Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1998, Side 67

Frjáls verslun - 01.10.1998, Side 67
Frjáls verslun hefur fengið þau Pálma Matthíasson, sóknarprest í Bústaðapresta- kalli, og Hrefnu Olafsdóttur, félags- og hjónabandsráðgjafa, til að Jjalla um þessi mál. Að sögn Pálma Matthíassonar eru vinnuveitendur ekki nægilega vakandi um helgi hjónabandsins. Ekki sé nægilega mikið tillit tekið til hjónabandsins ef maka er ekki alltaf boðið með sé eitthvað um að vera utan vinnutímans. VINNUSTAÐAPARTÍ GILDIFYRIR TVO „Mér finnst að vinnuveitendur eigi að taka tillit til maka og fjölskyldu. Við þekkj- um dæmi þess að þegar fólk er að skemmta sér og verður góðglatt losni ýms- ar hömlur. Þegar fólk hefur unnið að verk- efnum lengi verður nálægðin og snerting- in meiri en áður. Þá gleyma ýmsir ábyrgð sinni og skyldum og stíga skref sem valda sársauka síðar. Eg hef alltaf verið þeirrar skoðunar að boð í vinnustaðapartí gildi fýr- ir tvo þegar um par eða gift fólk er að ræða. Annað er ógnun við hjónabandið,” segir séra Pálmi. Pálmi segir að fólk verði síðan að ráða sjálft hvort það þiggi boðið fýrir hönd makans. Þá sé ábyrgðin hjónanna en ekki vinnustaðarins. Hann segist oft heyra í við- ræðum við hjón að vinnustaðapartí fari í taugarnar á makanum sem heima situr. Ekki sé endilega um vantraust að ræða heldur finnist viðkomandi að gengið sé framhjá sér. ,,A Islandi er ekki borin nægilega mikil virðing fyrir hjónabandinu. Það nægir að nefna að Jjölskyldustefna stjórnvalda er ekki hjónabandinu í hag. Það er Jjárhags- lega hagkvæmara að vera í óvígðri sambúð heldur en í hjónabandi.” HREFNA ÓLAFSDÓTTIR HJÓNABANDS- RÁÐGJAFI Hrefna Ólafidóttir hjónabandsráðgjafi segir að reynslan sýni að framhjáhald tengist oft vinnu- félögum eða sé á einhvern hátt í tengslum við vinnuna. Hún hvetur stjórnendur og starfs- mannafélög til að bjóða mökum starfsmanna í vinnustaðateiti. Myndir: Kristín Bogadóttir. Hrefna Ólafsdóttir félagsráðgjafi hefur annast hjónabandsráðgjöf um nokkurt skeið. Hún segir hjónabandið snúast um tryggð og hvaða afstöðu fólk taki til þess. Að sögn hennar verður framhjá- hald oft í tengslum við vinnustaði því þar sé fólk mest án maka. Fritimanum eyðir fólk aftur á móti að mestu leyti með mak- anum. „Það er mjög mikilvægt að fólk fái að vera einstaklingar í sambandinu auk þess að vera hjón. Eg held að það sé samt ekki gott fyrir sambönd að einstaklingarnir laki eingöngu einir þátt í því skemmtanalífi sem tengist vinnustaðnum. Það er ögrandi fyrir samböndin. Það er þó mikilvægt að geta farið einn út með vinunum öðru hvoru,” segir Hrefna. KAFFIOG PÖNNSUR „Sumir eru ekki tilbúnir að takast á við skyldur heimilisins auk álagsins í vinnunni fyrir jólin. Þess vegna er það oft auðveld lausn að segja að það sé partí framundan og ágætt að láta sig hverfa. Sumir vinnu- veitendur hafa þegar tekið á jólaglöggs- vandanum til þess að hann eyðileggi ekki jólin Jýrir fólki. Þeir bjóða í staðinn í annars konar samkomur eins og með kaffi og pönnukökum. Þá er mökunum boðið með. KARLAR SEM KYNVERUR „í vinnu fær fólk oft meira rými heldur en heima hjá sér og hefur betra tækifæri til þess aö mynda tengsl á sínum eigin forsendum. Karlar leita oft eftir sambandi þar sem litiö er á þá sem kynverur, óháð öllum öðrum hlutverkum. Oft vill karlinn stöðva framhjáhaldssambandið þegar konan, sem hann heldur við, fer að gera kröfur.” - Hrefna Ólafsdóttir hjónabandsráðgjafi 67

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.