Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 6
RITSTJÓRNARGREIN
„AFKOMAN VELDUR VONBRIGÐUM"
Mitt í góðærinu, þegar erlendir ferðamenn hafa aldrei
verið fleiri og Islendingar sjaldan verið duglegri við að
svala ferðaþorsta sínum, er hluthöfum í Flugleiðum - sem
og starfsmönnum - ekki skemmt. Félagið tapaði tæplega
1,6 milljörðum á fyrstu sex mánuðum ársins, hundruðum
milljóna umfram það sem gert hafði verið
ráð fyrir. Eigið fé félagsins rýrnaði um 25%
á sama tíma. Félagið er þó enn fjárhagslega
sterkt. Þótt fyrstu sex mánuðirnir gefi ekki
rétta mynd af útkomu ársins - afkoman
batnar yfirleitt á sumrin, annasamasta tím-
anum - er útlit fyrir nokkurt tap af félaginu
á þessu ári. Gripið hefúr verið til aðgerða
til að lyfta félaginu úr lágflugi lélegrar af-
komu enda er ljóst að áframhaldandi stór-
tap stefiiir félaginu í voða.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hluthafar
og starfsmenn Flugleiða horfast í augu við
taprekstur. A síðustu tíu árum hefur félag-
ið að jafhaði tapað annað hvert ár af reglu-
legri starfsemi sinni og á þessum tíma nemur uppsafnað
tap af henni um 818 milljónum á verðlagi síðasta árs. I
ljósi þess að gengi flestra flugfélaga í Evrópu hefur verið
gott á árinu blasir sú stóra spurning við hluthöfúm Flug-
leiða hvort rekstrargrundvöllur fyrirtækisins sé einfald-
lega brostínn!
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um nauðsyn þess
að fyrirtæki hagnist Hagnaður er í raun spurning um líf
eða dauða fyrir fyrirtæki. Aðeins þau sem hagnast geta
staðið á eigin fótum. Hagnaður er enn fremur nauðsynleg-
ur til að laða til sín flárfesta; menn leggja ekki fé í fyrir-
tæki nema von sé um ágóða af því. Og fyrirtæki, sem ekki
dregur tíl sín fjármagn á hlutabréfamarkaði, á erfitt með
að ráðast í miklar og dýrar fjárfestingar; til dæmis að
kaupa nýjar flugvélar. Stöðugar fjárfestíngar eru öllum fyr-
irtækjum nauðsynlegar. Hagnaður skiptír starfsmenn ekki
síður máli en hluthafana; aðeins hagnaður tryggir atvinnu-
öryggi þeirra og aðeins hagnaður skapar ný störf. Það er
auðvitað ástæðan fyrir því að rúmlega 2.200 starfsmönn-
um Flugleiða er vart svefnsamt núna. Þeir spyrja sig hvort
mörgum þeirra verði sagt upp á næstu
misserum til að verja fyrirtældð og koma
þannig í veg fyrir að allir starfsmenn þess
missi vinnuna!
Stjórnendur Flugleiða hafa gripið til ráð-
stafana til að draga úr áframhaldandi tapi.
Vonandi reynast þær árangursríkar. Mikið
er í húfi! Það er hins vegar svo að á siðustu
tíu árum hafa oftar en ekki verið boðaðar
sérstakar aðgerðir og nýjar leiðir til að bæta
afkomuna og því spyrja hluthafar sig hvort
aðgerðirnar núna beri tilætlaðan árangur.
Það vekur raunar athygli margra hve lítið
ber á nýjum andlitum í röðum helstu
stjórnenda félagsins í hvert sinn sem fyrir-
tækið boðar nýjar leiðir til að bæta reksturinn!
Fræðimenn hafa oft velt því fyrir sér hverjar séu orsak-
ir erfiðleika í rekstri fyrirtækja. Eru þær utanaðkomandi?
Eru þær óheppni? Eða er um slælega stjórnun að ræða?
Flestir eru á þeirri skoðun að til Iengdar sé ekki hægt að
kenna um óheppni í rekstri heldur stjórnuninni. Þetta hef-
ur verið orðað á þá leið að orsaka rekstarerfiðleika sé ekki
að leita í ársreikningum heldur í ákvörðunum stjórna.
Þegar allt kemur tíl alls eru hluthafar og stjórnir fyrir-
tækja hinir raunverulegu siglingafræðingar félaga - og ör-
lagavaldar. Hluthafar fá meira en talsvert um það ráðið
hvort þeim sé rótt eða ekki, hvort „afkoman valdi von-
brigðum'' eins og nú er í tísku að Iýsa viðbrögðum við tap-
rekstri.
Jón G. Hauksson
;
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 59. árgangur
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson - AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir -
BLAÐAMAÐUR: Páll Ásgeir Ásgeirsson - LTÓSMYNDARAR: Geir Ólafsson og Kristín Bogadóttir -
UMBROT: Ágústa Ragnarsdóttir. - ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf. - RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA
Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 561-7575, fax: 561-8646 -ÁSKRIFTARVERÐ: 3.315 kr. fyrir 6.-11. tbl. -10% lægra áskrift-
arverð ef greitt er með kreditkorti. - LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. nema bókin 100 stærstu sem er á 1.995,- -
DREIFING: Talnakönnun, hf., sími 561 7575 - FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf. -
LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi elhi og myndir.
6