Frjáls verslun - 01.04.1999, Síða 57
FYRIRTÆKI
Tölvufyrirtækiö OZ er níu ára gamaltfyrirtæki sem
byrjaöi sem samstarfsverkefni þriggja vina úr Vog-
unum og Vesturbœnum. I dag vinna þar 80 starfs-
menn í þremur löndum og sþákaupmenn áœtla
verðmœti þess um 11 milljarða.
rumkvöðlarnir og félagarnir,
Guðjón Már Guðjónsson og Skúli
Mogensen, láta sér fátt um finnast
þegar vangaveltur um reiknað verðmæti
OZ berast í tal. Þær tölur byggjast á því
þegar Fjárfestingarbanki atvinnulifsins og
Landsbréf keyptu hlutafé í fyrirtækinu í
mars s.l. fyrir 273 milljónir. Hver hlutur var
þá keyptur á 3.8 dollara og út frá því var
reiknað heildarverðmæti upp á ellefu millj-
arða. Hlutabréfin voru síðan seld að
miklu leyti áfram samdægurs og þá á
genginu 4.8. Að undanförnu hafa
bréfin verið boðin á 3.6 til 4.1 sem
sýnir hve miklar sveiflur geta verið á
þeim gráa markaði sem viðskipti með
bréf í óskráðum félögum eru.
„Okkar markmið er að fyrirtækið verði
skráð á NASDAQ," sagði Guðjón Már
Guðjónsson, annar aðaleigenda OZ í sam-
tali við Fijálsa verslun.
„Við ætlum okkur með þetta fyrirtæki
alla leið og okkar framtíðarsýn er sú að OZ
TEXTI: Páll Ásgeir Ásgeirsson
MYNDIR: Geir Ólafsson
verði í fremstu röð í heiminum á sínu sviði
sem er samskiptatækni eins og nútíminn
krefst. Við viljum gera þetta að stóru al-
þjóðlegu fyrirtæki. Þetta er sú sýn sem fjár-
festar okkar eru að veðja á og hafa lagt sitt
ijármagn í.“
Guðjón og Skúli Mogensen, félagi
hans, munu kynna afkomu og uppgjör
fyrsta ársfjórðungs þessa árs fyrir fjárfest-
Þetta er skjámynd-
in sem birtast mun
tölvunotendum þeg-
ar iPulse, afsþrengi
samvinnu
OZ. COM og Erics-
son, verður kynnt
og mun, að sögn
OZ manna, bylta
tölvusamskiþtum.
57