Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 46
Farið var í skoðunarferð um Washington og Hvíta húsið, þinghúsið og helstu minnismerkin skoðuð. Hér er hópurinn við The
Viet-Nam Memorial, minnismerkið um þá bandarísku hermenn sem féllu í stríðinu í Víetnam.
ÁRSHÁTÍÐIR í ÚTLÖNDUM
Þaö fœrist í vöxt ad árshátíöirfyrirtækja séu haldnar í útlöndum. Oft styrkja
fyrirtœkin þessar hátídir; enda þjapþa þær starfsmönnum saman. En hvad má
styrkurinn vera hárgagnvart skattayfirvöldum? Þaö er á reiki.
Örshátíðarferðir til útlanda verða sí-
felll vinsælli og hefur hver ilug-
vélarfarmurinn á fætur öðrum af
Islendingum með árshátíðarkjólinn og
sparijakkafötin í ferðatöskunni farið utan
að undanförnu. Unnt hefur verið að bjóða
sérkjör fyrir ákveðnar ferðir á fyrirfram
ákveðnum tíma. Sem dæmi má nefna að
nýlega fóru á annað hundrað manns frá
þremur fyrirtækjum til Washington DC
(ekið frá Baltimore) í þriggja nátta ferð og
var meðalverð á mann tæp þrjátíu og tvö
þúsund fyrir flug, gistingu, skoðunarferð
og ferðir til og frá flugvelli.
Að sögn Höllu Hauksdótt-
ur á söluskrifstofu Flug-
leiða er einnig vinsælt að
fara til London, Amster-
dam og Halifax í ferðir sem þessar. Segja
má að árshátíðir í útlöndum séu vinsælast-
ar ffá janúar og út mars, enda er verð þá
gjarnan hagstæðast.
AÐ FRUMKVÆÐI STARFSMANNA
Oft eru það starfsmannafélög fyrirtækj-
anna sem hafa frumkvæði að því að undir-
búa jarðveginn fyrir utanlandsferðir sem
þessar. Akveðin upphæð er tekin af laun-
um starfsmanna mánaðarlega og lögð til
hliðar, þá iinna þeir ekki eins fyrir kostnað-
inum þegar árshátíðardagurinn rennur
upp. Einnig leggja fyrir-
tækin gjarnan eitthvað af
mörkum, annaðhvort til
ferðarinnar og/eða bjóða á
árshátíðina sjálfa.
Starfsmenn Vöku-Helgafells skelltu sér
til Washington á árshátíð að þessu sinni og
þótti ferðin takast mjög vel.
Starfsmannafélag Vöku-Helgafells átti
ífumkvæðið að þeirra ferð, að sögn Ólafs
Ragnarssonar framkvæmdastjóra. Fram til
þessa hafði fyrirtækið haldið árshátíð sína
á höfuðborgarsvæðinu. Hugmyndir voru
nú um að „fara eitthvað“ og það varð held-
ur betur úr. Upphaflega stóð til að fara til
Parísar en svo var stefnan tekin í þveröfuga
átt þegar spennandi tilboð barst frá Flug-
leiðum og haldið til Washington. ,Árshá-
tíðin tókst mjög vel. En á undan var farið í
skoðunarferð um borgina. Við skoðuðum
hæstarétt og Hvíta húsið, þinghúsið og
helstu minnismerkin og annað sem til-
heyrir í Washington. Allir voru mjög
TEXTI:
Ólöf Rún Skúladóttir
46