Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 49
Þessar myndir sýna fimm unga menn sem útskrifuðust saman úr Menntaskólanum í Reykjavík árið 1971. Aftari röð
frá vinstri: Hjörleifúr Kvaran borgarlögmaður, Geir H. Haarde fjármálaráðherra, og Jón Þór Sverrisson læknir. Fremri
röð f.v. Hannes Sigurðsson læknir í Bandaríkjunum og Steinn Jónsson Iæknir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Myndin vinstra megin er tekin vorið 1996 og sýnir þessa sömu menn 25 árum seinna í sömu stellingum. Gárungarn-
ir segja að milli myndanna séu bæði 25 ár og 25 kíló.
Foreldrar þeirra voru Anna Stein-
dórsdóttir, f. 1914, og Tomas Haarde
símafræðingur, f. 1901, en Tomas var
ættaður frá Rogalandi í Noregi og
kom til íslands á árunum fyrir stríð til
að setja upp sjálfvirkan síma og bjó
hér til dauðadags 1962. Auk þessa átti
Geir eina mun eldri hálfsystur í Nor-
egi sem hét Lilly Kinn en hún lést
1995.
UNGLINGURINN GEIR
Geir ólst upp við starf og leik í
Reykjavík á sjötta og sjöunda ára-
tugnum meðan Islendingar voru í
óðaönn að koma stríðsgróðanum í
lóg og byggja upp höfuðborgina
hraðar en áður hafði þekkst. Geir
gekk í hefðbundna skóla í sínum bæj-
arhluta, Melaskóla og Hagaskóla, og
spilaði fótbolta á gamla Framnesvell-
inum þar sem Vesturbæjarskólinn
stendur nú.
Dægurmenningin tók stöðugt
stærra rými í lífi fólks og þannig er
hægt að skipta æskuárum Geirs niður
í rokktímabilið, gullöld Bítlanna og
síðar hippatímann en Geir útskrifaðist
úr Menntaskólanum í Reykjavík árið
1971, ári á eftir Davíð Oddssyni. Sam-
ferðamenn Geirs frá
menntaskólaárunum
voru nokkrir þeirra sem
í dag eru félagar hans í
stjórnmálum, eins og
Davíð, Kjartan Gunnarsson og fleiri
þungavigtarmenn í pólitík.
HAGFRÆÐINGURINN GEIR
Næstu árin dvaldi Geir að mestu í
Ameríku við nám í þremur skólum.
Fyrst lauk hann BA-prófi í hagfræði
frá Brandeis University árið 1973, síð-
an MA-prófi í alþjóðastjórnmálum frá
John Hopkins University 1975 og loks
lauk hann MA-prófi í þjóðhagfræði frá
University of Minnesota árið 1977.
Meðan Geir var í námi starfaði
hann sem blaðamaður á Morgunblað-
inu á sumrin eða frá 1972 tíl 1977 en
þegar náminu lauk og hann kom al-
kominn heim fór fyrir honum eins og
fleiri íslendingum að hann tók að sér
fleiri en eitt starf. Annars vegar var
hann hagfræðingur í alþjóðadeild
Seðlabankans en hins vegar fékkst
hann við stunda-
kennslu í Háskólanum
og kenndi í viðskipta-
og hagfræðideild og
var einnig um árabil
viðloðandi erlenda fréttadeild Morg-
unblaðsins. Auk þessa var hann önn-
um kafinn í félagsmálunum og var m.a
formaður Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna frá 1981 tíl 1985.
AÐSTOÐARMAÐURINN GEIR
Geir starfaði í Seðlabankanum tíl
1983 þegar hann varð aðstoðarmaður
fiármálaráðherra og gegndi hann því
starfi árin 1983 tíl 1987. Á þessum
árum stýrði Steingrímur Hermanns-
son ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks. Það gekk á ýmsu í
umræddri ríkisstjórn og þannig kom
það í hlut Geirs að vera aðstoðarmað-
ur tveggja fiármálaráðherra á einu og
sama kjörtímabilinu. Fyrri hluta tím-
ans var Albert Guðmundsson ráð-
herra en eftír rúmlega tvö ár í embættí
var gerð mikil uppstokkun í stjórninni
sem meðal annars fól það í sér að Al-
bert varð iðnaðarráðherra en Þor-
steinn Pálsson, þáverandi formaður
flokksins, tók við embætti fiármála-
ráðherra.
TEXTI:
Páll Ásgeir Ásgeirsson
UPP MEÐ HNÍFINN, GEIR
Á sínum yngri árum þótti hann meö harðari frjálshyggjumönnum en árin hafa eitthvað
mýkt hann í þeim efnum. Talsmenn frjálshyggjunnar í Sjálfstæðisflokknum eru að von-
um mjög ánægðir með skipan hans í embætti og munu vænta nokkurs af framgöngu
hans við niðurskurö ríkisútgjalda þó að ólíklegt verði að teljast að þess sjái stað í
fyrstu fjárlögum hans sem jafnframt verða þau seinustu fyrir kosningar.
L.
49