Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 63
Hótel Saga við Hagatorg.
ýmiss konar veislur, bæði stórar og smáar. Mjög hentugt þykir að
sérinngangur er í Sunnusal. Salnum má skipta í tvennt og gæti þá
verið móttaka í öðrum hlutanum á meðan haldinn væri fundur eða
kvöldverður í hinum.
Ráðstefnugestir, langt að komnir og þá jafnvel frá öðrum lönd-
um, kunna vel að meta þægindin sem Hótel Saga býður upp á og
auðvelda þeim að njóta dvalarinnar til hins ýtrasta. Það kemur sér
vel þegar stuttur tími er milli funda að á hótelinu er banki, ferða-
skrifstofa, minjagripaverslun og blómaverslun. Heilsurækt, gufu-
bað, hárgreiðslu- og rakarastofa auka enn á þægindi og ánægju
gestanna.
Söludeild Hótel Sögu sér um allan undirbúning og uppsetningu
funda og ráðstefna. Erla Nanna Jóhannesdóttir fer þar fyrir hæf-
um hópi starfsmanna en hún á að baki áralanga reynslu á þessu
sviði. Þá er Úlfar Þór Marinósson tæknistjóri hótelsins og sér til
þess að tæknihlið ráðstefnanna sé óaðfinnanleg og er skipuleggj-
endum til ráðgjafar og aðstoðar fyrir fundi og á meðan þeir standa
yfir.
Vinsælir veitingastaðir
Ekki má gleyma veitingastöðum hótelsins, Grillinu og Skrúði,
þar sem mikið er lagt upp úr faglegum vinnubrögðum. Grillið, á
efstu hæð Sögu hefur frá upphafi verið með bestu veitingastöð-
um í Reykjavík. Þar njóta gestirnir góðrar þjónustu, frábærra veit-
inga og óviðjafnanlegs útsýnis. Skrúður er þægilegur veitinga-
staður á jarðhæðinni, eins konar garðskáli þar sem boðnar eru
léttar veitingar allan daginn en hlaðborð í hádegi og á kvöldin.
Yfirbragð ráðstefnusala Hótel Sögu hefur breyst að undan-
förnu en þjónustan við gesti er sú sama og áður: Gesturinn er æv-
inlega í fyrirrúmi og allt gert til þess að hann njóti dvalarinnar á
hótelinu sem best hvort sem hann kemur þangað til að sitja fundi
eða ráðstefnur, gista eða taka þátt í vinafagnaði.
1 InoteC^
1 M<?a í
Hótel Saga Sími: 525 9900
v/ Hagatorg Fax: 525 9909
107 Reykjavík
Góð aðstaða erfyrir fundar- og ráðstefnugesti fyrir framan fundar-
salina á annarri hæð Hótels Sögu.
Fullkominn búnaður er fyrir túlka sem oft þurfa að starfa í tengsl-
um við fjölþjóðlegar ráðstefnur.
Stjórnendur Hótels Sögu ráða ráðum sínum. Frá vinstri: Sigurður
Asgeirsson veitingastjóri, Hrönn Greiþsdóttir hótelstjóri, Erla
Nanna Jóhannesdóttir sölufulltrúi , Úlfar Þór Marinósson tœkni-
stjóri og Hanna María Jónsdóttir markaðsstjóri.
AUGLYSINGAKYNNING
63