Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1998, Síða 66

Frjáls verslun - 01.04.1998, Síða 66
STJORNUN og aðra með fóðurvörur til bænda, bensínstöðvar og olíusölu til báta fyrir Esso, brauðgerð, sláturhús og kjötvinnslu. Árið 1992 var rekstur fiskvinnslunnar aðskilinn frá rekstri kaupfélagsins með stofnun Borgeyjar hf. I dag á kaupfélagið tæplega helming hluta- fjár í Borgey hf. og er Pálmi stjórnarformaður. Mjólkursamlagið var úrelt fyrir tveimur árum og síðan er áherslan á verslun og sláturhúsarekstur. KASK rekur eitt af ijór- um sláturhúsum landsins sem hafa ESB-vottun. Ný kjötpökkunar- stöð var tekin í notkun haustið 1996 þar sem er lögð áhersla á út- flutningsverkefni í dilkakjöti. Kjötvinnsla í neytendapakkningar á erlendan markað er í þróun innan fyrirtækisins. „Við erum í samstarfi við verslunarkeðju í Belgíu sem selur okkar afurðir. Við njótum aðstoðar dótturfélags Islenskra sjávaraf- urða í Frakklandi, enda er markaðsreynsla þeirra mikil í sölu sjáv- arafurða. Eftir slátrun haustsins 1996 seldum við 76 þúsund neyt- endapakkningar á einu ári. Við höfum ekki grætt á þessu ennþá en við höfum skilað bændum góðu verði og öðlast dýrmæta reynslu. Nú er ljóst að það borgar sig fyrir bændur að framleiða á erlendan markað við hlið innlendu framleiðslunnar. Það sem á vantar er að ná vinnslukostnaðinum niður til þess að bæta sam- keppnisstöðuna gagnvart öðrum á þessum markaði," segir Pálmi. Sláturhúsið tekur á móti sláturfé af mjög stóru svæði, allt frá Suð- urlandi og upp á Hérað. Pálmi segir að sauðfjárræktin eigi í mikl- um vanda og hann telur að útflutningur á kjöti verði lykilatriði fyr- ir sauðfjárbændur í framtíðinni. „Við getum ekki keppt við Ný-Sjálendingana í verði en íslenska kjötið seljum við sem villibráð. Við erum að vinna að því að okkar kjöt fái vistvænan stimpil. Sala á dilkakjöti í neytendapakkningum á sérvalda markaði er eina raunhæfa leiðin til að koma á stöðugri eftirspurn eftir íslensku dilkakjöti erlendis og þar með skila hærra verði til framleiðenda,“ segir Pálmi. Pálmi er kvæntur Elínu Magnúsdóttur fótaaðgerðarfræðingi og eiga þau samtals fimm börn. Elín hefur að mestu verið heimavinnandi í gegnum árin. „Það er eflaust ekki auðvelt að vera gift manni í svona starfi eins og ég er í,“ segir Pálmi hlæjandi. „Starfið tekur mikinn tíma frá fjölskyldunni og því reynir á þolinmæði eiginkonunnar.“ 33 ÞOROLFUR A SAUÐARKROKI Hann hefur lagt þunga áherslu á sjávarútveginn í rekstri KS - en kaupfélagið er með afar breiða starfsemi. Hann hallast að hlutafélagaforminu sé horft til framtíðar. aupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki, stofnað 1889, er annað stærsta kaupfélag landsins með veltu upp á 5.3 milljarða. Þórólfur Gíslason hefúr stýrt kaupfélaginu síð- ustu tíu árin. Hann er 45 ára gamall, fæddur og uppalinn á Reyð- arfirði. Samvinnuprófi lauk hann frá Bifröst og stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð. Aður en hann réðst til Kaupfé- lags Skagfirðinga var hann kaupfélagsstjóri á Þórshöfn í tíu ár. Kaupfélag Skagfirðinga rek- ur verslanir á Sauðárkróki, að Ketilási í Fljótum, á Hofsósi og í Varmahlíð. Skagafjörður er stórt landbúnaðarhérað og rekur kaupfélagið sláturhús, kjöt- vinnslu, mjólkursamlag og gras- kögglaverksmiðju til að þjónusta landbúnaðinn. Einnig rekur kaup- félagið fóðurstöð fyrir loðdýra- ræktina sem er nokkuð stór bú- grein í Skagafirði. Kaupfélagið á og rekur bílaverkstæði, vélaverkstæði og rafmagnsverkstæði sem þjóna bæði kaupfélaginu og almenningi í héraði. Síðan er kaupfélagið hluthafi í landflutningastarfsemi eftir að það tók höndum saman við einkaaðila í flutningum. Stærsta rekstrareining kaupfélagsins er í sjávarútvegi en það á 2/3 i sjávarútvegsfyrirtækinu Fisk- ■ r /ira kaupfélagsstjon Þórólfur Gíslason, Sauóárkróki, befur o^iVað slórveldi í siávanitvegi- iðjan Skagfirðingur. Uppgjör þess er inni í samstæðureikningi kaupfélagsins. Aður átti og rak kaupfélagið Fiskiðju Sauðárkróks sem átti frystihús og hlut í útgerð. Það var rekið í rúm 40 ár sem hlutafélag þrátt fyrir að það væri alfarið i eigu kaupfélagsins. Fyr- ir þremur árum var fiskvinnsla við Skagafiörð sameinuð undir einn hatt og er nú eitt af öflugri fiskvinnslufyrirtækjum landsins. Að sögn Þórólfs er sífellt verið að leita að nýjum tækifærum til að styrkja stoðir í atvinnulífinu í héraði. „I samstarfi við sveitarfélögin og Rafmagnsveitu ríkisins er kaupfélagið að undirbúa stofnun og rekstur raforkuvers við Vill- inganes í Skagafirði. Þetta mál er rétt að komast á skrið núna. Kaupfélagið er ekki stór eigandi í þessu samstarfi," segir Þórólfur. Kaupfélag Skagfirðinga er ennþá mjög bland- að fyrirtæki sem er jákvætt, að mati Þórólfs. „Önnur kaupfélög hafa verið að sérhæfa sig í ýmsum greinum en við erum enn í mjög breiðri atvinnustarfsemi. Við höfum ekki far- ið í neina sérhæfingu nema að því leyti að vöxtur fyrirtækisins er í sjávarútvegi. Fyrir 10 árum var hlutur sjávarútvegsins í veltu um 10% en nú er sjávarútvegurinn um það bil helmingur af veltunni. Einnig hefur ver- ið aukning í mjólkurframleiðslunni. A síð- ustu ijórum árum hefur hún aukist um milljón lítra og hefur kaupfélagið nú um 9% af heildarmjólkurframleiðslu landsins.“ segir hann. Hvað varðar framtíð kaupfélagsins segir Þórólfur að á síðustu árum hafi vægi landbúnaðar dregist saman. „Sauðfjárframleiðslan hefur minnkað og því er verið að auka áherslur á öðrum sviðum, svo sem sjávarútvegi. Fyrirtæk- ið á rúm 10 þúsund þorskígildi í ís- lenskri lögsögu og hefur það nærri þre- faldað veiðiheimildir sínar á síðustu árum. Vinnsla hefur að mestu verið í bolfiski, rækju og skel. Við höfum mik- inn hug á nýrri atvinnustarfsemi hér í 66
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.