Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1999, Side 59

Frjáls verslun - 01.04.1999, Side 59
FYRIRTÆKI og suður. Með þessu er líka verið að stækka hóp þeirra sem nota netið því flest- ir treysta gamla góða símanum sínum bet- ur en netinu. Með því að tengja þetta tvennt erum við að virkja þetta traust sem fólk hefur á símanum. Við höfum verið bundnir ákveðnum skilmálum hvað varðar upplýsingar um verkefnið. Hvorki við né Ericsson vildum draga athygli keppinautana að því sem við værum að fást við. Með samstarfinu við Ericsson fáum við í raun aðgang að heims- markaði þar sem þeir eru griðarlega stór- ir í samskiptatækni. Okkar markaður fyrir þessa nýju samskiptatækni eru allir sem nota Internetið, hvort sem það eru ein- staklingar eða fýrirtæki. Á þessu sviði er Ericsson þekkt og öflugt og því má líkja þeim við okkar Trjóuhest sem við notum til að komast inn á heimsmarkaðinn," sagði Skúli. Harry Hákansson, yfirmaður sam- starfsins af hálfu Ericsson, sagði að Erics- son vænti sér mikils af samstarfinu við OZ. Hann sagði að samstarfið hefði geng- ið að óskum og samkvæmt þeim áætlun- um sem hefðu verið lagðar i upphafi. „Einn helsti keppinautur okkar á þessu sviði er fýrirtæki sem heitir ICQ og var nýlega keypt af America Online. Þeirra samskiptabúnaður er þegar farinn að veita símafýrirtækjum samkeppni en með iPul- se munum við geta fært símafyrirtækjum heimsins aðgang að netinu og betri sam- keppnisstöðu á silfurfati," segir Guðjón. Á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum og Evrópu er mikill áhugi á ungum og vaxandi fyrirtækjum sem tengjast Inter- netinu og gengi þeirra hefur verið gríðar- lega mikið undanfarið ár. „Það sem við sjáum fýrir okkur er að um leið og OZ verður skráð á markaðinn þá opnist margvislegir möguleikar á marg- faldri stækkun fyrirtækisins með samruna og yfirtöku annarra og smærri netfýrirtækja. Við höfum séð mörg íyrirtæki vaxa æv- intýralega hratt og gengi þeirra hækka mjög verulega á mjög skömmum tíma. Það má eiginlega nota þá samlíkingu að starfstími OZ fram að þessu hafi verið undirbúningur fýrir ballið sem byrjar þegar við verðum skráðir á markaði," segir Guðjón. „Þessar áætlanir byggjast á því að ná ákveðnu virði á mark- aði og fá þannig í rauninni gjaldmiðil til þess að efla fyrirtæk- ið. Við erum sérstaklega að horfa tíl fyrirtækja í Evrópu í þessu tillití en þar vitum við um mörg fyrirtæki sem falla vel að ffamtíðaráætlunum okkar.“ Nú er mikið talað um að Internetfyrirtæki séu alltof hátt metín á markaðnum og þetta sé bóla sem getí ekki annað en sprungið. Óttíst þið ekki að hún verði sprungin áður en þið komist inn á markaðinn? Margt ungtfólk vinnurhjá OZ.COm og andinn ífyrirtækinu mjög afslappaöur og frjálslegur. Hérsitja alliryfirmenn hinnaýmsu sviða saman í einum sófa. Frá hœgri í sófa: Guðjón Már Guðjónsson stjórnarformaður, Joanne Koo, sölu- og markaðs- stjóri, og Kjartan Emilsson, rannsókna- og þróunarstjóri. Aftari röð frá hægri: Jón L. Árnason fjármálastjóri, Skúli Mogensen forstjóri, Tómas Gíslason, framkvœmdastjóri hönnunarsviðs, og Birgir Rafii Þráinsson, framkvœmdastjóri hugbúnaðarsviðs. Rekstrartekjur Rekstrargjöld velía 02 mim ara 1997 ’ muni tvöfaldast iy°ZaTennfyrirt*kisins arlega nœstu þrjú ann. 1999 seKÍa að tekjur 59

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.