Morgunblaðið - 13.01.2001, Page 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 23
Bolungarvík - Nokkuð hefur
verið um skemmdir í veðurofs-
anum hér í Bolungarvík, en í
gærmorgun var suðvestan átt
20 til 25 m á sek og er ekki ólík-
legt að í verstu hviðunum hafi
vindstyrkurinn náð um eða yfir
30 m á sekúndu. Í einni slíkri
hviðunni brotnuðu tvær stórar
rúður í Shellskálanum og
geymsluskúr sem stendur á
Shellskálaplaninu hafnaði á
hvolfi.
Þakplötur hafa losnað af
loðnuverksmiðju Gná og einnig
fauk hluti af þaki á gripahúsum
fjárbænda í Minni- Hlíð og
nokkuð hefur verið um að skjól-
veggir hafa verið að gefa sig
undan veðrinu.
Liðsmenn Björgunarsveitar-
innar Ernis voru á ferðinni frá
því um kl. 8 í morguninn við að
festa niður lausa hluti og að-
stoða þar sem fokskemmdir
hafa orðið.
Fok-
skemmdir
í suðvestan
hvassviðri
Búðardal - Hinn 4. desember 2000
var boðinn út annar áfangi Vest-
fjarðavegar, þjóðvegur nr. 60. Það
var svo 8. janúar síðastliðinn að opn-
uð voru tilboð í verkið. Lægsta til-
boðið var frá Arnarfelli ehf. frá Ak-
ureyri. Með þessum áfanga verður
lokið uppbyggingu vegarins um
Bröttubrekku.
Trúlega eru ekki margir aðrir
fjallvegir sem geta státað af því að
engin brú sé á leiðinni. Þess í stað
verða ræsi sett yfir ár og gil.
Dalafjall?
Ekki eru allir Dalamenn hrifnir af
því að láta leiðina heita veg yfir Dala-
fjall, en ekkert örnefni á leiðinni ber
það nafn.
Vegurinn sem í daglegu tali er
kallaður Brattabrekka liggur ekki
yfir hina fornu Bröttubrekku, né
heldur kemur nýi vegurinn til með
að gera það. Það nafn er ekki til að
hvetja ferðamenn að leggja leið sína
um Dali og því álit margra að rétt sé
að hætta að tengja veginn við það
nafn.
Vegurinn liggur um Miðdal og
Merkjahrygg og heyrst hefur sú
uppástunga að fjallvegurinn verði
kallaður vegur um Miðdal og
Merkjahrygg.
Útboði
lokið
Brattabrekka
NETVERSLUN Á mbl.is
Langermabolir
aðeins 1.900 kr.
Flateyri - Smábátar í Flateyrarhöfn voru fluttir í var við syðri
hafnarbakkann eftir að stormviðvörun barst frá Veðurstofu á
fimmtudagskvöld. Nokkuð var farið að bæta í vind meðan á til-
færingunum stóð svo menn máttu hafa sig alla við til að standa af
sér snörpustu vindhviðurnar.
Mesta mildi þótti að ekki urðu slys á mönnum þegar nokkur
fiskikör tókust á loft og þeyttust yfir höfuð eins björgunarmann-
anna á bryggjunni. En að minnsta kosti sex kör feyktust út í sjó
áður en tókst að koma karastæðunum í hús.
Smábátar
fluttir í var
Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson