Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 56

Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 56
Arnór Guðjohnsen, bjargvœttur Valsmanna. Fullyrt er að hann fái yfir 3 milljónir fyrir að leika með Val. A móti hefur hann tvöfaldað tekjur Vals afáhorfendum og forði hann félaginu frá falli úr úrvalsdeild kemur hann í veg fyrir 10 til 15 milljóna tap. ARNÓR BORGAR SIG Arnór Gudjohnsen er dýr jjárfesting fyrir Valsmenn. Fórnarkostnaöur Valsmanna við aö falla úr úrvals- deildinni væri samt margfalt meiri. Þess vegna margborgar Arnór sig. að kom mörgum spánskt fyrir sjónir að Valur skyldi næla í Arn- ór. Tvö önnur lið á Reykjavíkur- svæðinu, KR og IR, höíðu einnig gert til- raunir til að fá Arnór til liðs við sig. Valur hefur um árabil verið eitt skuldugasta knattspyrnuliðið á höfuðborgarsvæðinu og því töldu margir að KR, sem er stöndugra félag með mun minni skuldahala, myndi frekar ná samningum við Arnór. En reynd- in varð önnur. Valur nældi í þennan snjalla knattspyrnumann og eftirmálinn er ævin- týri líkastur þótt enn sé töluvert eftír af ís- landsmótinu og allt geti svo sem gerst. Ballið í vesturbænum byijaði á því að Arnór gerði KR-ingum tilboð um að spila með þeim. Þetta var pakki sem hefði getað orðið um 3,2 milljónir. Samkvæmt heimild- um Frjálsrar verslunar vildi Arnór fá 1 milljón strax, um 1,2 milljónir (400 þúsund á mánuði í þrjá mánuði) fyrir þá 9 leiki sem eftir voru af mótinu og 1 milljón í lokin ef KR yrði Islandsmeistari. Auk þess var rætt um einhver skattaffíðindi í dæminu. Að þessu boði gengu KR-ingar ekki og gerðu honum gagntilboð sem var lægra - en því hafnaði Arnór. Hann gekk síðan í raðir Valsmanna. Menn meta það svo að Vals- menn hafi gengið að kröfum hans og greiði honum á bilinu 3 til 4 milljónir fyrir sumarið. Kostnaður félagsliðs við að falla úr efstu deild hleypur á milljónum. Olafur Helgi Arnason, formaður knattspyrnudeildar Fram, upplifði fall úr úrvalsdeild árið 1995 og ætti því að vita nokkuð hvað slíkt áfall hefur í för með sér. „Það er mjög erfitt að segja nákvæmlega til um það hve tapið er stórt við það að falla úr úrvalsdeildinni nið- ur í fyrstu deildina, það er misjafnt eftir fé- lögum og auglýsingasamningum þeirra. Tapið getur verið allt frá 6-7 milljónum upp í 15-20 milljónir króna. Tapið hjá Fram var sennilega í lægri kantinum af þeim tölum sem hér á undan eru nefndar. Við erum svo heppnir að vera með sterkan áhorfendahóp sem hélt tryggð við okkur þó að við höfum fallið á milli deilda. Það er mikið sálrænt tap að falla úr úr- valsdeildinni, sérstaklega fyrir stórt knatt- spyrnufélag eins og Fram. Við það að spila ekki í úrvalsdeildinni eru nánast engir möguleikar að vera með í keppninni um Evrópusæti, sjónvarpstekjur eru minni og þar fram eftir götunum. Fórnarkostnaður- inn við að falla er gríðarlega mikill, það er mun erfiðara að fá leikmenn og jafnvel góða þjálfara. Við hjá Fram vorum hins vegar mjög heppnir því við fengum aftur fráfarandi landsliðsþjálfara, Asgeir Elías- son, og segja má að það hafi bjargað okkur ásamt ágætu unglingastarfi, enda unnum við okkur strax aftur upp í úrvalsdeildina. Við höfum verið að sjá alls kyns hluti til Arnórs Guðjohnsen sem við höfum ekki séð til leikmanna hér á landi í einhvern tíma og ekki heldur til útlendinga sem koma hingað dýrum dómum. Það er unun að sjá þessi mörk sem Arnór hefur verið að skora. Þó að hann sé ekki i Fram finnst mér gaman að sjá hve mikið hann hefur gert fyrir íslenska fótboltann og þar með aukið áhuga almennings á íþróttinni. Gott dæmi um það er hve áhorfendafjöldinn hefur aukist á Hlíðarenda. Það eru til mörg dæmi þess í útlöndum að gripið hafi verið til örþrifa ráða til að bjarga liðum frá falli. Yfirleitt felast þær i því að fá nýjan framkvæmdastjóra sem síð- an endurskipuleggur liðið og kaupir nýja menn. I þessu tilfelli er það hins vegar að- eins einn nýr leikmaður sem gerir gæfúmuninn. Arnór er reyndar ekki eini 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.