Morgunblaðið - 13.01.2001, Side 63

Morgunblaðið - 13.01.2001, Side 63
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 63 FYRIR nokkrum dögum, um nýliðin aldamót, var gerð al- varlegasta aðför að lýðræðinu hér á landi, síðan lýðveldið var endurreist 1944. Rík- istjórn Íslands van- virti Hæstarétt Ís- lands, sem er æðsti úrskurðaraðili í deilu- málum hér á landi. Einn af hornsteinum lýðræðis er réttar- kerfið og virðng fyrir því og er svo um allan hinn vestræna heim. Þegar hæstiréttur viðkomandi lands hef- ur fellt úrskurð eru það lokaorð og allir virða niðurstöðuna, hver sem hún er eins og sást best í forseta- kosningunum í Bandaríkunum ný- lega. Þegar hæstiréttur kvað upp úrskurð um talningar þar, sagðist Al Gore virða niðurstöðuna þótt hann væri ekki sammála. Svona er þetta um allan hinn vestræna heim, nema hér á Íslandi. Hæsti- réttur felldi úrskurð í deilumáli milli Tryggingastofnunar ríkisins og Öryrkjabandalagsins og úskurðaði að Tryggingastofnun hafi verið óheimilt að skerða tekju- tryggingu öryrkja vegna tekna maka, því til þess skorti lagaheim- ild og þessi skerðing samrýmdist ekki mannréttindakafla í stjórn- arskrá Íslands. Viðbrögð forstjóra Trygginga- stofnunar fyrst eftir að úrskurður lá fyrir voru eðlileg og hann sagði að það væri ekkert vandamál að greiða út skv. úrskurðinum um áramót, en það tæki lengri tíma að reikna allt aftur í tímann, en við- brögð ríkisstjórnar við þessum úr- skurði vöktu undrun margra. Heil- brigðisráðherra sagði dóminn flókinn og lögmenn ráðuneytisins þyrftu að skoða hann vel áður nokkuð yrði gert, forsætisráðherra talaði um rétturinn hefði átt að vera fjölmennari og fleira var sagt í þessum dúr, en ríkistjórnin skip- aði síðan nefnd til að fara yfir dóminn og finna út hvernig bregð- ast skyldi við og koma með tillögur um lagabreytngar. Síðan sögðu ráðherrar að ekkert væri hægt að gera fyrr en nefndin væri búin að skila af sér. Utanríkisráðherra sagði í viðtali í Morgunblaðinu að það hefði verið vitað frá upphafi að lagabreytingar þyrfti til áður en hægt yrði að greiða út sam- kvæmt dómnum. Þetta er ótrúlegur málflutningur, að halda því fram að setja þurfi lög til að fara eftir úrskurði Hæstaréttar. Hvers- konar réttarfar stend- ur til að innleiða hér? Er hægt að breyta úr- skurði Hæstaréttar með lögum eftirá? Allir nema ríkis- stjórnin reiknuðu með að úborgun tekjuteng- ingar öryrkja um ár- mót yrði í samræmi við dóm eða úrskurð Hæstaréttar eða að skerð- ingum vegna tekna maka yrði hætt, þar sem Hæstiréttur hafði úrskurðað það óheimilt, en ríkis- stjórnin tók ekki mark á úrskurði Hæstaréttar og hélt áfram skerð- ingum þótt það væri óheimilt. Ég held að Hæstarétti og allri ís- lensku þjóðinni hafi aldrei áður í sögu lýðveldisins verið sýnd meiri óvirðing en með þessari framkomu og er þetta alvarleg aðför að lýð- ræðinu í landinu. Það er ekki mál- ið hvort haft er af öryrkjum og ellilífeyrisþegum með þessari ákvörðun ríkisstjórnar að láta Tryggingastofnun halda áfram ólöglegum skerðingum á bótum (við erum vön því að taka á okkur auknar álögur) heldur það að rík- isstjórnin telur sig yfir Hæstarétt hafin og skipar stofnun, sem hefur fengið úrskurð frá Hæstarétti á sig um ólöglegt eða óheimilt at- hæfi, að taka ekki mark á úrskurð- inum og halda lögbrotinu áfram, eins og gert var 2. janúar þegar greitt var út eftir gömlu reglunum, sem sem Hæstiréttur hafði úr- skurðað óheimilt. Þarna er gengið ansi langt frá lýðræðinu í átt til einræðis, þegar ríkisstjórn telur sig yfir Hæstarétt hafin og tekur sér sjálfdæmi í málinu. Mikið er á sig lagt til að reyna að hafa af ör- yrkjum og ellilífeyrisþegum lögleg laun þeirra. Eðlileg viðbrögð ríkisstjórnar, fyrst hún var ekki sammála úr- skurði Hæstaréttar, hefði verið að greiða út skv. úrskurðinun í janúar og að semja reglur eða lög til framtíðar og einnig að athuga hvernig best væri að greiða það sem búið var að taka án heimildar, því það getur ekki staðist í lýðræð- isríki að ríkisstjórn eða Alþingi seti lög eða reglur, sem geta ógilt úrskurð Hæstaréttar. Ef ríkis- stjórn ætlar að setja lög og reglu- gerðir, sem ógilda, eða draga úr vægi úrskurðar Hæstaréttar, mun það leiða til áframhaldandi mála- ferla, sem aftur enda í Hæstarétti ef með þarf, og er ólíklegt að Hæstiréttur dæmi gegn fyrri úr- skurði. Er ekki kominn tími til að stjórnvöld hætti að standa í mála- ferlum og deilum við öryrkja og aðra styrkþega og fari að hugsa með velvilja til þeirra og fari að leiðrétta eitthvað af þeim miklu skerðingum, sem orðið hafa á kaupmættinum á undanförnum ár- um? Aðför að lýðræðinu Karl Gústaf Ásgrímsson Öryrkjar Er ekki kominn tími til, spyr Karl Gústaf Ásgrímsson, að stjórn- völd hætti að standa í málaferlum og deilum við öryrkja og aðra styrkþega? Höfundur er eftirlaunaþegi og formaður FEBK. Ofn æmisprófað Úr ríki náttúrunn ar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.