Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1998, Síða 41

Frjáls verslun - 01.07.1998, Síða 41
Hinn þekkti veitingastaður Þyrill við Hvalfjörð lokaði eftir að göngin oþnuðu. verið var opnuð skíðalyfta í Snæfellsjökli. Fyrirhugað er að stofna Þjóðgarð á nesinu segir Guðlaugur Bergmann sem er í for- svari fyrir Framfarafélag Snæfellsbæjar. Fegrun bæjarins og umhverfisvernd eru einnig ofarlega á blaði. „Við höfum lagt mikla áherslu á vega- mál í Snæfellsbæ. Þjóðgarðurinn sem verður ffá Dagverðará út að Gufuskálum hefur einnig verið okkur mjög hugleikinn. Við viljum að hann verði sem fyrst að veru- leika. Við höfum auk þess lagt mikla áher- slu á umhverfismál og lagt drög að stofnun regnhlifarsamtaka þeirra sem áhuga hafa á umhverfismálum. Við vonum að Snæ- fellsbær verði vistvænt bæjarfélag á næstu fimm árum. Göngin þýða að vegalengdin út á nes sfyttist þannig að fleiri vilja sækja okkur heim. Eftir því sem við fáum fleira fólk þurfum við að vernda náttúruna okk- ar betur. Við höfum orðið vör við meiri um- ferð í sumar heldur en verið hefur. Fólki vex ekki eins í augum og áður að keyra hingað,” segir Guðlaugur. SJOPPUMENNINGIN BREYTIST Eitt af því sem menn hafa velt fyrir sér er hvort áningarstaðir ferðamanna verði aðrir en áður. I íjölda ára voru reknar þrjár veitingasölur á Hvalfjarðarströnd og í Botninum; Botnsskáli, Þyrill og Ferstikla. Botnsskálinn lokaði þegar veginum í Botni var breytt og Þyrill lokaði fyrir stuttu. Enn- þá er rekin veitingasala á vegum Olís að Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd en þar var umferð sáralítil fyrst eftir að göngin opn- uðu. Eðvarð Loftsson rekur veitingasöl- una en hann er ekki frá því að umferðin hafi aftur aukist. „Mér finnst umferðin vera að glæðast aftur og hef ekki gefið upp alla von. Ég ætla að gefa veitingasölunni tækifæri, klára veturinn og sjá síðan til. Flutningabílstjórarnir fara að mestu göng- in nema þeir sem eru of háir eða breiðir,” segir Eðvarð. Pétur Geirsson sem rekur Hótel Borgarnes hefur ekki orðið var við neina breytingu ennþá. „Ráðstefnur og fundir ásamt gistingu útlendinga eru mínir stærstu póstar. Ég vonast til þess að fá inn nýjan markað í árshátíðum og fundum. Ég næ betur til Reykjavíkurmarkaðarins yfir veturinn eftir að göngin komu. Það er eng- in hindrun lengur og ferðin orðin styttri,” segir Pétur. Að sögn Örnu Pálsdóttur í Baulu hef- ur umferð aukist talsvert frá því að göngin voru opnuð. Hún segir strauminn hafi leg- ið meira vestur en norður. „ Fólk verslar ekki hjá okkur eins og áður í matvöru- versluninni heldur kaupir sér einungis gos og nammi. Það er orðið svo stutt á milli staða. Margir fara framhjá okkur og stoppa í Hreðavatnsskála eða hreinlega ekki fyrr en norður í Staðarskála,” segir Arna. Að sögn Jóns Péturssonar, sem rekur Hreðavatnsskála, er engin sjáanleg breyt- ing þar á milli ára. Hann nefnir ennfremur að það sé ekki að marka þar sem nú sé há- annatími. Hann segir umferðina um Hreða- vatnsskála eingöngu fara eftir veðrinu fyrir norðan og hafa þvi ekki byijað fyrr en eftir tíunda júlí. Zophanías Lárusson í sölu- skála Essó á Blönduósi segir engar sérstak- ar breytingar að finna þar á bæ þrátt fyrir að göngin hafi verið opnuð. Eiríkur Gíslason, sem rekur Staðarskála í Hrútafirði, tekur undir orð Jóns í Hreðavatnsskála og segir erfitt að átta sig á áhrifum ganganna á með- an háannatíminn standi yfir. ÖÖ MARGAR NÝBYGGINGAR „Á Akranesi er talsvert um nýbyggingar núna en svo hefur ekki verið undanfarin átta eða níu ár. Mest er um einbýlishús, raðhús og parhús - og ekki er ólíklegt að fjöl- býlishús verði byggt innan skamms. TONLEIKARAÐIR VETRARINS 98^99 Voldug hljómsveitaverk GULA RÖÐIN Carl Nielsen: Maskerade, forleikur Atli Heimir Sveinsson: Píanókonsert Johannes Brahms: Sinfónía nr. 1 Edward Elqar: Cellókonsert Custav Höíst: Pláneturnar Robert Schumann: Sinfónía nr. 3 Max Bruch: Konsert f. víólu og klarinett Atli Heimir Sveinsson: Flower Shower Jón Leifs: Requiem jón Leifs: Orgelkonsert Anton Bruckner: Sinfónía nr. 6 Wolfgang A. Mozart: Sinfónía nr. 31 Wolfgang A. Mozart: Píanókonsert nr. 27 Felix Mendelssohn: Sinfónía nr. 3 Atli Heimir Sveinsson: Vikivaki, svíta Sergei Prokofiev: Fi&lukonsert nr. 1 Dmitri Shostakovich: Sinfónía nr. 10 Vinsælustu einleikskonsertar tónlistarsögunnar RAUÐA RÖÐIN Þorsteinn Hauksson: Bells of Earth Sergei Rachmaninoff: Píanókonsert nr. 2 Claude Debussy: Fétes & Nuages Richard Strauss: Rosenkavalier, svíta Antonin Dvorak: Cellokonsert Dmitri Shostakovich: Sinfónía nr. 5 Ludvig van Beethoven: Leonora, forl..nr. 3 Ludvig van Beethoven: Píanókonsert nr. 5 Ludvig van Beethoven: Sinfónía nr. 4 Piotr Tchaikovsky: Rómeó St Júlía Wolfgang A. Mozart: Fi&lukonsert nr. 3 Sergei Prokofiev: Rómeó 6r Júlía Emmanuel Chabrier: Espagna Joaquin Rodrigo: Concierto de Aranjuez Atli Heimir Sveinsson: Sinfónía nr. 1 Karólína Eiríksdóttir: Þriár setningar Henryk Wieniawski: Fiðlukonsert nr. 1 Henryk Wieniawski: Polonaise Cesar Franck: Sinfónía í d moll Létt og aögengileg tónlist GffyEl JA RÖÐIN Michael Torke: Ash George Gershwin: Píanókonsei _ Aaron Copland: Klarinettkonsert' Leonard Bernstein: Sinfónískir dans. úr West side story Vínartónlist Andrew Lloyd Webber: Jesus Christ Supi Óperutónlist m Föstudaqstónleikar með ísíenskum kórum BLÁA RÖÐIN cScomo Puccini: Turandot Jón Leifs: EDDAI SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS I Háskólabíói við Hagatorg Sími: 562 2255 - Fax: 562 4475 Nánari upplýsingar á sinfóníu- vefnum: www.sinfonia.is

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.