Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 65

Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 65
itt verkefni hjá Ferða- málaráði felst í að sjá um reglubundna könnun meðal erlendra ferða- manna. Þetta er liður í stöðugri upplýsingasöfnun um ferða- markaðinn sem felst í að mæla samsetningu hans eftir árstíð- um, ferðahegðun, væntingum, þörfum, útgjöldum, eyðslu- háttum og viðhorfum," segir Oddný Oladóttir landfræðing- ur og starfsmaður Ferðamála- ráðs. Umrædd reglubundin könnun var fyrst gerð árið 1996 í tilraunaskyni en ástæðan var sú að mönnum þótti skorta upplýsingar um hegðun og ferðavenjur erlendra ferða- manna á Islandi. Fram til þess tíma hafði slík upplýsingasöfn- un ekki verið á verkefnaskrá Ferðamálaráðs. Fyrstu tilraun- ir hafa mælst það vel fyrir að ákveðið hefur verið að fram- lengja verkefnið í umsjá Odd- nýjar um þijú ár. Fyrst í stað var ferðaárinu skipt í ijóra hluta eftir árstíðum og niðurstöður könnunarinnar flokkaðar eftir því en nú hefur tímabilunum verið fækkað í þijú. Hér er um brottfararkönn- un að ræða og eru spyrlar að störfum í Leifsstöð allan árs- ins hring. Þótt úrtakið sé valið með hendingaraðferð er áhersla lögð á að það endur- spegli nokkurn veginn rétta þjóðernasamsetningu ferða- manna sem til landsins koma. Reynt er að fá svör frá a.m.k. 2,5-3,0% þeirra erlendu ferða- manna sem til landsins koma á hverjum tíma. ísland hefur enn sem komið er þá sérstöðu meðal þjóða að vandlega er fylgst með ferðum útlendinga til og frá landinu. Útlendingaeftirlitið hefur þann starfa með höndum og hefur ávallt handbærar nákvæmar tölur um tjölda erlendra ferða- manna skipt eftir þjóðerni. „Þetta eru dýrmætar tölur og þær eru notaðar í okkar sam- anburði og okkar úrtak vegið á móti þeim. Þegar við Islending- Oddný Óladóttir landfræðingur starfar hjá Ferðamálaráði við gerð og úrvinnslu kannana. FV mynd: Kristín Bogadóttír. ODDNÝ ÓLADÓTTIR, FERDAM ÁLARÁÐI ar verðum að fullu þátttakendur í Schengen samkomulaginu er hætt við að eitthvað dragi úr þessari upplýsingasöfiiun í takt við minnkað vegabréfaeftirlil. Það væri miður.“ Oddný sagði að ítarleg sundurflokkun svaranna eftir þjóðerni, markaðssvæðum, þjóðfélagsstöðu, (kyni, aldri, starfsstétt, menntun og tekj- um) tilgangi og tegund ferðar gerði það að verkum að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í niðurstöðunum hverju sinni. Það eru fyrst og fremst aðilar og fyrirtæki í ferðaþjónustu sem nýta sér þessar upplýsingar en skýrslur og niðurstöður eru sendar til áskrifenda þrisvar á ári gegn greiðslu. „Þetta er fjárfrekt verkefhi og við lítum á áskrift hags- munaaðila sem stuðning í verki við þetta nauðsynlega starf. Okkar draumur er að gera reglubundna könnun meðal innlendra ferðamanna eins og erlendra og kannanir meðal einstakra markhópa og byggja þannig upp ítarlegan gagna- grunn sem getur komið ferða- þjónustunni að gagni við mark- aðssetningu, áætlanagerð og skipulagningu.“ Oddný lauk B.S. prófi í landafræði og kennsluréttinda- námi frá HÍ. Síðan stundaði hún nám við McGill háskóla í Montreal og lauk þaðan MA prófi en lokaritgerð hennar fjallaði um efnahagsleg áhrif ferðamanna. Oddný er í sam- búð með Pétri Jónssyni arki- tekt og eiga þau tvö börn. Utan vinnutíma sinnir Oddný fjöl- skyldu og áhugamálum en til þeirra telur hún ferða- mennsku, kvikmyndir og sam- félagsmál ýmiss konar. SU TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.