Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 96

Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 96
FÓLK spurninni og það hefur ekki al- veg tekist. Við höfum á þeim tíma sem LGG hefur verið á markaðnum selt jafn mikið og áætlað var að selja á heilu ári.” Að sögn Leifs hefur drykk- urinn verið í þróun alllengi en víða erlendis hafa mjólkur- heilsudrykkir líkir honum náð miklum vinsældum, sérstak- lega í löndum Mið-Evrópu, Þýskalandi og Sviss, en einnig í Finnlandi og Japan. Leifur segir helstu viðbrögð Mjólkursamsölunnar við harðnandi samkeppni frá ávaxtasafa og kolsýrðu vatni hafa verið að bjóða kaupmönn- um aukna þjónustu og í raun- inni aðstoða þá við að selja meiri mjólk. Sterkasta vopnið í því er tölvustýrð uppstilling í mjólkurkælinum sem tekur mið af raunverulegum sölutöl- um í þeirri verslun og tryggir þannig hámarksframlegð. „Þetta, ásamt afsláttartil- boðum sem eru tengd kynn- ingum og sérstökum uppstill- ingum, hefur notið vinsælda og með þessu aukum við sýnileika á þeirri mjólkurvöru sem ætti að seljast best.” Það er oft talað um barátt- una um hilluplássið sem mikil- vægan þátt í markaðssetningu og Leifur segir að Mjólkursam- salan hafi ekki farið varhluta af því og aukin þjónusta við upp- stillingu og uppröðun sé mikil- vægur þáttur í þjónustunni við kaupmenn. Leifur fór í Tækniskólann og lærði rekstrarfræði en fór síðan til framhaldsnáms í Bandarikjunum og lauk MBA- prófi í alþjóðaviðskiptum frá Johnson and Wales University. Þegar heim kom gerðist hann framkvæmdastjóri hjá Nýju sendibílastöðinni og gegndi því starfi þangað til fyrir fjórum mánuðum. Leifur hefur áhuga á fótbolta og sækir í útivist og sund með fjölskyldunni utan vinnutíma en kona hans heitir Inga Nína Matthíasdóttir og þau eiga einn son, Matthías, 7 ára. BU Leifur Örn Leifsson, sölustjóri Mjólkursamsölunnar, lærði alþjóðaviðskipti í Ameríku. FV-mynd: Kristín Bogadóttír. LEIFUR ÖRN LEIFSSON, M JÓLKU RSAMSÖLU N NI 0g tel að mitt starf felist fyrst og fremst í sam- stillingu krafta margra. Hér er rekin stór sölu- deild og þegar ég segi stór söludeild á ég við magn frekar en fólksfjölda. Við erum með sölumenn sem fara í verslanir og aðra sem taka á móti pönt- unum gegnum síma, símsvara, bréfsíma og með EDI sem eru pappírslaus viðskipti. Við þetta bætast svo sam- skipti við hin ýmsu mjólkur- samlög sem framleiða vörur sem við sjáum svo um að mark- aðssetja, selja og dreifa. í flest- um tilvikum er MS með vörur sem hafa skamman líftíma og því er brýnt að kraftar allra séu stilltir saman og engir hnökrar verði þar á,” segir Leifur Örn Leifsson, sölustjóri Mjólkur- samsölunnar. Mjólkursamsalan hefur ný- lega stigið nýtt skref inn á markaðinn með heilsudrykkn- um LGG + en að sögn Leifs er LGG í rauninni skammstöfunin á ákveðnum mjólkursýrugerli sem er uppistaðan í drykknum en plúsinn táknar ýmsa aðra gerla og hollefni sem drykkur- inn inniheldur að auki. Um- ræddur drykkur er framleidd- ur í Mjólkursamlaginu í Búðar- dal og ekið þaðan til Mjólkur- samsölunnar. Þar vestra leggja menn nótt við dag til þess að mæta kröfum markaðarins sem kallar á LGG+. „Viðtökurnar hafa farið fram úr okkar björtustu vonum og satt að segja höfum við átt í erf- iðleikum með að anna eftir- TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON 96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.