Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 31
Friðþjófur Adolf Ólason, markaðsstjóri Sól-Víking.
Jón Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri hjá
Ölgerð Egils Skallagrímssonar.
eða alnæmi og einhver hluti hagnaðar
mun renna til samtaka þeirra.
DJÖRF MARKAÐSSETNING
„Yið vorum dálítið tvístígandi yfir
því í fyrstu hvort við ættum að taka
þennan drykk inn á íslenska markað-
inn. Fyrstu viðbrögð margra eru að
sumu leyti neikvæð svo við vissum að
við þyrftum að kynna
þetta vandlega,“ sagði
Friðþjófur Adolf Óla-
son markaðssljóri hjá
Sól-Víking hf.
„Þetta er óneitan-
lega djörf markaðs-
setning en þegar mað-
ur fer að hugsa málið
og íhuga hinar já-
kvæðu hliðar þess að
vekja umræður um
jafn brýnt mál og þetta þá ákváðum
við að láta slag standa.
Það að smokkur fylgir dósinni eyk-
ur aðgengi ungs fólks að nauðsynleg-
um vörnum."
Sól-Víking hf. hefur farið að dæmi
framleiðandans ytra og lætur íslensku
alnæmissamtökin njóta góðs af hluta
ágóðans af sölu Sól-Víking á H.I.V.
drykknum. Sól-Víking eru tregir til að
gefa upp hve stór hluti rennur til sam-
takanna en það munu vera 5% af hluta
fyrirtækisins í söluverðinu. Það gætu
því verið 2-3 krónur af hverri dós en al-
gengt verð á þeim er 120-140 krónur.
EKKIVIÐ HÆFIBARNA
Næringarfræðingar hafa látið í ljósi
það álit að börn ættu ekki að drekka
orkudrykki eins og þá sem hér um
ræðir og vísa þá til örvandi efna eins
og koffíns og ginsengs sem þeir inni-
halda. Á dósinni með H.I.V. er tekið
fram að þeir sem hafa kaffeinóþol,
sykursjúkir og börn ættu ekki að
neyta drykkjarins. Engar slíkar merk-
ingar eru á hinum drykkjunum og
viðurkennt er að unglingar allt niður í
12-14 ára neyta slíkra
drykkja í stórum stíl.
Ef menn vilja fara í
talnaleik með hitaein-
ingar þá eru 150 hita-
einingar í einni dós af
H.I.V. sem er svipuð
orka og í 30-40 grömm-
um af súkku-
laði.
„Þessir
orkudrykkir
eru rökrétt framhald af bylgj-
unni sem hófst með íþrótta-
drykkjunum og þessir drykkir
hafa náð miklum vinsældum
erlendis og hlutu því að koma
hér. Það er í góðu samræmi við
stefnu okkar fyrirtækis að við
skyldum framleiða íslenskan
orkudrykk í stað þess að flytja inn
eina tegund í viðbót," sagði Jón
Snorri Snorrason, framkvæmda-
stjóri Ölgerðarinnar Egils Skalla-
grímssonar.
„Það hefúr enginn drykkur sem
við höfum sett á markað fengið aðrar
eins viðtökur og þessi því framan af
sumri höfðum við ekki undan að fram-
leiða hann. Sumarið er hinsvegar
toppur í allri drykkjarsölu svo við
verðum að bíða og sjá hveijar viðtök-
urnar verða fyrsta árið.“
KÆLARNIR ERU LYKLARNIR AÐ
MARKAÐNUM
Jón Snorri og Friðþjófur voru sam-
mála um að markhópurinn væri að
stækka. Stöðugt fleiri kysu þessa
orkudrykki og því mætti búast við að
samkeppnin myndi harðna á þessum
markaði með tímanum.
Það er hinsvegar alveg ljóst að sá
sem ætlar að koma með nýja tegund
inn í verslanir á þennan markað á
erfitt uppdráttar. Orkudrykkir eru
geymdir í kæli og þeir sem ráða yfir
kælunum i verslununum
ráða miklu. Kælar í versl-
unum eru í eigu drykkjar-
vöruframleiðenda sem
eru t.d. Egils, Sól-Víking
og Vífilfell. Þeir munu
ekki leyfa drykkjarvör-
ur frá neinum öðrum í
sínum kælum. Sterk
eignatengsl eru milli
Sól-Víking og Vífd-
fells sem segja má að
eigi fyrirtækið nær
100%. Þannig má
segja að aðeins tvö
fyrirtæki séu í sam-
keppni á þessum
markaði. Ef ein-
hver ætlar sér í
samkeppni við
þessa tvo risa þá væri
það helst Mjólkursamsalan sem það
gæti. Þannig má segja að kælarnir séu
lyklarnir að markaðnum. ffij
EKKI VIÐ BARNA HÆFI
Næringarfræöingar hafa lát-
iö í Ijósi þaö álit að börn
ættu ekki drekka orku-
drykki eins og þá er hér um
ræðir og vísa þá til örvandi
efna eins og koffíns og
ginsengs sem þeir innihalda.
31