Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1998, Page 43

Frjáls verslun - 01.07.1998, Page 43
ATVINNUMAL Þetta verður eitt stærsta fyrirtæki á Islandi sem veitir 1.600 manns at- vinnu og áætluð ársvelta verður um 20 milljarðar króna. Kaupþing og FBA eru nú að selja megnið af sínum hlut í Baugi og þeg- ar hefúr blandaður hópur erlendra ijárfesta keypt um 20% hlut. Þetta er ekki erlend verslunarkeðja eins og al- mannarómur hefur sagt heldur ijár- festar úr ýmsum áttum sem sjá hagn- aðarvon í nýju og stóru fyrirtæki. Auk þess hafa 10% verið seld á markaði innanlands og reiknað er með að söl- unni ljúki að fullu á næsta ári. EKKISAMA BAUGUR 0G BAUGUR Fyrirtækið sem áður hét Baugur og annaðist innkaup og dreifingu fyrir allar matvöruverslanir Hagkaups og Bónuss heitir nú Aðföng ehf. en nafn- ið Baugur var valið á móðurfyrirtækið því það þótti henta best án þess að vera samsteypa úr nöfnum Hagkaups og Bónuss. Jón Asgeir Jóhannesson í Bónus er forstjóri Baugs og Oskar Magnússon, fyrrverandi Hagkaupsforstjóri, er stjórnarformaður. Aðstoðarforstjóri Baugs er Tryggvi Jónsson. Hann kemur ekki beint úr stjórnunarstarfi heldur hefur hann um 14 ára skeið starfað sem löggiltur endurskoðandi saman því hann var endurskoðandi fyrir bæði Bónus og Hagkaup áður. LÍTIL YFIRBYGGING Fyrst um sinn er Baugur með bækistöðvar á efri hæðinni í Skútu- vogi 13 og þar eru forstjóri og aðstoð- arforstjóri saman með litla skrifstofu. Er verið að spara? „Þetta er til bráðabirgða sem við erum hér. Það er verið að reisa 10 þúsund fermetra lagerbyggingu hér utar við götuna þar sem Aðföng ehf. verða til húsa og þar verða höf- uðskrifstofur Baugs á efri hæð og eitthvað rýmra um okkur en í dag. Hitt er svo annað mál að þetta er af- bragðs fyrirkomulag. Við Jón Asgeir litla yfirbyggingu svo það fer vel á þessu.“ GAMAN AÐ VERA ENDURSKOÐANDI Varstu orðinn leiður á því að vera endurskoðandi? „Það eru margir sem halda að starf endurskoðanda sé leiðigjarnt og til- breytingarlítið sem er versta bábilja. Þetta er ákaflega lifandi og skemmti- legt starf og gefandi. Mikill hluti af mínu starfi var ráðgjöf þannig að mað- ur var stöðugt að kynnast nýjum hug- myndum og nýju fólki og þurfti að til- einka sér nýja hluti og finna nýjar lausnir. Þetta hefur verið ákaflega skemmtilegur tími og félagsskapur- inn hjá KMPG frábær." ENDURSKOÐENDUR AUPPLEIÐ Með því að færa sig úr starfi endurskoðanda og taka við stöðu stjórnanda fetar Tryggvi í fótspor nokkurra stéttarbræðra sinna. Nokkrir endurskoðendur hafa látið tals- vert til sín taka í viðskiptalífinu. Friðrik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, var endur- skoðandi. Gunnar Örn Kristjánsson, forstjóri SÍF, var áður endurskoðandi, m.a. SÍF. Hér mætti einnig nefna Svein Jónsson, fyrrverandi aðstoðarbankastjóra Búnaðarbankans, Símon Gunnarsson, sem um tíma starfaði hjá Vífilfelli, og Kristinn Sigtryggsson, sem á sínum tíma gerðist forstjóri Arnarflugs. BÁBILJUR UM ENDURSKOÐENDUR „Það eru margir sem halda að starf endurskoðanda sé leiðigjarnt og tilbreytingarlítið sem er versta bábilja. Þetta er ákaflega lifandi og skemmtilegt starf og gefandi. UR ADST0DARF0RSTJÓRI söölaði um í sumar oggerðist aðstoðarforstjóri Baugs; risans sem rekur En hvers vegna stökk kann í hið nýja starf? undir merkjum KPMG Endurskoðun- ar hf. þar sem hann var hluthafi. Tryggvi hefur tvö síðastliðin ár ver- ið einn hæstlaunaði endurskoðandinn í árlegri samantekt Frjálsrar verslunar um tekjuhæstu einstaklinga. Tryggvi er ekki alveg ókunnugur rekstri þeirra fyrirtækja sem þarna renna höfum ekki unnið saman áður með þessum hætti. Við erum að kasta milli okkar hugmyndum allan dag- inn og kynnast hvor öðrum. Eg mæli sannarlega með þessu við þá sem þurfa að vinna náið saman. Það hefur gegnum árin verið ríkur þáttur í „kúltúr“ beggja fyrirtækj- anna, Hagkaups og Bónuss að hafa TILB0Ð SEM ÉGGATEKKIHAFNAÐ En afhveiju skiptir þú um starf? „Þetta fyrirtæki verður meðal þeirra stærstu á Islandi og mun velta a.m.k 20 milljörðum. Mitt hlutverk verður m.a. að tryggja hámarks- afrakstur af þessu fé. Eg kom nokkuð að undirbúningi þessa máls og það voru svo Bónusfeðgar sem buðu mér 43

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.