Frjáls verslun - 01.04.1999, Blaðsíða 28
RITARAR
Lóa Bjarnadóttir, ritari Axels Gíslasonar, forstjóra VÍS, segir
að starfið felist núna einkum í skipulagningu og undirbún-
ingsvinnu.
Mynd: Kristín Bogadóttir.
bhmb itt starf er mjög fjölbreytt. Það felst meðal annars í
I l'j I bréfaskriftum, umsjón með skjalasafni félagsins,
undirbúningi og skipulagningu stjórnar- og aðal-
funda og ýmissa funda, einnig í því að senda út ýmis gögn
og fleira og fleira. Starfið hefur breyst mjög á síðustu árum,
sérstaklega eftir að tölvunotkun varð almenn. Hér áður fyrr
þurfti ég að skrifa öll bréf sem fóru frá forstjóra, ýmist eftir
handriti eða „diktafóni". Nú eru allir orðnir svo sjálfstæðir að
þeir skrifa sín bréf að mestu leyti sjálfir — með einhverjum undantekning-
um þó. Eg er í miklum samskiptum við fólk, bæði í síma og móttöku. Enn-
fremur við starfsfólk og viðskiptamenn félagsins,“ segir Lóa Bjarnadóttir,
ritari Axels Gíslasonar, forstjóra VÍS, Vátryggingafélags íslands.
Reynslan er besti skólinn Lóa starfar á forstjóraskrif-
stofu VIS. A þeirri skrifstofu eru forstjóri, framkvæmda-
stjórar fjármála- og stjórnunarsviðs,
deildarstjóri endurtrygginga og ritari
starfsmannastjóra. Eins og sjá má hér
að ofan felst starf hennar einkum í
skipulagningu og undirbúningsvinnu
en samstarf ritara og forstjóra verður
að hennar sögn að byggjast á trúnaði
og trausti. Þagnarskylda er mjög áríð-
andi því að í gegnum ritarann fara
margvísleg trúnaðarmál; til að
mynda er allur póstur tekinn upp á
forstjóraskrifstofunni.
j\xel Gíslason, forstjón VIS.
Lóa segir að einkaritari verði að
hafa íslensku- og enskukunnáttu
og góða þjónustulund. Annars sé
reynslan besti skólinn. Hún hóf störf hjá Samvinnu-
tryggingum árið 1967 og vann þar í ýmsum deildum fram
til 1983. Hún hefur verið ritari forstjóra frá árinu 1984 en
þess má geta að Samvinnutryggingar og Brunabótafélag
Islands voru sameinuð í VÍS árið 1989. 33
Lóa Bjarnadóttir, ritari Axels
Gíslasonar, forstjóra VÍS, segir aö
ritarastarfiö felist núna aö mestu
í aö kalda utan um ákveöin mál
og undirbúa fundi.
Starfið
trausli
byggist
Undirbúningur og skipulagning funda
„Ritarastarfið Itjá VÍS felst meðal annars í bréfaskriftum, umsjón með skjalasafni félagsins, undirbúningi og skipu-
lagningu stjórnar- og aðalfunda og ýmissa funda, útsendingu ýmissa gagna og fleira. Starfið hefur breyst mjög á síð-
ustu árum, sérstaklega eftir að tölvunotkun varð almenn."
28