Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1998, Síða 80

Frjáls verslun - 01.04.1998, Síða 80
ARKITEKTÚR Það er alvörumál að velja rétta litinn á skrifstofuna fyrir sumarið. Fyrir miðju er Helgi Magnússon, framkvæmdastjóri Hörpu. Vinstra megin er Vigfús Gíslason og hægra megin Ólafúr Már Sigurðsson, báðir sölustjórar. Veggir skrifstofunnar eru rauðir og gulir og nú geta menn spáð í sálarástand mannanna út frá því sem við höfum sagt hér um liti og áhrif þeirra á mannssálina. FV-mynd: Geir Ólafsson. HAFA LITIR ÁHRIF Á SKAP STARFSMANNA? Svarið er:Já. Engu aö síður hefur sú litagleði, sem ríkir á heimilum, ekki náö inn í fyrirtækin - nema ac) mjög litlu leyti. eð hækkandi sól færist líf í flesta. Við tökum allt í einu eftir því að kominn er tími til að gera breyt- ingar á heimilinu og í fyrirtækinu. Aukin birta leiðir í ljós að veggirnir, sem við héldum að væru í ágætu ásigkomulagi, eru orðn- ir óhreinir og málningin farin að láta á sjá. Það er augljóst að hressa þarf upp á umhverfið og auðveldast er að gera það með því að grípa málningarrúlluna og fá sér nokkrar dósir af fallegri málningu. En hvernig á að mála skrif- stofuna? Flestar skrifstofur eru, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, í ljósum, hvítum eða grámuskulegum litum. Þótt litagleði hafi rikt undanfarin ár inni á heimilunum virðist sú gleði ekki hafa náð inn í fyrirtækin nema að mjög litlu leyti. En skyldi ekki allt eins vel mega mála skrifstofuna í fallegum, glaðlegum litum sem hressa upp á sálartetr- ið eins og stofuna heima? Jú, svo sannarlega og það sem meira er, hafa ætti í huga að litir hafa mismun- andi áhrif á skap fólksins á skrifstofunni, rétt eins og á heimilinu. Lítum á hvaða áhrif litirn- ir hafa og veltum um leið fyrir okkur, hvort ekki ætti að beita litatækninni innan fyrirtækisins og ná með því fram þeim áhrifum sem litirnir geta haft á mann- skepnuna. Hvers vegna ekki að mála í ró- andi, grænum lit í fyrirtæki þar sem mik- SÁ GULIHRESSIR Sagt er að guli liturinn sé hressandi og endurnærandi. ið er um að vera og fólki hættir til að finna fyrir streitu eða í rauðum lit þar sem ekk- ert gerir til þótt hjartslátturinn aukist ögn? Sagt er að guli liturinn sé hressandi og endurnærandi og henti vel í tiltölulega dimmum herbergjum. Appelsínugulur lit- ur er ekki síðri og okkur hlýnar um hjarta- ræturnar í appelsínugulu herbergi. Þess vegna getur verið gott að mála í þessum lit húsnæði þar sem oft er opið út og getur gustað um starfsmennina. Rauði liturinn örvar. Hann fær hjartað til að slá hraðar og örvar meltinguna. Kannski væri ekki úr vegi að kanna hvort nota mætti rauðan lit á einhvern eða alla veggi mat- eða kaffistofu fyrirtækisins. Ef mikið er af myndum eða fallegum munum sem stilla þarf fram til sýnis á skrifstofunni er ráð að mála vegginn á bak við þessa hluti í purpuralit eða jafnvel í íjólubláum lit. Bláa litnum er sagður fylgja kuldi svo gott er að nota hann á herbergi þar sem við viljum ekki að fólk eyði allt of miklum tíma frá vinnunni ef eitthvað er þá að marka alla þessa litasálfræði. Grænn Iitur er róandi, algjör andstæða við þann rauða, og hentar vel alls staðar þar sem streita ríkir eða mönnum hættir til að æsa sig. Því er vel hugsanlegt að mála fundarherbergið í grænum lit til þess að koma í veg fyrir óþarfa árekstra á fyrirtæk- isfundunum. Hvitt og svart eru litir sem ekki mega gleymast þrátt fyrir allt. Hvíti liturinn er ágætur á herbergishluta eða innréttingar sem við viljum draga athygli að og sama gildir reyndar um svarta litinn. Það er því allt í lagi að nota þessa liti með hinum þar sem við á. En lítið nú í kringum ykkur í fyr- irtækinu og kannið hvort ekki sé kominn tími til að breyta um liti. Riki þar deyfð grípið þið til sterku litanna en til þess græna þar sem ekki skaðar að draga úr spennunni. Aðra liti notið þið svo í bland eftir því sem við á á hveijum stað. ffl ABK TEKTUR bwm 80
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.