Frjáls verslun - 01.04.1999, Blaðsíða 14
Guðmundur Björnsson, forstjóri Landssímans, afhendir Agnesi Jónsdóttur, verðlaun
fyrir að vera farsímanotandi númer hundrað þúsund hjá Landssímanum.
Hundrað þúsund farsímar
FRÉTTIR
nandssíminn ákvað á dögunum að verð-
launa farsímanotana númer eitthund-
rað þúsund en notendur í farsímakerf-
um Landssímans eru komnir vel yfir þá tölu.
GSM notendur Landssímans eru um 77 þús-
und talsins og við þá tölu bætast síðan um 26
þúsund NMT notendur. GSM kerfið er í
stöðugri uppbyggingu og hafa þijár nýjar stöðv-
ar verið reistar frá áramótum, í Þykkvabæ,
Holta- og Landssveit og á Stöðvarfirði. NMT
kerfið nær að heita má um allt landið og hálend-
ið að auki en í sumar verða þó tvær nýjar stöðv-
ar settar upp tíl að auka öryggið enn frekar.
Það var ung Vestmannaeyjasnót, Agnes
Jónsdóttír, sem var svo heppin að vera við-
skiptavinur númer eitthundrað þúsund. Hún
fékk að launum Ericsson T-18 GSM síma ásamt
100 þúsund króna inneign á GSM reikningi
hennar sem gildir næsta árið. 33
Þeir Hörður Sigurgestsson, stjórnarformaður Flugleiða, og Sigurð-
ur Helgason, forstjóri Flugleiða, taka hér á móti Arna Vilhjálms-
syni, stjórnarmanni í Flugleiðum og fyrrum þrófessor. Arni erstjórn-
arformaður Granda og einn áhrifamesti maður í íslenskum sjávar-
útvegi. FV-myndir: Geir Ólafsson.
Tekið á móti Valdísi
ý Boeing 757-200
þota bættíst á dögun-
um í flugflota Flug-
leiða og er hún sjötta vél þess-
arar tegundar í rekstri félags-
ins. Þotan hlaut nafnið Valdís.
Kristrún Eymundsdóttir, eig-
inkona Halldórs Blöndal sam-
gönguráðherra, gaf vélinni
nafn við komu hennar til
landsins. Kaupin á vélinni eru
liður í viðamikilli endurnýjun
og stækkun flugvélaflota fé-
lagsins. Um mikla ijárfestíngu
er að ræða en Valdís kostaði
3,5 milljarða króna.
Við komu Valdísar til Kefla-
víkur sagði Sigurður Helga-
Halldór Blöndal samgönguráðherra ávarþaði gesti.
Afarfjölmennt var við komu nýju Boeingþotu Flugleiða, Valdísar, til
landsins — en móttakan fór fram í risavaxinni viðhaldsstöð félags-
ins á Keflavíkurflugvelli.
son, forstjóri Flugleiða: „Flug-
leiðir hafa byrjað nýtt endur-
nýjunarskeið en tíl viðbótar við
þessa flugvél á félagið fjórar
aðrar í fastri pöntun hjá Boeing
verksmiðjunum og munu þær
koma í stað eldri véla sem fé-
lagið hefur þegar selt.“ B3
14