Frjáls verslun - 01.07.2000, Page 68
I
I
Fyrir hönd Olís var skipulagning framkvæmda ogfrágangs á húsinu
að mestu í höndum Einars Marinóssonar starfsmannastjóra, t.v., og
Hafsteins Guðmundssonar, forstöðumanns framkvæmdadeildar.
ekki færanlegir en mikið er um skerma í opnu rýmunum svo
auðvelt er að breyta þar til eftir hentugleikum. A gólfum er
nær alls staðar rauðleitt eikarparkett en á gólfinu í stigahús-
inu er sams konar steinn og sá sem er utan á húsinu og
einnig á einstaka stað inni. Innréttingar eru teiknaðar sér-
staklega af Þórdísi Zoéga sem einnig hannaði fundarborð og
afgreiðsluborð. Fyrir hönd Olís var skipulagning fram-
kvæmda og frágangs á húsinu að mestu í höndum Hafsteins
Guðmundssonar, forstöðumanns framkvæmdadeildar, og
Einars Marinóssonar starfsmannastjóra.
„Vel hefur tekist til með byggingu hússins en um bygg-
ingu þess var samið við ístak og var byggingakostnaður hóf-
legur," segir Ingimundur.
Starfsemin dreifð „Við vorum með aðalstöðvar okkar í
Laugarnesi, í gömlu húsi, en deildirnar voru dreifðar hingað
yrði skert sem minnst og formið haft fremur mjótt út að
Sundunum en miklu breiðara á hinn veginn.
Eik og kirsuberjaviður „Það hefur löngum verið vandamál
hér á landi að suðlægir gluggar hafa verið stórir og sólin
valdið óþægindum," segir Ingimundur. „Við leystum þetta á
þann einfalda hátt að hafa gluggana á suðurhliðinni fremur
litla en í þeim er gler með sólarvörn, þó ekki svo að útsýni
skerðist af þeim sökum. Þessir gluggar eru frá Velfag í Dan-
mörku en fyrirtækið er þekkt fyrir vandaða glugga. A suður-
hliðinni eru einnig gluggatjöld sem hægt er að draga niður
og eru þau hönnuð þannig að út sést um þau þó svo að mynd-
in sé aðeins skyggð.“
Yfir húsinu er samræmdur heildarsvipur en þó eru til-
brigði nokkur og var verkið unnið í samvinnu við starfsfólk
og yfirmenn hjá Olís. Veggir eru ljósir að lit og málmlitur á
loftpanelum en kirsuberjaviður í innréttingum. Veggir eru
Sterk fyrirtækjamenmng
eykur afköst og ánægju
og því er lögð áhersla á
að hafa aðstöðu
starfsmanna sem besta.
Fundarherbergið er vistlegt.
68