Fregnir - 01.03.2004, Blaðsíða 8
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
á skrifstofur Fastanefndarinnar. Mjög áhugavert var að upplifa hvemig alþjóðlegur
leiðtogafundur fer fram og fylgjast með dagskxánni.
I lok fundarins var samþykkt yfirlýsing fundarins (Declaration of Principles) og
drög að framkvæmdaáætlun (Plan of Action) um að tengja saman heiminn og brúa
stafrænu gjána (digital divide) milli þróaðra ríkja og þróunarríkja.
Leiðtogafundurinn um upplýsingasamfélagið er skipulagður í tveim hlutum og
verður seinni hlutinn haldinn í Túnis dagana 16.-18. nóvember 2005.
1 tengslum við leiðtogafundinn var haldin veggspjaldasamkeppni um allan heim
meðal 9-19 ára nemenda. Á sýningarsvæðinu var vinningsframlag hvers land sýnt og
voru nokkrar myndir eftir íslensk böm þar á meðal og hlaut a.m.k. ein þeirra verðlaun.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
Helstu heimildir ogfrekari upplýsingar um leiðtogafundinn:
WSIS: http://www.itu.int/wsis/
WSIS (Upplýsingar á íslensku): http://www.un.dk/icelandic/WSIS/main.htm.
WSIS: http://ifla.org/III/wsis.html
WSIS - Poster Competition: http://www.itu.int/wsis/ecard/index.asp71a
Að skapa almenningi unaðsreit - Almenningsbókasöfn á 21. öld
Creating Public Paradise - Building Public Libraries in the 21 st Century
I tilefni af því að Hollendingar fara með formennsku í Evrópuráðinu frá október 2003
til apríl 2004 buðu þeir fulltrúum frá hverju Evrópulandanna til ráðstefnu í Haag um
húsnæði og skipulag almenningsbókasafna dagana 18. og 19. mars síðastliðinn. Laug-
ardaginn 20. mars var svo boðið upp á kynnisferð til Rotterdam til að skoða bókasöfn.
Héðan frá Islandi var boðið einum fúlltrúa frá Menntamálaráðuneytinu og for-
manni Upplýsingar. Fulltrúi ráðuneytisins tók ekki boðinu svo gjaldkeri Upplýsingar,
Lilja Ólafsdóttir, sótti ráðstefnuna. Ráðstefnan var alfarið í boði Hollendinga nema
hvað varðaði ferðir. Til leiks vom alls skráðir 111, þar af 45 frá Hollandi.
Fimmtudaginn 18. mars var ráðstefnan í utanríkisráðuneytinu í Hag. Þar er full-
kominn fundarsalur til að halda evrópskar ráðstefnur stjómmálamanna og aðstaða hin
besta. Öryggismálunum var vel sinnt og þátttakendur þurftu að sýna skilríki við skrán-
inguna.
Fyrsta fyrirlesturinn eftir opnunarræðumar hélt Hollendingurinn Michaél Zeeman
sem talaði um almenningsbókasöfn í Evrópu sem hann taldi mikilvæg og kæmu sem
samkomustaður í stað kirkna og markaðstorga. Æskilegt væri að bókasöfnin opnuðu
ýmsum viðburðum dyr sínar, s.s. upplestri og leikhúsi.
Næst talaði Bretinn Ken Worpole um bókasafnsbyggingar á tímum símenntunar.
Worpole hefur m.a. gert umfangsmikla könnun á notkun almenningsbókasafna í Bret-
landi og bók hans Better Public Libraries (sjá www.Worpole.dircon.co.uk) var gefm
út á síðastliðnu ári. I erindi sínu lagði hann áherslu á almenningsbókasöfn sem unaðs-
reit fyrir almenning. Taldi hann markvissa hönnun bókasafnsbygginga mjög mikil-
væga þannig að þau hentuðu starfseminni. Hann var ómyrkur í máli gagnvart arki-
tektum og lagði áherslu á að skapa yrði þeim stífan ramma til að vinna eftir þannig að
þarfir notenda safnanna væru í fyrirrúmi. Koma yrði í veg fyrir að arkitektar hönnuðu
byggingarnar eingöngu fyrir aðra arkitekta og arkitektablöð. Hann bar hefðbundnar
bókasafnsbyggingar saman við nútímabyggingar og lagði áherslu á frjálslegar bygg-
ingar með inngangi af götuhæð. Bókasöfnin ættu að vera stofan (e. living room) í
29. árg. - 1. tbl. 2004 - bls. 8