Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 43
BÍLAR
um upp á þann veg að þeir greiði 20% út
og greiði svo af bílnum í samræmi við af-
föll af honum á ákveðnum tíma.”
Olafur Helgi segir það aldrei hafa
verið markmið Lýsingar að gleypa
markaðinn. „Við vitum að það tekur
tíma að kynna þetta. Þessi leið hefur það
umfram aðra fjármögnunarkosti að hlut-
fallstala kostnaðar er í flestum tilfellum
lægri því þessi kostur felur ekki í sér
stimpilgjald. Við getum stillt upp jöfnum
greiðslum yfir tímabilið. Hefðbundin lán
gera ráð fyrir hærri greiðslum fyrst og
lækka svo niður fyrir það meðaltal sem
við höfum verið að stilla upp. Við heim-
ilum að sjálfsögðu einnig innáborgun
hvenær sem er án refsigjalda.”
Ólafur Helgi segir bílasamningana
mjög hentuga fyrir þá sem tímabundið
hafi ekki mikla greiðslugetu, til dæmis
fyrir fólk sem sé nýkomið úr námi eða
standi í húsbyggingu en vilji þó vera á
nýlegum bíl.
„Þetta eru aðilar sem ekki eru með
mikla greiðslugetu næstu tvö til þrjú
árin en vilja forðast viðhald á bíl og vilja
hafa hann í ábyrgð. Bílasamningar Lýs-
ingar eru góður kostur fyrir þetta fólk.”
Hann segir einnig unnt að greiða lánin
upp að fullu líkt og hefðbundin bílalán,
óski menn þess. Lýsing er hins vegar
skráður eigandi bílsins á meðan á
samningnum stendur.
Það hefur sætt nokkurri gagnrýni að
fjármögnunarfyrirtækið sé skráður eig-
andi, á sama hátt og þegar eignarleigu-
fyrirtækin voru að hefja starfsemi sína
1986 og 1987. Þá settu menn það mjög
fyrir sig að vera ekki skráðir eigendur
að gröfunni eða rútunni eða að því tæki
sem aflaði þeim tekna.”
Viðhorf til bílasamninga á eftir að
breytast á sama veg líkt og erlendis, að
mati Ólafs Helga. „Við teljum að eftir
nokkur ár þyki ekki endilega nauðsyn
að vera skráður eigandi að því tæki sem
er til daglegra nota. Til skamms tíma
átti Póstur og sími öll símtæki í landinu
en enginn tók eftir því. Sá hugsunar-
háttur að vera ekki endilega skráður
eigandi að bílnum, ljósritunarvélinni
eða öðru mun festa sig í sessi frekar en
orðið er.”
Er bílasamningur, að hans dómi,
betri en bankalán eða eingöngu annars
konar valkostur?
„Við ætlum nú ekki að fara að keppa
við bankana. Við teljum okkur ekki geta
það því þeir hafa aðgang að mun ódýr-
AÐ ERLENDRI FYRIRMYND
„Þess vegna hugsuöum viö máliö á
sama hátt og er algengast erlendis.
Byggt er á þeirri meginreglu að einstak-
lingar þurfi ekki aö mynda hreina eign í
þeirri bifreið sem þeir hafa til afnota
hverju sinni,” segir Olafur Helgi Ólafsson,
framkvæmdastjóri Lýsingar.
ara fjármagni en við. Hins vegar teljum
við okkur vinna þá í samkeppninni með
því að vera fljótari til svars og með lipr-
ari þjónustu.”
Rekstrarleiga er annars konar val-
kostur sem Lýsing býður. Hún byggir á
þeirri hugmynd að unnt sé að skila bíln-
um í lok ákveðins leigutíma og þá laus
allra mála. Leigutaki greiðir ákveðnar
leigugreiðslur á samningstíma og inni-
falið í þeim er oftast allt venjubundið við-
hald og viðgerðir.
„Umboðsaðili tækisins eða rekstr-
arleigan hefur tilhneigingu til að láta
viðskiptavininn greiða tækið töluvert
niður fyrir áætlað endursöluverð til að
skapa sér ekki fjárhagslega áhættu.
Þar af leiðandi verður slíkur samning-
ur talsvert dýr. Við teljum að rekstrar-
leigusamningar eigi ekkert erindi til
einstaklinga heldur einungis til mjög
stórra fyrirtækja sem eru með fjölda
bíla, sem þörf er á að skipta út með
reglulegu millibili, og kæra sig ekki
um að þurfa að reka eigið bílaverk-
stæði eða stunda bílasölu alltaf af og
til.” 33
Allra þinna
og
aðferö
Bílar lélla okkur lífið og vciia
okkur margvíslega ánægju.
En góður bíll kostar sitt og því þarf
að vega og meta mismunandi kosti
varðandi lán og greiðslur.
Það er einfalt og öruggt að fá Bílalán
hjá Sjóvá-Almennum. Þú færð svar
við lánsbeiðni án tafar og ekur burt
á nýja bílnum samdægurs.
Kynntu þér Bílalán Sjóvá-Almennra hjá
bílaumboðum eða bílasölum og berðu það saman
við önnur lán sem standa þér til boða.
Niðurstaðan er þér í hag.
SJOVAniluALMENNAR
Traustur þáttur í tilverunni
43