Frjáls verslun - 01.04.1999, Blaðsíða 21
Þessar myndir eru teknar í fyrstu Nóatúnsversluninni í Nóatúni 17 á gamlársdag 1965 þegar verslunin hefur verið oþin í tvo mánuði. I kjöt-
borðinu standa feðgarnir Jón og Júlíus, elsti sonurinn, níu ára gamall, strax kominn í sloþþinn.
Þriðja kynslóðin er í uppvexti en samtals eru barnabörn Jóns
og Oddnýjar orðin 13 talsins.
Best að kaupa nýja búð En hvernig hefur fyrirtækinu verið
stjórnað? Hafa aldrei verið nein stjórnunarvandamál?
„Það hafa aldrei komið upp nein vandamál sem ekki var hægt
að leysa við matarborðið heima,“ segir Jón.
„Við höfum alltaf haft mikil samskipti og skipt með okkur verk-
um eftir þörfum en síðustu ár hefur verið reynt að halda alltaf fund
í hádeginu á mánudögum eða þriðjudögum og leggja á ráðin um
næstu verkefni. Síðustu árin hefðum við sjálfsagt þurft að hafa
ákveðnari stjórnaríyrirkomulag en þetta hefur gengið vel,“ segir
Júlíus.
„Ef einhvern vantaði verkefni, þá var einfaldast að kaupa nýja
búð,“ segir Júlíus.
Hvað er Kaupás? 1. maí tók formlega til starfa félagið Kaupás,
sem er keðja 33 verslana á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi.
Þetta verður næst stærsta verslunarkeðja landsins með áætlaða 9
milljarða króna ársveltu og 880 starfsmenn í 500 stöðugildum.
Þarna renna saman þrjú fýrirtæki. Eitt er Nóatún, sem rekið hef-
ur níu verslanir á höfuðborgarsvæðinu undir nafni Nóatúns, ann-
að er fyrirtækið sem rekið hefur tólf 11-11 verslanir og þriðja er
verslunardeild Kaupfélags Arnesinga, sem rekur tólf verslanir á
Selfossi, Hveragerði, Hellu. Hvolsvelli, Vík, Kirkjubæjarklaustri
og í Vestmannaeyjum.
í þessari nýju samsteypu á Nóatúnsfjölskyldan 66% hlut; bræð-
urnir sitja allir í stjórn fýrirtækisins og Einar Örn er stjórnarfor-
maður. Eignarhaldsfélagið Saxhóll á hlut fjölskyldunnar í Kaupási
en það hefur komið talsvert við sögu í umsvifum fiölskyldunnar
undanfarin ár. Saxhóll hefur keypt hlutabréf í ýmsum fýrirtækjum,
innlendum og erlendum.
Það má segja að þessi sameining sé áframhald af umtalsverðu
samstarfi þeirra þriggja fýrirtækja sem koma við þessa sögu. Nóa-
tún og KÁ hafa frá 1995 gert sameiginleg innkaup gegnum BUR,
innkaupafýrirtæki í eigu beggja, og hafa frá 1996 rekið saman
verslanir undir nafhi 11-11.
„Við höfum verið í talsverðri sókn með okkar búðir en við höf-
um ekki bætt við okkur verslun síðan 1995, öfugt við suma af
keppinautunum,“ segir Júlíus Jónsson þegar fjölskyldan ræðir
þessi mál við Frjálsa verslun.
Vanlr að hafa keppinautinn við hliðina Nóatúnsplskyldan hefur
hug á að taka virkan þátt í þeirri gífurlegu uppbyggingu sem nú á
sér stað í Smáranum í Kópavogi. Þar er fyrirhugað að rísi mikil
verslunarmiðstöð, Smáralind, sem á að verða tilbúin haustið 2001.
Saxhóll ehf. var einn fimm upphaflegra hluthafa í Smáralind, sem
allir áttu jafnan hlut. Hinir voru Gunnar og Gylfi, verktakar, Olíu-
félagið, BYKO og Valfellsfjölskyldan en nú síðast bættist Gaurnur,
eignarhaldsfélag Bónusfeðga, í hópinn. Það er því ljóst að þegar
Smáralind verður opnuð munu tvær stórar matvöruverslanir
verða í húsinu.
21