Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 8
Stjórn PwC (f.v.): Ólafur Kristinsson, löggiltur endurskoðandi, Hjalti Schiöth, löggiltur endurskoðandi, Emil Th. Guðjónsson stjórnarformað-
ur, Reynir Kristinsson framkvœmdastjóri og Þórir Þorvarðarson ráðningarstjóri.
Vinnur á heimamarkaði
um allan heim
Dvö íslensk fyrirtæki, Endurskoðunarmiðstöðin Coopers & Lybrand og
Hagvangur hf„ sem sameinuðust um síðustu áramót, urðu í júlí formleg-
ir aðilar að stærstu samsteypu endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækja í
heimi; PricewaterhouseCoopers.
„Með þessum samruna erum við orðin
þátttakendur í neti sem spannar allan
heiminn," segir Reynir Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri PricewaterhouseCoopers á
íslandi. „Við getum fengið til okkar sér-
fræðinga og leitað aöstoðar erlendis frá
við úrlausn verkefna á nánast hvaða sviði
sem er. Um leið sé ég fyrir mér að færir
menn á sínu sviði fari héðan til annarra
landa og aðstoði fyrirtæki þar eins og til
dæmis í sjávarútvegi. Við erum þar með
farin að vinna á heimamarkaði um allan
heim og fjarlægðirnar skipta litlu."
Undír merkjum PwC-samsteypunnar
starfa um 140 þúsund manns í 150 lönd-
um. Reiknað er meó að mannaflaþörf PwC
verði mjög mikil í framtíðinni og við þaó
skapist tækifæri fyrir íslendinga til að
starfa erlendis um lengri eða skemmri
tíma. Þar geta þeir aflað sér þekkingar,
reynslu og víðsýni sem þeir flyttu síðan
með sér aftur heim.
PricewaterhouseCoopers á íslandi er
íslenskur lögaðili og að öllu leyti í eigu
þeirra hluthafa sem hjá fyrirtækinu starfa
sem eru um 20. Alls starfa hjá fyrirtækinu
70 manns.
„Viðskiptavinir PricewaterhouseCoop-
AUGLYSINGAKYNNING
ers á íslandi eru fyrirtæki úr öllum geirum
atvinnulífsins, bæði stór og smá. Einnig
erum við í tengslum vió stóran hóp lands-
manna bæði fólk sem leitar til ráðningar-
þjónustu PwC og sem aðstoðar okkur með
þátttöku sinni í reglubundnum könnunum
af ýmsum toga," segir Reynir Kristinsson.
Meginverkefni og markmið PwC
Reynir segir það hafa verið erfiða
ákvörðun að setja starfsemina hér á landi
undir nafnið PricewaterhouseCoopers því
margir þekki mjög vel Hagvangsnafnið í
tengslum við ráðningarþjónustu og mark-
aðsrannsóknir. Einnig hafi starfsemi End-
urskoðunarmiðstöðvarinnar Coopers &
Lybrand verið vel þekkt. „Vegna hins er-
lenda samstarfs þótti hins vegar nauðsyn-
legt að nota sama nafn alls staðar og við
teljum að nafnið eigi eftir að ná fótfestu
hér á landi á mjög stuttum tíma."
Meó sameiningu fyrirtækjanna og
flutningi á einn stað hefur þjónusta við
viðskiptavini aukist til muna. Nú er hægt
að fá á einum stað þjónustu á sviði endur-
skoðunar og reikningsskiia, stjórnunar-,
upplýsingatækni- og fjármálaráðgjafar,
markaðsrannsókna og markaðsráðgjafar,
8