Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1998, Síða 25

Frjáls verslun - 01.07.1998, Síða 25
FORSÍÐUGREIN STJORNANDALEIT nelma Björnsdóttir, nýútskrifaður viðskiptaíræðingur, skrif- aði um stjórnandaleit í lokaritgerð sinn við Háskóla ís- lands og gerði grein fyrir þvi hvernig stjórnandaleit er stunduð í Bandaríkjunum annars vegar og á Islandi hins vegar. Hún gerir greinarmun á stjórnandaleit og hæfnisleit og segir að sú fyrrnefnda eigi eingöngu við þegar leitað sé að stjórnendum. Að sögn Telmu er enska orðið yfir stjórnandaleit „executive search” sem aftur er skipt niður í „retainer” og „contingency”. Sú fyrrnefnda sé viðurkennd af Félagi ráðgjafa sem stundi stjórn- andaleit. Hlutí greiðslunnar fyrir leitina sé innt af hendi fyrirfram, þóknunin sé 33% af árslaunum, leitað sé að toppstjórnendum með árslaun yfir 100 þúsund dollara, notaður sé milliaðili - ráðgjafi eða fyrirtæki sem sérhæfi sig í stjórnandaleit. „Stjórnandaleit á Islandi fellur ekki undir þessa skilgreiningu.” Um seinni flokkinn, „contingency”, segir Telma að þar sé leit- að að millistjórnendum og eða sérfræðingum með árslaun á milli 60 þúsund til 100 þúsund dollara. Greiðslan fari eftír árangri, þ.e. greitt sé hafi ráðning átt sér stað. Þóknunin sé undir 33% af árs- launum, milliaðili sé notaður. „Stjórnandaleit á Islandi líkist þess- ari skilgreiningu, en hún er ekki viðurkennd af Félagi ráðgjafa sem stunda stjórnandaleit” Telma bjó til hugtak sem hún nefnir hæfnisleit og gildir um það þegar fyrir- tæki falast eftir starfsmönnum annarra fyrirtækja. Hæfnisleit einskorðast ekki við leit að stjórnendum heldur er einnig leitað að almennum starfsmönnum með eftir- sótta menntun eða reynslu. Annað, sem skilur stjórnandaleit og hæfnisleit að, er að enginn milliaðili, á borð við ráðningar- miðlun, er notaður og þar af leiðandi er ekki um neina greiðslu að ræða. Telma segir að stjórnandaleit í Banda- ríkjunum sé mjög virt starf og þar sér- hæfi fyrirtæki sig á því sviði - og beiti ákveðinni aðferðafræði við leitina. „Við erum að ræða um leit að stjórnendum í æðri stöður sem hafa góð laun. Þetta er dýr þjónusta og gerir það að verkum að vart er grundvöllur fyrir hana hérlendis; markaðurinn er tæplega tilbúinn til að greiða svo mikið fyrir ráðningu - auk þess sem ráðið er í fáar toppstöður hérlendis á hverju ári. Reglan erlendis er sú að fyrirtæki, sem sérhæfir sig í stjórnandaleit, sinnir ekki hefðbundnum ráðningum. Ráðningarstof- ur hérlendis hafa sínar siðferðisreglur, eins og að taka ekki starfsólk frá fyrirtækj- um sem eru í viðskiptum við þau. Og mér skilst sömuleiðis að þær séu frekar í þvæi að hlera fólk í stað þess að stunda skipu- lagða leit eftir ákveðinni aðferðafræði.“ eöa En hvers konar fólk sinnir stjórnandaleit er- lendis? „Þetta er nánast undantekningarlaust karlastarf - ennþá að minnsta kosti. Þeir eru flestir í kringum 45 ára og hafa yfirleitt meistaragráðu í við- skiptafræði. Þeir hafa reynslu í fyrirtækja- rekstri og verða að þekkja atvinnulífið mjög vel - og hafa góð tengsl. Ungt fólk, sem nýkomið er úr háskóla, kemur vart til greina í svona starf. Þekking þess á at- vinnulífinu er ekki jafn yfirgripsmikil og tengslin enn lltil. Fyrir vikið verður það ekki eins trúverðugt í þessu starfi.” Að mati Telmu hefiir svonefiid hæfiiisleit færst mjög í vöxt hér- lendis - ekki hvað síst í tölvu- og fjármálageiranum. „Þar er þó fyrst og fremst verið að sækjast eftir sérfræðingum, eins og forrit- urum, fremur en toppstjórnendum.” Hún telur jafnframt að stjórn- andaleit og hæfnisleit séu meira stundaðar á tímum þenslu í þjóð- félaginu þegar hefðbundnar aðferðir við ráðningu starfsmanna dugi ekki eins vel, þ.e. þegar erfiðara sé að fá fólk til starfa. S3 sl. vor stjórnandaleit, eim „„ u- t. aðferðina. Stjórnand f -T kyS að kalla " ^rnanZ eTleöSkÍPUlÖgðleÍt frœði. fvO, . teðtnm aðferða- FV-mynd: Kristín Bogadóttir. BOSCH Símar og fyrir heimili og athafna'' BOSCH DECT-Com 358 • Þráðlaus stafrænn heimastmi • Þyngd 21 Og • Ending á rafhlöðu, 12 tímar í notkun en allt að 2 mánuðir í biðstöðu • Tengjanlegur við 6 símtæki. Lógmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820 BOSCH verslunin aðkeyrsla frá Háaleitisbraut 25

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.