Frjáls verslun - 01.04.1999, Blaðsíða 43
SAGA-FILM hf.
einu hvar það er niður komið. Svo má geta
þess að við erum að ganga frá samningum
við erlent íyrirtæki um kvikmynd sem á að
taka á þessu ári. Ef af verður mun öll vinn-
an við hana fara fram hérlendis og Islend-
ingar verða í nær öllum verkum. Eg efast
stórlega um að svona samning væri hægt
að gera ef ekki væri fyrir þessa nýju lög.
Þetta skiptir okkur gífurlega miklu máli til
að hægt sé að byggja upp alvöru atvinnu-
grein en ekki áhugamannakvikmyndagerð
eins og hér hefur verið stunduð til margra
ára.“
Ekki bara auglýsingar Starfsemi fyrirtæk-
isins má skipta gróflega í fjóra þætti að
sögn Jóns. Auglýsingagerð innlenda, aug-
lýsingagerð erlenda, bæði í samvinnu við
önnur fyrirtæki og svo alfarið á vegum
SAGA-FILM, dagskrárgerð fyrir sjónvarp,
en það er vaxandi þáttur, og síðast en ekki
síst tækjaleigu.
„Við eigum næstum allan búnað sem
þarf til kvikmynda- og þáttagerðar og leigj-
um þessi tæki út til annara fyrirtækja,
hvort sem þau eru íslensk eða erlend. Það
Aðsetur: Vatnagarðar 4, aðalstöðvar,
upþtökusalur o.fl., Viðarhöfði 2 A,
tœkjaleiga, Skipholt 33 A, skrifstof-
ur o.fl.
Eigandi: Jón Þór Hannesson.
Meðstjórnendur: Gísli Baldur Garð-
arsson lögmaður og Kristján Jó-
hannsson lektor.
Framkvæmdastjórar: Rúnar Hreins-
son, Agnes Johansen og Hilmar
Stefánsson.
Svið: Kvikmyndagerð, auglýsingagerð,
tœkjaleiga og dagskrárgerð.
Velta: 352 milljónir árið 1998.
Stofhað: Fyrirtækið varstofnað 1978.
Fjöldi starfsmanna: 35 fastir starfs-
menn og 10-15 lausamenn að jafn-
aði í hverjum mánuði.
er nauðsynlegt fyrir kvikmyndagerðina
hér á landi að hafa þennan búnað til í land-
inu í staðinn fyrir að flytja hann inn til
landsins í hvert skipti,“ segir Jón. „Dag-
skárgerð jókst tíl muna þegar Stöð 2 kom
fyrst til sögunnar, enda breyttíst landslagið
talsvert í greininni við það. Ekki má heldur
markaðsmál
gleyma framlagi einstakra framsýnna dag-
skrárstjóra hjá RUV sem höföu þor og dug
tíl að bjóða út innlenda dagskrágerð þrátt
fyrir verulega andstöðu innanhúss."
Óbundnar hendur við endurskipulagningu
„Um þessar mundir vinnum við ýmsa þættí
fyrir sjónvarp og hefur sjaldan verið jafn líf-
legt í dagskrágerðinni og nú. Geta má þess
að þátturinn Kolkrabbinn var tekinn upp
hjá okkur og stóð leikmyndin uppi í allan
vetur í studíói þar sem hann var á dagskrá
daglega í beinni útsendingu.
Það er mér því öllu óskiljanlegt hvers
vegna Ríkisútvarpið ætlar út í þúsund millj-
óna króna íjárfestingu í innréttíngum og
tækjabúnaði þegar það getur fengið alla
þjónustu útí á hinum frjálsa markaði. Það
þættí mörgum það undarlegt ef Vegagerð
ríkisins tæki upp á þvi að byggja upp á ný
framleiðsludeild sína í staðinn fyrir útboð á
frjálsum markaði,“ segir Jón Þór ákveðinn.
Jón Þór segir árin upp úr 1990 hafa ver-
ið heldur daufleg en þó hafi fyrirtækið
alltaf skilað hagnaði. Það setti upp annað,
sams konar fyrirtæki í Kaupmannahöfn, í
Einfalt dæmi með
SP-FJármögnun
. Staðgrciðsluafstáttur
. Tækið er hclsta trygg'nt,in
. Skattalcgt hagræði
. sveigjanleg greiðslubyrði
. AUt að 100% fjármögnun
SP-FfÁRMÖGNUN HF
SP Fjármögnun - Vegmúla 3-108 Reykjavík • Sími S88 7200 - Fax 588 7250
&
Skoðaðu vefinn okkar
www.sp.is
:::
43