Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 68
Þorgeir B. Hlöðversson, 39 ára kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Þingeyinga, hefur verið kaupfélagsstjóri þar í sex ár. Hann
hefur sett vöruþróun í matvælaframleiðslu á oddinn.
ÞORGEIR Á HÚSAVÍK
Hann hefur lagt áherslu á útboð í rekstrinum, vöruþróun
og nýsköpun. Kauþfélagið stendur til dæmis að fyrirtækj-
unum Aldin og Björk sem eru í timburvinnslu.
□ lsta kaupfélag landsins er Kaupfélag Þingeyinga á
Húsavík, stofnað 1882. Þar komu saman margir fram-
sýnir menn úr héraði, meðal annarra feðgarnir Pétur
Jónsson og Jón Sigurðsson frá Gautlöndum, en svo skemmti-
lega vill til að þeir eru forfeður núverandi kaupfélagsstjóra,
Þorgeirs B. Hlöðverssonar, í móðurætt. Og uppruninn segir til
sín víðar því faðir Þorgeirs var félagskjörinn endurskoðandi
kaupfélagsins í rúm 40 ár. „Það var þvi oft gantast með það þeg-
ar ég tók við að ég hefði þetta í blóðinu,” segir Þorgeir.
Þorgeir er fæddur árið 1959 og uppalinn á Björgum í Kinn,
í 40 km fjarlægð ffá Húsavík. Að loknu
búfræðinámi á Hvanneyri gerðist hann
bóndi með föður sínum og bróður.
Framleiðslutakmarkanir í landbúnaði
gerðu það að verkum að ekki var nægj-
anlegt svigrúm fyrir þá þijá í búskapn-
um og tók Þorgeir sig því upp og fór í
háskólanám í búvísindum á Hvanneyri.
Þaðan lauk hann BS prófi árið 1987.
Að námi loknu var Þorgeir ráðinn
sláturhússtjóri hjá Kaupfélagi Þingeyinga. Því starfi sinnti
hann í sjö ár til ársins 1994 en það ár var hann ráðinn kaupfé-
lagsstjóri.
Aðspurður um helstu áherslur í daglegum rekstri kvaðst
Þorgeir leggja áherslu á hversu áhugavert verkefni það er að
skapa fyrirtæki með jafn merka sögu, góða framtíð. Við ráðn-
ingar starfsfólks leggur Þorgeir upp úr því að ráða til stjórnun-
arstarfa, vel menntað fólk með innlenda og erlenda menntun.
„Með því blandast reynsla þeirra sem lengi hafa starfað hjá
kaupfélaginu og nýjar hugmyndir yngri starfsmanna,” segir
Þorgeir
Það hefur verið gæfa Kaupfélags Þingeyinga að þróast með
tímanum og á síðastliðnum áratug hefur rekstur kaupfélagsins
verið verulega endurskipulagður. Boðnir voru út vissir rekstr-
arþættir og lögð áhersla á verslun á heimasvæði og á úrvinnslu
landbúnaðarafurða. Húsavíkur-jógúrt og Húsavíkur-hangikjöt
eru dæmi um vörumerki framleiðsluvara Kaupfélags Þingey-
inga sem neytendur þekkja.
A undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að vöru-
þróun í matvælaframleiðslu. „Við erum að sjá afrakstur af
þessari vinnu núna. Iðnaðarmenn okkar í matvælaframleiðslu
hafa unnið til ijölda verðlauna í matvælakeppnum innanlands
og utan. Nú er komið að okkur stjórnendunum að skapa þess-
um og öðrum starfsmönnum skilyrði til þess að þekking þeirra
fái að blómstra. Hin síðari ár hefúr mikil þekking verið færð inn
í fyrirtækið og miklum ijármunum verið ráðstafað í vöruþróun-
arstarf til að tryggja undirstöður þess” segir Þorgeir.
Nýlega bárust þær fréttir að Kaupfélag Þingeyinga hefði
keypt tæplega 44% hlut Landsbankans í Kjötumboðinu hf. sem
er í eigu á annars tugs sláturleyfishafa. Kaupin eru gerð til að
sfyrkja markaðsstöðu félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Þor-
geir segir þó að ekki standi til að Kaupfélag Þingeyinga eigi all-
an þennan hlut áífam heldur sé unnið að því að dreifa eignar-
aðild í Kjötumboðinu enn frekar, líklega með aukningu hluta-
fjár í fyrirtækinu.
Kaupfélag Þingeyinga rekur ekki fiskvinnslu en á hlut í
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Jafnframt því að kaupfélagið hefur
tekið þátt í hefðbundnum atvinnugreinum, hefur félagið farið
út í nýsköpun í atvinnulífi.
Vinnsla á innfluttum harðvið er ný starfsemi í héraðinu.
Kaupfélagið er stærsti hluthafinn í Aldin hf. „Þetta er ákaflega
skemmtileg starfsemi og umhverfisvæn sem er jákvætt hug-
tak í markaðssetningu í dag. Við kaupum trjáboli frá Norðaust-
urhluta Bandaríkjanna og flytjum þá til Húsavíkur. Þar eru þeir
sagaðir niður í borðvið og þurrkaðir í sérbyggðum þurrkklef-
um og síðan fluttir út til meginlands Evrópu til frekari vinnslu.
I mínum huga er þetta einfaldlega útflutningur á orku í þessum
umbúðum,” segir Þorgeir.
Til lfekari úrvinnslu á hluta af afurðum Aldins hf. var fyrir-
tækið Björk ehf. stofnað. Niðursögun og
þurrkun trábolanna er verkefni Aldins hf.
en fyrirtækið Björk ehf. vinnur úr afurðun-
um. Framleiðsla Bjarkar er parket, innrétt-
ingaefni og fleiri afúrðir. I vígsluathöfn
Bjarkar hafði iðnaðarráðherra á orði að til
marks um stórhug Þingeyinga væri þetta í
annað sinn á árinu sem hann kæmi til að
vígja nýja starfsemi. Fyrra tilfellið var þeg-
ar hann vígði Aldin hf. í aprílmánuði. Fyrir-
tækin Aldin hf og Björk ehf hafa skapað Húsvíkingum ný at-
vinnutækifæri og þar starfa nú 14 manns.
Hvað varðar frekari framþróun í timburiðnaði á Húsavik þá
var skrifað undir samstarfssamning við ijárfestingarskrifstofu
iðnaðarráðuneytisins. Að þeim samningi standa að hálfu
heimaaðila, Aldin, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og Húsa-
víkurbær. Markmið samningsins er að leita að erlendum fjár-
festum til að útvíkka starfsemi í timburiðnaði með útflutning á
fullunnu timbri í huga. Einnig er verið að vinna að því að auka
hlutafé Aldins hf. innanlands.
Á Húsavík standa enn gömlu timburhúsin sem reist voru
VORUÞROUN OG NYSKOPUN
Neytendur þekkja vörumerki eins og
Húsavíkur-jógúrt, Húsavíkur-hangikjöt
og Naggana frá Húsavík. Velta KÞ er
yfir 2 milljaröar á ári. Þetta er elsta
kaupfélag landsins, stofnaö áriö
1882. Þaö er því 116 ára.
68