Morgunblaðið - 13.01.2001, Síða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 27
SVÍAR telja enn ekki nægar sann-
anir fyrir því að Raoul Wallenberg
sé látinn. Þrátt fyrir tíu ára þrot-
laust starf sagnfræðinga, sem
rannsakað hafa skjöl í sænskum og
rússneskum skjalasöfnum, hefur
ekkert komið fram sem sannar
með óyggjandi hætti hver örlög
hans urðu. Rússar telja hins vegar
að hann hafi látist árið 1947 þótt
þeir geti ekki sýnt fram á slíkt og
þá ekki heldur hvers vegna. Þetta
kom fram er nefnd á vegum
sænska og rússneska utanríkis-
ráðuneytisins kynnti niðurstöður
sagnfræðinganna í Stokkhólmi í
gær.
Skýrsla sagnfræðinganna er í
tveimur hlutum, sem hvor þjóð um
sig lagði fram en auk þess veittu
Svíar formlega aðgang að um 6
hillumetrum af skjölum er varða
mál Wallenbergs. Það er gríðar-
legt magn enda eitt stærsta og
umfangsmesta mál sem sænska ut-
anríkisráðuneytið hefur fengist
við.
Það kemur því á óvart að í
skýrslunni er ein helsta ástæða
þess að Wallenberg var ekki látinn
laus, sögð vera áhugaleysi utan-
ríksráðuneytisins á því að ræða
það við sovésk stjórnvöld þrátt
fyrir tilraunir hinna síðarnefndu til
þess fyrstu tvö árin eftir handtöku
hans. Einkum hefur hlutur sendi-
herra Svía í Moskvu á þessum
tíma þótt hafa haft afgerandi áhrif
en komið hefur fram að hann lýsti
því ítrekað yfir í samræðum við
sovéska ráðamenn að hann teldi
Wallenberg hafa látist árið 1945 og
lét allar tilraunir þeirra til að taka
málið upp sem vind um eyru þjóta.
Vitnin látin og
skjölin horfin
Raoul Wallenberg var sænskur
stjórnarerindreki í Búdapest í
Ungverjalandi í heimsstyrjöldinni
síðari og var tekinn til fanga af
Sovétmönnum í janúar 1945. Hann
hafði þá forðað þúsundum gyðinga
frá því að lenda í útrýmingarbúð-
um nasista.
Vitað er að Wallenberg var
fluttur til Moskvu og að hann var
þar fangi en fáu öðru er hægt að
slá föstu. Sagnfræðingarnir sem
störfuðu fyrir sænsk-rússnesku
nefndina, fengu aðgang að gríð-
arlegu magni skjala og ræddu auk
þess við fjölda vitna.
Starf þeirra reyndist þó erfitt
vegna þess að fjöldi þeirra sem
hefðu getað búið yfir upplýsingum
um Wallenberg var látinn er
nefndin hóf störf. Þá hefur fjöldi
skjala um málið horfið eða verið
eyðilagður, þótt Hans Magnusson,
formaður sænsku nefndarinnar,
útilokaði ekki í gær að einhver
skjöl um málið gætu verið til sem
sögð eru horfin.
Vjateslav Tutinin, formaður
rússnesku nefndarinnar, kvaðst
hins vegar fullviss um að öll skjöl
hefðu verið lögð fram en flest voru
þau í skjalasöfnum leyniþjónust-
unnar og skrifstofu forsetans.
Sænsku nefndarmennirnir hvetja
rússnesk yfirvöld hins vegar til að
leyfa aðgang að fleiri skjölum en
gert hefur verið en hluti skjala-
safnanna í báðum löndum er lok-
aður þrátt fyrir að Svíar hafi lagt
mikinn meirihluta þeirra fram í
gær.
Þrátt fyrir mikið starf liggja
ekki fyrir nein skjöl eða vitnis-
burðir er sanna eða afsanna að
Wallenberg hafi verið á lífi eftir
mitt ár 1947. Sovétmenn hafa hald-
ið því fram að hann hafi látist þá
og telur rússneska nefndin það
vera rétt, þótt hún segi ekkert
ljóst um dánarorsök. Rússar
kenna áhugaleysi Svía um dauða
Wallenberg þar sem Sovétmenn
hafi ákveðið „að binda enda á hina
óleystu gátu um Wallenberg“ eins
og segir í skýrslunni.
Neita njósnaásökunum
Svíar taka að hluta til undir
þessa kenningu Rússa, það er hvað
varðar áhugaleysið, sem Magnus-
son sagði hafa haft „alvarlegar af-
leiðingar er varðaði möguleika
Wallenbergs á því að snúa aftur til
Svíþjóðar“.
Auk þess sem áður hefur komið
fram um meint áhugaleysi sænska
utanríkisráðuneytisins bendir ým-
islegt til þess að Sovétmenn hafi
talið Wallenberg vera njósnara
Bandaríkjamanna eða Þjóðverja.
Því vísa Svíar algerlega á bug.
Þrátt fyrir sannfæringu rúss-
nesku sérfræðinganna um að Wall-
enberg hafi látist 1947 segja Svíar
ekkert fram komið því til sönnunar
og fallist þeir því ekki á að hann sé
látinn. „Þessu máli er ekki lokið,“
sagði Hans Dahlgren, ráðuneytis-
stjóri sænska utanríkisráðuneytis-
ins, í gær. Svíar telja eina skýr-
ingu á óvissunni um örlög
Wallenbergs vera þá að hann
kunni að hafa verið færður til í
fangelsi og honum gefið nýtt nafn
og númer í skrám þess.
Ljóst er af niðurstöðu nefndar-
innar að máli Wallenbergs er ekki
lokið. Leggur nefndin enda til að
komið verði á fót sjóði til að að-
stoða sagnfræðinga er vilji rann-
saka afdrif Wallenbergs. Þá munu
Rússar í nefndinni beina þeim til-
mælum til borgarstjórans í
Moskvu að gata eða torg verði
nefnd í höfuðið á Wallenberg eða
reist verði stytta honum til heið-
urs.
Tíu ára sænsk-rússneskri rannsókn á örlögum Raoul Wallenbergs lokið
Engin niðurstaða um
hvort Wallenberg sé látinn
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ANSON Chan, næstæðsti maður
stjórnarinnar í Hong Kong, sagði
óvænt af sér í gær. Hún sagði ástæð-
ur afsagnarinnar vera persónulegar
en margir telja þó að ósætti við Tung
Chee-hwa, æðsta mann stjórnarinn-
ar, og átölur frá stjórninni í Peking
séu raunverulega orsakirnar.
Chan nýtur mikilla vinsælda en
hún var skipuð í embætti af síðasta
breska landstjóranum í Hong Kong
og er í augum margra íbúa svæðisins
tákn þess tíma þegar Bretar fóru þar
með völd. Tung Chee-hwa, sem var
skipaður af kínverskum stjórnvöld-
um, nýtur hins vegar lítils stuðnings
meðal íbúanna og þau Chan hafa
nokkuð ólíkar hugmyndir um stjórn
svæðisins. Hún hvatti til dæmis til
þess fyrir skömmu að fullu lýðræði
yrði komið á í Hong Kong fyrr en
áformað var, í samræmi við vilja
meirihluta íbúanna, en Tung er mót-
fallinn því. Þá hafa fjölmiðlar í Hong
Kong gert því skóna að Chan hafi
augastað á æðsta embættinu.
Ráðamenn í Peking gripu til þess
ráðs í september sl., þegar Chan var
þar á ferð, að skipa henni að „styðja
betur við bakið á Tung“.
Chan kvaðst í gær myndu láta af
störfum í apríl nk. þar sem hún hefði
hug á að verja meiri tíma með fjöl-
skyldunni.
Ástæðan
talin ósætti
við stjórn-
völd í Kína
Hong Kong. AFP, AP.
Næstæðsti maður
stjórnarinnar í Hong
Kong segir af sér