Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 30
MARKAÐSMAL
HJÁLPUM ÞEIM
ungir íslendingar fylgjast vel með og
tóku vel við og sérstaklega mun hafa
verið vinsælt hjá ungu skólafólki í
próflestri að kýla sig gegnum vökunæt-
ur og álag prófanna með orkudrykkj-
um. Sérstaða orkudrykkjanna felst
nefnilega í því að þeir innihalda mikinn
þrúgusykur sem gefur orku samstund-
is en einnig efhi sem heitir guarana og
er náttúrulegt efni unnið úr jurtum og
inniheldur koffein. Koffein hefur
örvandi áhrif eins og allir kaffidrykkju-
menn þekkja en orkudrykkirnir bæta
um betur og innihalda ginseng sem
margir telja orkuveitandi og allra
meina bót.
Magic orkudrykkur sat einn að
markaðnum um hríð og innflytjandinn,
Sól-Víking seldi vel og algengt verð á
250 ml dós var 130-150 krónur. Það
þýðir að lítraverðið var 500-600 krónur
sem er ríflegt miðað við t.d. bjór.
Samkeppnin lét ekki á sér standa og
í júní í sumar kom Egils-Orka á mark-
aðinn. Þetta er íslenskur drykkur fram-
leiddur í Ölgerðinni en nokkuð frá-
brugðinn að því leyti að hann er í 500
ml plastflöskum með skrúfuðum
tappa. I kjölfarið mun verðið hafa lækk-
að því Egils bauð hálfan lítra á líku
verði og fékkst fyrir fjórðung úr lítra af
Magic. Slagorð Egils manna er: Meira
af öllu og er þar vísað til þess að Egils-
Orka inniheldur meira guarana, meira
koffein og fleiri hitaeiningar en aðrir
orkudrykkir.
Þrír orkudrykkir keþþa um hylli almennings. Þeir eiga það sameiginlegt að vera sneisafullir af
hitaeiningum og innihalda koffein ogjurtaefni sem margir telja vera á ystu nöffyrir börn.
FV-myndir: Geir Ólafsson.
A YSTU N0F?
0RKUDRYKKIR
Viltu súþa á HIV? Margir hrukku í kút þegar
rauöar ogsvartar dósir með áletruninniH.LV birt-
ust í búöum. Hvað er á seyöi?
□ rkudrykkir hafa undanfarin
misseri náð mjög auknum vin-
sældum í Evrópu, ekki síst á
Norðuriöndum, og ísland hefur ekki
látið sitt eftir liggja. Þegar rætt er um
orkudrykki er átt við sérstaka drykki
sem eiga að gefa orkuinnspýtingu í
meira mæli en aðrir svaladrykkir.
Margir þekkja íþrótta- _____
drykki eins og Gatora-
de, Aquarius, Isostar og
marga fleiri en sala
þeirra hefur einkum
beinst að íþróttamönn-
SAGANABAK
VIÐ HERFERÐINA
Páll Ásgeir Ásgeirsson
um í keppni. Slíkir drykkir innihalda
orku en einnig vítamín og steinefni
sem líkaminn missir undir miklu álagi.
Magic var fyrstur orkudrykkja á
markaðnum. Hann er framleiddur í
Svíþjóð og auglýsingarnar um litlu
bláu dósirnar vöktu fljótlega athygli.
Markhópurinn var einkum yngra fólk í
________ starfi og leik og áhersl-
an lögð á þá einstæðu
eiginleika sem drykk-
urinn byggi yfir; gæfi
orku beint í æð.
Það kom á daginn að
Þriðji orkudrykkurinn kom svo á
markaðinn í júlí í sumar og hefur vak-
ið töluverða athygli. Þetta er H.I.V.
Flestir tengja HIV við umræðu um al-
næmi og alnæmissjúklinga sem í
fljótu bragði sýnist vera langan veg frá
orkudrykk sem margir tengja við heil-
brigði og íþróttaiðkun.
Dósin utan um H.I.V. er kolsvört
með rauðum, áberandi stöfum og fylg-
ir smokkur með svo augljóst er að
lögð er áhersla á tengsl drykkjarins
við sjúkdóminn illræmda. Drykkur-
inn er framleiddur í Austurríki og þeg-
ar nánar er að gáð er nafn hans
skammstöfun fyrir: Help Innocent
Victims, eða Hjálpum saklausum fórn-
arlömbum. Þarna er auðvitað átt við
fórnarlömb alnæmis eða eyðnisjúk-
linga en að sögn er markmið fr amleið-
endanna að vekja umræður um eyðni
30