Frjáls verslun - 01.04.1999, Blaðsíða 80
Páll Sigurjónsson, forstjóri ístaks. Harpa fékk ístak til að byggja verk-
smiðjuna í svonefndri alverktöku en hún fól í sér að Istak sá algerlega
um hönnun, skipulag ogframkvœmdir við verkið. Istak gerði síðan við
verksmiðjuna eftir brunann á aðeins 50 dögum.
Plastgluggi í þakinu
„Eftir öllu þaki hússins er brennanlegur plastgluggi sem
gegnir tveim hlutverkum. Hann hleypir birtu inn í húsið
ofan frá og hann er þess eðlis að ef það kviknar í þá leit-
ar hitinn að sjálfsögðu upp og þessi plastgluggi brennur
fyrst — og opnast þá þakið. Þar með er komið í veg fyrir
að mikill hiti og þrýstingur safnist fyrir sem stóreykur
brunaálag á veggi og getur jafnvei leitt til sprengingar."
varnarveggi þurfi, eftir notkun húsnæðisins, en „þeir eiga að vera
úr efhi sem er lítt eða ekki brennanlegt," eins og segir í reglugerð-
um.
Steinull er notuð til einangrunar í eldvarnarveggi i stað annarr-
ar einangrunar, sem brennur fremur — og steinsteypa, gifs eða
múrsteinn ytra.
Allt verkið vel unnið „Eldvarnarveggirnir í Hörpu eru klukku-
stundarveggir," heldur Ormar áffam. „Það þýðir að þeir eiga að
geta haldið aftur af eldinum í að minnsta kosti klukkustund. Það
sama á við um hurðir. Við unnum okkar vinnu en veigamestur var
þáttur ÍSTAKS sem sá um að verkið væri rétt útfært i samræmi við
teikningar. Þar að auki var öllum reglum fylgt eftir af hálfu fyrir-
tækisins. Það hefði til dæmis ekki skipt neinu máli hversu góðir
eldvarnarveggirnir væru hefði starfsfólk ekki séð um að eldvarn-
arhurðir væru lokaðar."
Þegar teikning af húsinu er skoðuð sést að það eru ekki bara
eldvarnarveggir á milli skálanna, heldur er skálanum, sem kvikn-
aði i, skipt upp í hluta og eldvarnarveggur ásamt eldvarnarhurð á
milli hlutanna. Ormar bendir á svæðið sem brann, en það er hluti
miðhússins. „Þetta brann nokkuð snyrtilega beint upp,“ segir
I hann en allt annað slapp. Þó hef ég heyrt að eldvarnarhurðin hafi
ELDVAENARHURÐIR FRÁ
GLÓFAXA í ALLAR TEGUNDIR
HÚSNÆÐIS
Glófaxi býður vandaðar eldvarnarhurðir fyrir allar
tegundir húsnæðis - ekki síst skrifstofu- og
iðnaðarhúsnæði.
Eldvarnarhurðirfrá Glófaxa eru til dæmis (hinum nýju höfuðstöðvum
Sparisjóðs Kópavogs.
Ármúla 42 • 108 Reykjavík
Sími: 553 4236 & 553 5336
Fax: 588 8336
GLOFAXI EHE
HHBHBHHHHHHHR
80