Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1998, Side 45

Frjáls verslun - 01.04.1998, Side 45
breyttan matseðil yfir aðal ferðamanna- tímann, aó sögn Óskars Húnfjöró hótel- stjóra, og hægt er að fá hvers kyns smá- rétti og heitan mat á hótelinu. „Við höfum viljað vera með metnaðarfullan matseðil og leggjum áherslu á steikurnar og höfum meira að segja farið þá leið að láta „fram- leiða" sérstaklega fyrir okkur naut til að fá safaríkar, „amerískar" steikur. Til þess að þetta mætti takast fengum við Jóhannes bónda á Torfalæk til að ala fyrir okkur nautin svo við gætum boðið það gæðakjöt sem við vildum hafa og hefur ræktunin tekist mjög vel." Mat- og vínseðlar hótelsins eru úr end- urunnum pappír, gerðir af listakonunni Þór- dísi Sveinsdóttur í Borgarnesi. En það eru ekki aðeins matseðlarnir sem er óvenju- legir á Sveitasetrinu því lyklakippurnar með herbergislyklunum eru úr hornum, sem Óskar fékk í sláturhúsi. Hornin eru lökkuð með íbrenndum herbergisnúmerun- um. í anddyri Sveitasetursins er vísir aó fuglasafni og í veitingasalnum eru nokkrir uppstoppaðir hausar af hreindýrum, nauti og fallega hyrndum hrúti. „Við vonumst til að geta myndað hér smátt og smátt vísi að safni sem getur orðið gestum okkar til ánægju um leið og þetta styrkir þá ímynd sem við ætlum okkur að halda á lofti, ímynd Sveitasetursins." í nánasta umhverfi Sveitasetursins er að finna margvíslega þjónustu, sundstað, pósthús, banka, efnalaug og verslanir og þar er einnig upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn. Vilji menn bregða sér í veiði er einfalt að nálgast veiðileyfi á Blönduósi og Veislugestir í matsal Sveitasetursins - á árshátíð starfsmanna sýslumannsembætta á Norðurlandi vestra. þeir, sem vilja stunda hestamennsku, geta fengið hesta á hestaleigu þar. UPPLÝSINGAR Á HEIMASÍÐU Sveitasetrið hefur tekið tæknina í þjón- ustu sína og nú geta þeir, sem áhuga hafa, skoðaó heimasíðu hótelsins. Þar geta þeir lesið um þjónustuna á hótelinu, afþreyingu í nágrenninu og skoðað myndir af her- bergjum, veitingasal og bar, svo nokkuð sé nefnt. Bóka má gistingu í gegnum heima- síðuna en hana er að finna á vefnum: http://www.hunfjord.is en netfang hótels- ins er info@hunfjord.is Setntá, Aðalgötu 6 Blönduósi Sími: 452 4126 Fax: 452 4989 f ' IH 5. 6. 1 í ' ''■m |W N ] mm t. ■ ■ 2. » i jBjl. | s. ; CII' ' i ' : i ' r i i i JBB Það er rómantískur blær yfir herbergjunum á Sveitasetrinu. 45

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.