frjálsar hendur í rekstri Vöru- hússins. Við fórum t.d. út í eigin innflutning. Stórhugur var mikill og við sóttum stíft á viðskiptavini af höfuð- borgarsvæðinu, svo og sumarhúsafólk. Það urðu miklar breyting- ar í rekstri KÁ með tilkomu Vöruhússins og mjög skemmtilegur andi ríkti í félaginu. Við lögðum áherslu á að hafa alltaf eitthvað um að vera, svo sem tílboð, vörukynningar, tískusýningar og fleira, til að laða að viðskiptavini," segir Pálmi. Pálmi og Jjölskylda bjuggu á Selfossi í fjögur ár og stóð til að vera lengur en þá var honum boðið að taka við verslun- arstjórn í Kaupstað í Mjódd eftír að KRON keypti fyrirtækið. „Mér var falið að setja á stofn verslun á annarri hæð hússins sem þá var óbyggð. Hraðinn á framkvæmdum var ótrúlegur og oft var unnið sólarhringunum saman. Við opnuðum þarna deildarskipta sérverslun með þekkt- um vörumerkjum. Við vorum í beinni samkeppni við sérverslanir og Hagkaup, sem þá var að opna í Kringlunni." Svo skemmtilega vill til að Pálmi heitínn Jónsson í Hagkaup og móðir Pálma Guðmundsson- ar voru systrabörn. I Kaupstað starfaði Pálmi í mun skemmri tíma en hann ætlaði sér í fyrstu. „Mér leist ekkert á blikuna þegar Kaup- staður og Mikligarður voru sameinaðir því það þýddi að grundvellinum var kippt undan Kaup- stað miðað við þau mark- mið sem við lögðum upp með. Erfiðleikar voru í rekstri KRON sem seinna urðu til þess að kaupfélag- ið hættí starfsemi," segir Pálmi. Hann ákvað að hætta og sneri sér að mark- aðsstarfi fyrir Japis í stuttan tíma. Hann hafði þá þegar ákveðið að fara í háskóla- nám og varð Álaborg í Dan- mörku fyrir valinu. Þaðan lauk hann BS í hagfræði eftír þriggja ára nám. Jafnhliða náminu vann ég ýmis konar ráðgjafarstörf og setti meðal annars á stofn bónusverslun fyrir KB í Borg- arnesi. Einnig vann ég við að skipuleggja þjónustumiðstöðina Hyrnuna í Borgarnesi," segir Pálmi. Þegar námi lauk settist hann í stól kaupfélagsstjórans á Höfh. KASK er eitt af yngri kaupfélögum landsins, stofnað árið 1920. Velta KASK á síðasta ári var um 1,2 milljarðar. Ef veltan í fisk- vinnslufyrirtækinu er lögð við er heildarvelta tæpir 3 milljarðar. KASK rekur alhliða verslun á Höfn, útíbú á Djúpavogi og Fagur- hólsmýri, sumarverslun í Skafta- felli, verslun með byggingavörur Palmi Guðmundsson 3Q < , stJori Kaupfélags V , kauPfél« KASK. Menntaðuf ha^Íð'r'Skaftfe,,in ,'T.1Örku. Er stiórnarform2rgB ** Di Hornafirði - en KAStr ' 7 Borgeyjar fyrirtæki. SK 3 tePa« helming í , VERSLUN 0G KJOTVINNSLA Velta KASK á síöasta ári var um 1,2 milljaröar. Velta Borgeyjar, sem KASK á tæpan helmingshlut í, er þar fyrir utan. Áhersla KASK er á verslun og kjötvinnslu. 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.