Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1998, Page 84

Frjáls verslun - 01.04.1998, Page 84
ARKITEKTUR Bílheimar - Ingvar Helgason: í hús- inu eru límtrésrammar frá Límtré hf., utanhússklæðning írá Borgar- nesstáli. Loft eru sérhönnuð úr steinullarplötum frá Steinullarverk- smiðjunni. Gluggar og hurðir frá Gluggasmiðjunni hf. Bílheimum eru seldir bílar frá General Motors sem lagði áherslu á að gott verk- stæði væri á staðnum fyrir bílana. Mikið er lagt upp úr að verkstæðið sé snyrtilegt, flísalögð gólf og starfsmenn i hreinum göllum, sem sagt fallegt verkstæði sem tengist sölu nýrra og notaðra bíla.” Þegar hannað er inn í ákveðinn kostn- aðarramma velja menn ódýrara efni og ein- faldari útfærslur, nema þar sem um er að ræða sérstaka áherslupunkta, til dæmis í tengslum við inngang í fyrirtækið. Þetta þýðir þó ekki að sparað sé á kostnað gæða heldur fylgst með kostnaðinum og aðhalds gætt. Egill segir að mönnum sé að verða æ ljósara að lóðir umhverfis fyrirtæki skipti miklu máli og sérhanna þurfi þær, enda eru þær hluti af ímynd fyrirtækisins. Að sögn Egils hefur markmið arkitektastof- unnar verið að beina efniskaupum til ís- lenskra aðila. Þannig hefðu til dæmis verið sett upp loft hjá Ingvari Helgasyni, hönnuð í samvinnu við Steinullar- verksmiðjuna. Loftin hefðu reynst afskap- lega ódýr en gefa þó góða hljóðeinangrun. Öll úrvinnsla á byggingarstað er mikil- væg og um leið samstarf verktaka og hönnuða. Oftast eru verkin boðin út, en al- gengara er þó nú en áður að fyrirtæki bjóði ekki út byggingu húsnæðis heldur velji ákveðinn verktaka til verksins. Jafnvel sé til í dæminu að verktakar komi inn í Jjár- mögnunina að hluta til. „Mestu máli skipt- ir þó að ailir aðilar séu jákvæðir og sam- starfið gangi vel. Aður fyrr gætti mun meiri togstreitu milli hönnuða og verktaka en nú tíðkast. Menn eiga sér sameiginlegt markmið: Að skila góðu verki. Um er að ræða hópvinnu og eftir því sem verktak- ar og hönnuðir vinna oftar og meira saman myndast ákveðin tengsl og skilningur milli þessara aðila sem skilar sér í góðu verki. Vönduð hönn- un og góðir verktakar skila sér strax í lægri byggingarkostnaði og síðar í minna viðhaldi og loks góðu vinnuumhverfi í fyr- irtækinu. SU EINFALDARI ÚTFÆRSLUR Þegar hannað er inn í ákveðinn kostnaðarramma velja menn ódýrara efni og einfaldari útfærslur. Þetta þýðir þó ekki að sparað sé á kostnað gæða. 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.