Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 26
□ únar Sigurðsson fæddist í Hafnar-
firði 12. ágúst 1955. Hann er son-
ur hjónanna Sigurðar M. Péturs-
sonar bifreiðastjóra og Ragnhildar Þórunn-
ar Oskarsdóttur húsmóður.
Rúnar deilir afinælisdegi sínum með
ýmsum þekktum Islendingum og má þar
nefha Steindór Steindórsson frá Hlöðum,
Thor Vilhjálmsson rithöfund, Þorstein
Gylfason heimspeking, Einar Þorvarðar-
son markmann og Svein Andra Sveinsson
lögmann.
Sé litið nánar á ættir hans kemur í ljós
að auk þess að vera Hafnfirðingur í marga
ættliði má rekja föðurætt hans vestur að
Isafjarðardjúpi. Pétur Magnússon, afi Rún-
ars bjó í Súðavík, í húsi sem gekk undir
nafninu Gubbaraborg og um var ort:
í Gubbaraborg þeir gera svo
taka í nefið á við tvo.
Móðurætt Rúnars er austan úr Holtum.
Afi hans í móðurætt, Oskar Guðmundsson
bryggjuvörður í Hafharfirði, var frá Þver-
læk en einnig má sjá bæjarnöfii eins og
Hreiður, Skammbeinsstaði og Krók sem
allir eru í Holtunum.
Rúnar er þriðji í röð fimm systkina. Elst
er Aðalheiður Fanney gjaldkeri, gift Garð-
ari Svavarssyni tæknifræðingi, þá Óskar
Rúnar Sigurðsson stofnaði Tœknival og hefurgertþað að stórveldi í tölvubransanum á íslandi.
FV-myndir: Geir Ólafsson.
RISINN í TÆKNIVAL
Rúnar Sigurdsson, framkvæmdastjóri Tœknivals, komst í
fréttirnar í sumar þegar 34% klutur í fyrirtœkinu skipti um eigendur.
Kauþandinn var erkikeþþinautur Tæknivals, Oþin kerfi.
Þór rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík,
kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur og
yngri en Rúnar er Sigurður Magnús, hús-
gagnasmiður og þjónn.
Fimmta systkinið er síðan hálfbróðirinn
Snorri Leifsson sem er fæddur 1964 og býr
í Noregi.
ALINN UPP VIÐ KRÖPP KJÖR
Rúnar og systkini hans ólust upp við
Lækjarkinn í Hafnarfirði sem er ofarlega
við Lækinn. I þann tíð var Hafnarljörðut'
ekki nema brot af því sem hann er í dag,
Norðurbærinn varla tíl og grónir Gaflarar
þekktu alla íbúana og viðurnefni þeirra.
Það settí skugga á uppeldi Rúnars og
allra systkinanna að faðir þeirra lést af slys-
förum árið 1961 aðeins 38 ára að aldri.
Rúnar fór snemma að vinna og bar út
blöð strax og hann hafði aldur til.
Það var erfitt verkefni fyrir ekkju að
koma fimm börnum til
manns á þessum tíma og
því var reynt að létta á
heimilinu eftir megni.
Rúnar var þess vegna að
heiman á sumrin allt frá 7 ára aldri. Fyrst í
Glaumbæ á Vatnsleysuströnd, sem var
nokkurskonar sumarbúðir fyrir börn, og
síðan í Krýsuvík þar sem var einhvers kon-
ar vinnuskóli. Síðan tók við hefðbundin
sveitadvöl á sumrin og Rúnar var í sveit í
mörg sumur, bæði í Hvammi í Holtum í
Rangárvallasýslu og einnig þar sem heitir
Dalur II á Fljótsdalshéraði.
Honum líkaði afskaplega
vel að vera í sveit og hefur
reynt að gefa sínum eigin
börnum kost á því þótt ekki
TEXTI:
Páll Ásgeir Ásgeirsson
26